Hafnarhúsið
Listasafn Reykjavíkur: Hafnarhús
Hluti af Hafnarhúsinu var tekinn til notkunar sem listasafn borgarinnar í apríl árið 2000. Hafnarhúsið var reist á áunum 1932-39 fyrir skrifstofur og vörugeymslur Reykjavíkurhafnar og var á sínum tíma ein stærsta bygging landsins. Helstu hönnuðir Þess voru Sigurður Guðmundsson arkitekt og Þórarinn Kristjánsson hafnarstjóri. Útiportið á sér fáar hliðstæður í íslenskri byggingarlist en nákvæmar upplýsingar um hönnun þess liggja ekki fyrir þar sem upprunalegu teikningarnar hafa ekki verið varðveittar. Arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Steve Christer hönnuðu húsnæði listasafnsins og lögðu áherslu á að halda útilit þess sem upprunalegustu. Þar eru sex sýningarsalir á tveimur hæðum, fjölnotasalur auk útiportsins sem tilheyrir listasafninu.
Í Hafnarhúsinu eru heimkynni Errósafnsins og þar eru reglulegar sýningar á verkum listamannsins.
Verslun
Í Hafnarhúsinu er safnverslun þar sem boðið er upp á úrval innlendra og erlendra listaverkabóka og sýningarskráa sem safnið hefur gefið út í gegnum árin. Þar er einnig til sölu gjafavara, gjafakort og eftirprentanir af kunnum listaverkum.
Einnig afsteypur af verkum Ásmundar Sveinssonar. Verslunin er opin á opnunartíma safnsins.
Veitingastaður
Ari Már Heimisson kokkur býður upp á ferskan og næringarríkan hádegisverð á Kaffi Kompaníinu. Súpurnar eru í aðalhlutverki en ásamt þeim er boðið uppá létta og skemmtilega rétti af matseðli þar sem hollustan er í fyrirrúmi. Opnunartími er frá 10:30 - 16:30 virka daga en frá 11:30 -16:30 um helgar.
Um heimsókn í Hafnarhúsið
Gestir eru vinsamlegast beðnir um að snerta ekki listaverkin í safninu.
Aðgengi fyrir fatlaða er mjög gott í Hafnarhúsinu. Í janúar 2001 hlaut Listasafn Reykjavíkur viðurkenningu Sjálfsbjargar fyrir gott aðgengi.
Barnavagnar, bakpokar, stórar töskur, regnhlífar og aðrir fyrirferða miklir hlutir eru ekki leyfðir í sýningarsölunum.
Í afgreiðslu er geymsla fyrir vagna, kerrur og hjólastóll til láns og læstir skápar fyrir gesti.
Um Erró
Skoða bókaútgáfu listasafnsins
Skoða afsteypur Ásmundar
Skoða fræðslu- og fyrirlestradagskrá
Prenta |