Listasafn Reykjavíkur

Listin meðal fólksins. Ásmundarsafn, sunnudag 5. febrúar kl. 14.

Næstkomandi sunnudag verður boðið upp á leiðsögn með áherslu á útilistaverk Ásmundar Sveinssonar og verk í opinberu rými. Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, listfræðingur og verkefnastjóri dagskrár hjá Listasafni Reykjavíkur segir frá verkum Ásmundar og hugmyndum hans um mikilvægi þess að listin sé hluti af daglegu umhverfi fólks.
> Sjá nánar

List í almenningsrými - afmælismálþing myndhöggvarafélagsins. Hafnarhús, laugardag 4. febrúar kl. 13-16

Myndhöggvarafélag Reykjavíkur fagnar 40 ára afmæli í ágúst á þessu ári en af því tilefni efnir félagið, í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur, til opins málþings í Listasafni Reykjavíkur
> Sjá nánar

Svarta Keilan - Gjörningur Santiago Sierra. Austurvöllur, föstudag 20. janúar kl. 13.

Verkið Svarta keilan, minnisvarði um borgaralega óhlýðni samanstendur af 180 cm. háum steindranga og var komið fyrir á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið, föstudaginn 20. janúar. Gjörningurinn fólst í því að reka tæplega hálfs metra svarta stálkeilu í bjargið og framkalla þannig varanlega sprungu í það.
> Sjá nánar

Erró plaköt til sölu í Hafnarhúsi

Í tilefni af sýningunni Erró - Plaköt hefur listamaðurinn ákveðið að selja valin eintök af plakötum sem hanga uppi á sýningunni.
> Sjá nánar

Vetrardagskrá Listasafns Reykjavíkur 2012

13 sýningar og tæplega 40 viðburðir munu líta dagsins ljós í Listasafni Reykjavíkur á næstu mánuðum. Má þar nefna Karen Agnete, Sierra, Tápiés, fyrirlestrarröðina umræðuþræðir, safnabeltið, fjölskylduviðburði, tónleika, gjörninga Santiago Sierra o.fl.
> Sjá nánar

Nýtt og spennandi kaffihús opnaði á Kjarvalsstöðum

Fimmtudaginn 17. nóvember opnaði nýtt og spennandi kaffihús á Kjarvalsstöðum eftir nokkrar breytingar. Matreiðslumaðurinn Ari Heimisson slær nýjan tón í fjölbreyttu úrvali á hollusturéttum í bland við ljúffengt kaffibrauð á verði við allra hæfi.
> Sjá nánar

Menningarkort Reykjavíkur - Vinningshafar

Þrír heppnir menningarkortshafar fengu glæsileg verðlaun þegar dregið var af handahófi þann 22. október í þættinum Bergsson og Blöndal sem útvarpað er á Rás 2. Allir þeir sem hafa keypt sér Menningarkort á þessu ári fóru í lukkupottinn en alls er búið að selja 7.800 kort og er því um að ræða þrjá mjög heppna einstaklinga.
> Sjá nánar



Eldri fréttir


Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
NO POBE - ©Santiago Sierra, photograph courtesy of Estudio de Santiago Sierra
Santiago Sierra
20.jan. 12 - 15.apr. 12
Erró Plaköt - Political painting
Erró – Plaköt
07.jan. 12 - 14.mar. 12
Erró, Án titils (Skissa fyrir málverk „The Devil of Pompei‟) úr seríunni Beinagrindurnar (1955-1957), 1955
Erró – Teikningar
03.sep. 11 - 26.ágú. 12

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

Draumalandið mitt í norðri - Karen Agnete
Byggingarlist og tímaflakk
14.jan. 12 - 04.mar. 12
Jóhannes S. Kjarval. Draumaskipið, um 1930
Kjarval Lykilverk
27.jan. 12 - 31.des. 12

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00
Magnús Árnason, Homage, 2011
Magnús Árnason - Homage
30.apr. 11 - 22.apr. 12


Listasafn Reykjavíkur