Opnun útskrift­ar­sýn­ingar LHÍ

til

Opnun útskriftarsýningar LHÍ

Opnun útskriftarsýningar LHÍ

Hafnarhús

til

Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í myndlistardeild, hönnunardeild og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.

Á sýningunni getur að líta lokaverkefni 77 nemenda í myndlist, grafískri hönnun, arkitektúr, fatahönnun og vöruhönnun. Verkin á sýningunni endurspegla áherslur, nám, rannsóknir og listsköpun nemenda síðastliðin þrjú ár.

Sýningastjórar eru Melanie Ubaldo (myndlist), Rúna Thors (vöruhönnun), Ragna Sigríður Bjarnadóttir (fatahönnun), Adam Flint (grafísk hönnun), Birta Fróðadóttir, Bjarki Gunnar Halldórsson og Anna Kristín Karlsdóttir (arkitektúr).

Sýningin stendur til mánudags 20. maí og er aðgangur ókeypis á meðan sýningunni stendur.

Öll velkomin.