Í safni ófullkomleikans 1939 – 2010 – Unnar Örn J. Auðarson
20. maí - 29. ágúst 2010
Hafnarhús
Innsetning Unnars Arnar er byggð utanum samansafn af gripum sem fengnir eru að láni úr geymslum ljósmynda, skjala og minjasafns Reyjavíkur. Sýningin teygir þannig anga sína út fyrir listasafnið og skapar samtal um forsendur tengdar skrásetningu og hlutverki safna í samtímanum.
Auk þess að draga fram í dagsljósið lítt þekkt söfn einstaklinga úr fórum Reykjavíkurborgar skoðar Unnar Örn einnig þá mynd sem hið opinbera vald hefur kosið að draga upp af þjóðinni á alþjóðavettvangi í tengslum við heimssýningar. Ríkisstjórn Íslands tók í fyrsta sinn þátt í slíkri sýningu í New York árið 1939 og gerir það einnig nú í maí 2010 í Sjanghæ.
Á sýningu Unnars Arnar í Hafnarhúsinu skarast þannig opinber sjálfsmynd þjóðarinnar sem og hin falda og ófullkomna frásögn einstaklingsins. Þar er þeirri spurningu varpað fram hvaða vægi opinber ímyndarsköpun yfirvalda hafi í tengslum við upplifun þegna landsins. Gangast þeir upp í þeirri ímynd eða eiga þeir hlutdeild í að móta hana?
Texti eftir Markús Þór Andrésson
Unnar Örn CV (pdf) Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010. Sunnudag 30. maí 2010, kl. 15 Hafnarhús - Fullkomleikaárátta Samtal um vald, sjálfsmynd og ófullkomleika Íris Ellenberger sagnfræðingur Sigurjón Baldur Hafsteinsson mannfræðingur Unnar Örn J. Auðarson Stjórnandi Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og heimspekingur
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.41.2012
|