Listasafn Reykjavíkur

Annað auga - Ljósmyndaverk úr safneign Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur

14. maí — 22. ágúst 2010

Á sýningunni er notkun ljósmynda í alþjóðlegri og íslenskri samtímamyndlist skoðuð út frá sextíu völdum ljósmyndaverkum úr safneign þeirra.

Ljósmyndaverkin á sýningunni gefa góða mynd af þeim áherslum, straumum og stefnum, er birst hafa í ljósmyndaverkum innlendra og erlendra samtímamyndlistarmanna frá síðari hluta 7. áratugarins fram til dagsins í dag.
 
Áhersla er lögð á að gera skil mörgum þeim íslensku myndlistarmönnum sem nota ljósmyndir í verkum sínum og skoða verk þeirra í samhengi við ljósmyndaverk í samtímalistum. Jafnframt er lögð áhersla á að sýna breiða og fjölbreytilega notkun ljósmynda í myndlist og varpa ljósi á ólíka afstöðu til notkunar miðilsins og möguleika hans.

Yfir helmingur ljósmyndanna á sýningunni eru teknar af listamönnunum sjálfum þótt fæstir búi  þeir yfir sérþekkingu á ljósmyndun eða líti á sig sem ljósmyndara. Myndirnar spanna vítt svið, frá því að vera ferðasögu-snöggmyndir af nánasta umhverfi listamannsins yfir í að vera sviðsett portrett, formrænt sjónarhorn á hversdagslega hluti, tíma-frystir gjörningar eða kyrralífsmyndir.

Sýningarstjóri er Birta Guðjónsdóttir.

Texti sýningarstjóra

Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010.


Sunnudag 23. maí kl. 15
Kjarvalsstaðir – Annað auga
Sýningastjóraspjall. Birta Guðjónsdóttir, sýningastjóri og Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari ræða við Pétur Arason og gesti um sýninguna.

Sunnudag 20. júní kl. 15
Kjarvalsstaðir – Annað auga
Sýningastjóraspjall. Birta Guðjónsdóttir ræðir við gesti um sýninguna.

Sunnudag 8. ágúst  kl. 15
Kjarvalsstaðir – Annað auga
Sýningastjóraspjall. Birta Guðjónsdóttir ræðir við gesti um sýninguna.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00