Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Listin meðal fólksins. Ásmundarsafn, sunnudag 5. febrúar kl. 14.

Næstkomandi sunnudag verður boðið upp á leiðsögn með áherslu á útilistaverk Ásmundar Sveinssonar og verk í opinberu rými. Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, listfræðingur og verkefnastjóri dagskrár hjá Listasafni Reykjavíkur segir frá verkum Ásmundar og hugmyndum hans um mikilvægi þess að listin sé hluti af daglegu umhverfi fólks.

Ásmundur stundaði nám við Sænsku listakademíuna undir handleiðslu myndhöggvarans Carls Milles. Þar kynntist hann þeirri hugmynd, sem hann aðhylltist æ síðan að höggmyndalistin væri hluti af landslagi borgarinnar. Ásmundur boðaði líka að listin ætti erindi við fólkið í landinu og ætti heima á meðal þess. Hann var kallaður alþýðuskáldið í myndlist sem má rekja til lífsafstöðu hans ekki síður en höggmyndahefðarinnar. Flest verk sín hugsaði hann sem hluta af opinberu rými, órofa hluta af umhverfi sínu eða þá að hann útfærði þau sem hönnunar- og nytjahlut.

Umhverfis Ásmundarsafn er höggmyndagarður og prýða hann nær þrjátíu höggmyndir listamannsins en gengið verður um garðinn ef veður leyfir.

Frítt er fyrir handhafa Menningarkortsins, en nánari upplýsingar um aðgangseyri eru hér. Nánari upplýsingar um viðburði vetrarins má finna hér.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00