Listasafn Reykjavíkur

Ósk Vilhjálmsdóttir

22. september 2011 – 1. janúar 2012

Hafnarhús

Á síðustu árum hefur Listasafn Reykjavíkur leitast við að tengjast almenningsrými borgarinnar og efna til þjóðfélagslegrar umræðu innan veggja safnsins. Ósk Vilhjálmsdóttir er sjötti listamaðurinn sem gerir sérstaka innsetningu í A-sal Hafnarhússins með þetta að leiðarljósi. Um innsetningu sína segir Ósk: „Á botninum og hlaupum í hringi. Bítum í skott.  Erum munstruð á skip sem hangir fast á einkennilegum stað. Er þetta ljóslogandi gróðurhús. Eða tjald í hauströkkri, er einhver þarna? Við höfum alltaf verið á þessu skipi.  Það hefur alltaf hangið þarna.  Inni í því rúmast dýrin og mennirnir, heill heimur.” 

Dagskrá:

Fimmtudag 6. október kl. 20
Hafnarhús – Tígrisdýrasmjör
Myndlistarmaðurinn Ósk Vilhjálmsdóttir og Hlynur Helgason myndlistarmaður og heimspekingur ræða við gesti um sýninguna.

Sunnudag 4. desember kl. 15
Hafnarhús – Tígrisdýrasmjör
Almenn leiðsögn.

Prenta Til baka
Ósk Vilhjálmsdóttir - Tígrisdýrasmjör

Ósk Vilhjálmsdóttir - Tígrisdýrasmjör





 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00