D15 Dodda Maggý
15. janúar - 21. febrúar 2010
Hafnarhús
Lucy nefnist myndbands- og hljóðinnsetning Doddu Maggýjar (1981) sem er 15. listamaðurinn til að sýna í D-salar verkefninu. Í verkinu kannar listamaðurinn hugmyndina um hljóðskynjun þar sem sýnileg vera reynir í örvæntingu sinni að hafa taumhald á og líkamnast röddinni, eða kannski er það röddin sem leitar að líkamanum. Dodda Maggý hefur sýnt á samsýningum víða um heim. Hún lauk námi frá Listaháskóla Íslands, MFA gráðu frá The Royal Danish Academy of Fine Arts og síðar sömu gráðu úr samræmdu námi listaháskóla á norðurlöndum með áherslu á hljóðverk.
Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.
Fimmtudag 28. janúar kl. 20
Hafnarhús – D15
Listamannsspjall Doddu Maggýjar.
LUCY (2009)
CV
Prenta Til baka