Kjarvalsstaðir
Kjarvalsstaðir á You Tube 
Listasafn Reykjavíkur er til húsa á þremur stöðum í bænum.
Í Hafnarhúsi við Tryggvagötu, á Kjarvalsstöðum við Flókagötu og í Ásmundarsafni við Sigtún.
Kjarvalsstaðir
Kjarvalsstaðir voru teknir í notkun árið 1973 en höfðu þá verið í byggingu frá árinu 1966. Arkitekt er Hannes Kr. Davíðsson en þetta er fyrsta byggingin á Íslandi sem sérstaklega er hönnuð fyrir myndlist. Auk tímabundinna sýninga á Kjarvalsstöðum eru þar eru reglulega sýningar á verkum Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972). Kjarval skipar sérstakan sess í íslenskri menningar- og listasögu sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar.
Veitingar
Á Kjarvalsstöðum er kaffihús þar sem í boði eru kaffiveitingar, heitir smáréttir og léttvín. Kaffihúsið er vinsæll áningastaður gesta safnsins og einnig til funda lítla hópa. Frá kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum er fallegt útsýni yfir Miklatún og Öskjuhlíð. Á góðviðrisdögum er hægt að njóta veitinga utandyra. Innlend og erlend blöð og listtímarit liggja frammi á kaffihúsinu fyrir gesti til að lesa og skoða. Á Kjarvalsstöðum er þráðlaus internettenging. Kaffihúsið er opið 10:00 - 16:45.
Verslun
Á Kjarvalsstöðum er safnverslun þar sem boðið er upp á úrval innlendra og erlendra listaverkabóka og sýningarskráa sem safnið hefur gefið út í gegnum árin. Þar er einnig til sölu ýmis gjafavara frá KRAUMI, gjafakort og eftirprentanir af kunnum listaverkum. Einnig afsteypur af verkum Ásmundar Sveinssonar. Verslunin er opin á opnunartíma safnsins.
Um heimsókn á Kjarvalsstaði
Gestir eru vinsamlegast beðnir um að snerta ekki listaverkin í safninu.
Aðgengi fyrir fatlaða er mjög gott á Kjarvalsstöðum.
Barnavagnar, bakpokar, stórar töskur, regnhlífar og aðrir fyrirferða miklir hlutir eru ekki leyfðir í sýningarsölunum.
Í afgreiðslu er geymsla fyrir vagna, kerrur og hjólastóll til láns og læstir skápar fyrir gesti.
Nánar um Jóhannes S. Kjarval
Skoða bókaútgáfu listasafnsins
Skoða afsteypur Ásmundar
Prenta