Vanitas, kyrralíf í íslenskri samtímalist
20. maí – 29. ágúst 2010
Hafnarhús
Sýning á myndverkum sem flokka má sem kyrralífsmyndir þó að í mörgum tilfellum hafi þau ekki verið hugsuð sem slík. Með því að setja verkin í nýtt samhengi listasögunnar er ætlunin að draga fram ákveðin einkenni á efnistökum og uppsetningu verkana en einnig að beina athyglinni að þeirri áminningu um hverfugleika og endurnýjun sem má finna í mörgum þeirra.
Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Dieter Roth, Bragi Ásgeirsson, Ólöf Nordal, Haraldur Jónsson, Áslaug Thorlacius, Rósa Gísladóttir, Spessi, Ragnhildur Stefánsdóttir, Ólafur Gíslason, Magnús Tómasson og Jóhannes S. Kjarval. Sýningarstjóri Hafþór Yngvason. Grein sýningarstjóra,(pdf) Sunnudag 6. júní kl. 15 Hafnarhús – Kyrralíf Sýningastjóraspjall. Hafþór Yngvason ræðir við gesti um sýninguna.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.45.2012
|