Listasafn Islands

Erró - Mannlýsingar - Dúkkur

28. maí - 29. ágúst 2010

Hafnarhús

Dúkkur eru ekki algengt myndefni í listasögunni. Erró kom því mörgum á óvart þegar hann í lok 9. áratugarins hóf að gera samklippimyndir og síðar málverk þar sem myndir af gömlum dúkkum frá því fyrir fyrri heimsstyrjöld eru í fyrrirúmi.

Snilli og styrkur þessara verka kemur annars vegar fram í samtalinu milli brúðanna, dauðra hluta með mannlega ásýnd, og hins vegar portrettmynda af mannfólki í sögulegu samhengi og með augljósa og sterka menningarlega og fagurfræðilega skírskotun.
Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.


Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.42.2012