Listasafn Islands

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2010

24. apríl - 9. maí 2010

Hafnarhús

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands
Verk nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Opnun laugardaginn 24. apríl kl. 14.00.

Tískusýning útskriftarnemenda í fatahönnun  - föstudaginn 23.  apríl kl. 20.00
 Í Gamla Bykohúsinu við Hringbraut.

Vídeóskúlptúrar, ljósmyndir, skrímslabangsar, samtímalistasafn, barnabækur, ýmis húsgögn, málverk, myndljóð, íslenskir draugar, ímynd kvenna, myndasögur, ljósmyndir, leturtýpur, trilla, tónletur, samgönguvél, þjóðsagnareyjan, perlaðar andlitsmyndir, gjörningar, tölvuleikur, áttundi dagur sköpunarsögunnar, port-hópur, þátttökulist...

Þetta og margt fleira getur að líta á útskriftarsýningu nemenda myndlistardeildar og hönnunar-og arkitektúrdeildar Listaháskólans sem opnar laugardaginn 24. apríl kl.14.00 í Hafnarhúsi en sýningin er í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur. Í ár eru um 79 útskriftarnemendur sem sýna verk sín, 47 í hönnunar-og arkitekúrdeild og 32 í myndlistardeild.

Verk nemenda á sýningunni eru afrakstur þriggja ára náms við Listaháskólann þar sem markmiðið hefur verið að skapa nemendum aðstöðu til að mennta sig sem listamenn og gera þá reiðubúna að takast á við víðtæk viðfangsefni á skapandi og gagnrýninn hátt með forvitni, áræði og framsækni að leiðarljósi.

Sýningin stendur til 9. maí og er opin daglega frá kl. 10.00 – 17.00, fimmtudaga frá kl. 10.00 – 22.00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sýningarstjórar eru: Daníel Karl Björnsson, Jóhann Sigurðsson og Björn Guðbrandsson.

Boðið er upp á leiðsögn um sýninguna. Nánari upplýsingar veitir fræðsludeild safnsins í s: 590 1200 / netfang: fraedsludeild@reykjavik.is


Blaðamenn og ljósmyndarar geta hitt nemendur
í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi föstudaginn 23. apríl kl. 11.00-11.45
auk þess sem nemendur eru að vinna við uppsetningu í safninu dagana á undan opnun.

Nánari upplýsingar veitir Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningarstjóri L.H.Í í s: 545 2214 / 864 2211


Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.43.2012