Kjarvalsstaðir
Listasafn Reykjavíkur er til húsa á þremur stöðum í bænum.
Í Hafnarhúsi við Tryggvagötu, á Kjarvalsstöðum við Flókagötu og í Ásmundarsafni við Sigtún.
Listasafn Reykjavíkur: Kjarvalsstaðir
Kjarvalsstaðir voru teknir í notkun árið 1973 en höfðu þá verið í byggingu frá árinu 1966. Arkitekt er Hannes Kr. Davíðsson en þetta er fyrsta byggingin á Íslandi sem sérstaklega er hönnuð fyrir myndlist. Auk tímabundinna sýninga á Kjarvalsstöðum eru þar eru reglulega sýningar á verkum Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972). Kjarval skipar sérstakan sess í íslenskri menningar- og listasögu sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar.
Veitingar
Fimmtudaginn 17. nóvember opnar nýtt og spennandi kaffihús á Kjarvalsstöðum eftir nokkrar breytingar. Matreiðslumaðurinn Ari Heimisson slær nýjan tón í fjölbreyttu úrvali á hollusturéttum í bland við ljúffengt kaffibrauð á verði við allra hæfi.
Opið alla daga frá kl. 10-17.
Athugið að ekki þarf að greiða aðgangseyri til að komast á kaffihúsið.
Verslun
Á Kjarvalsstöðum er safnverslun þar sem boðið er upp á úrval innlendra og erlendra listaverkabóka og sýningarskráa sem safnið hefur gefið út í gegnum árin. Þar er einnig til sölu ýmis gjafavara frá KRAUMI, gjafakort og eftirprentanir af kunnum listaverkum. Einnig afsteypur af verkum Ásmundar Sveinssonar. Verslunin er opin á opnunartíma safnsins.
Um heimsókn á Kjarvalsstaði
Gestir eru vinsamlegast beðnir um að snerta ekki listaverkin í safninu.
Aðgengi fyrir fatlaða er mjög gott á Kjarvalsstöðum.
Barnavagnar, bakpokar, stórar töskur, regnhlífar og aðrir fyrirferða miklir hlutir eru ekki leyfðir í sýningarsölunum.
Í afgreiðslu er geymsla fyrir vagna, kerrur og hjólastóll til láns og læstir skápar fyrir gesti.
Nánar um Jóhannes S. Kjarval
Skoða bókaútgáfu listasafnsins
Skoða afsteypur Ásmundar
Prenta