Listasafn Reykjavíkur

Fræðsla og viðburðir

Allir viðburðir fara fram á íslensku nema annað sé tekið fram.


Febrúar

Laugardag 4. febrúar kl. 13 – 16
Hafnarhús – Málþing um myndlist í almenningsrými
Í tilefni af 40 ára afmæli Myndhöggvarafélags Reykjavíkur er efnt til málþings í samvinnu
við Listasafn Reykjavíkur. Meðal þátttakenda eru Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur og myndlistarmennirnir Sara Riel og Ólafur S. Gíslason.

Sunnudag 5. febrúar kl. 14
Ásmundarsafn – Frá hugmynd að höggmynd
Leiðsögn með áherslu á útilistaverk Ásmundar Sveinssonar og verk í opinberu rými.

Föstudag 10. febrúar kl. 19 - 24
Safnanótt 2012
Fjölbreytt dagskrá í öllum húsum Listasafns Reykjavíkur.

Sunnudag 12. febrúar kl. 15
Kjarvalsstaðir – Kjarval
Leiðsögn og umræður um lykilverk meistara Jóhannesar S. Kjarvals.

Miðvikudag 15. febrúar kl. 20
Kjarvalsstaðir – Jaðarber  Aldarafmæli John Cage
Tónskáldið John Milton Cage Jr. fæddist 5. september 1912. Hans er nú minnst um allan heim fyrir þau stórtæku áhrif sem hann hafði á tónlistarheiminn á ferli sínum. Á tónleikunum verður ferill hans rakinn og þverskurður tekinn af tónlist hans. Samstarfsverkefni.

Fimmtudag 16. febrúar kl. 20
Hafnarhús – Hönnun
Fyrirlestur Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Samstarfsverkefni.

Laugardag 18. febrúar kl. 15
Hafnarhús – Destroyed Word
Gjörningur í porti Hafnarhússins í tengslum við sýningu Santiagos Sierras.

Sunnudag 19. febrúar kl. 15
Hafnarhús – Santiago Sierra
Leiðsögn og umræður fyrir ungt fólk.

Laugardag 25. febrúar kl. 13-17
Hafnarhús – LornaLAB
LornaLAB smiðja í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.

Sunnudag 26. febrúar kl. 15
Kjarvalsstaðir – Snøhetta
Gestaspjall með Hans Jóhannssyni fiðlusmiði.

Mars

Laugardag 3. mars kl. 22
Hafnarhús –Tectonics
Samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á lokakvöldi nútímahátíðar sem fram fer dagana 1. - 3. mars. Aðalstjórnandi Sinfóníunnar, Ilan Volkov, stýrir nýrri árvissri tónlistarhátíð í Reykjavík sem verður helguð nýrri tónlist; jafnt innlendri sem erlendri í samstarfi við tónlistarmenn úr ýmsum áttum.

Sunnudag 4. mars kl. 15
Kjarvalsstaðir – Karen Agnete
Gestaspjall með Sigurlaugi Ingólfssyni sagnfræðingi.

Sunnudag 11. mars kl. 14
Hafnarhús – Santiago Sierra
NEI! – Málþing um róttækni og andóf
Málþing sem haldið er í tengslum við sýningu Santiagos Sierrras þar sem könnuð eru einkenni og markmið andófslistar sem og hugsanleg mörk andófs og listar. Einnig verður hugað að andófi sem ákveðinni list, er byggir á færni og hugmyndaauðgi. Stjórnandi er Egill Arnarson, heimspekingur.

Fimmtudag 15. mars kl. 20
Hafnarhús – Hönnun
Fyrirlestur Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Samstarfsverkefni.

Sunnudag 18. mars kl. 15
Kjarvalsstaðir – Tákn og áferð
Fjölskylduleiðsögn og smiðja.

Sunnudag 18. mars kl. 20
Hafnarhús – Jaðarber  Bláberjasulta
Fyrstu tónleikar norsk / bandaríska slagverkstríósins NorthArc, sem er að hefja tónleikaferðalag um Norðurlöndin. Tríóið frumflytur þrjú verk eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur, Antoniu Barnett-McIntosh og Carolyn Chen. Á tónleikunum leika þau einnig Dressur eftir Mauricio Kagel og Stele eftir Gérard Grisey. Sjá: www.northarc.no.

Miðvikudag 21. mars kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Breski listfræðingurinn og myndlistargagnrýnandinn Claire Bishop er annar gestur og þátttakandi í fyrirlestraröðinni Umræðuþræðir.

Sunnudag 25. mars kl. 15
Kjarvalsstaðir – Tàpies
Katalónsk saga og menning. Viðburður sem haldinn er í tengslum við sýningu katalónska listamannsins Antonis Tàpies.

Miðvikudag 28. mars kl. 20
Kjarvalsstaðir – Jaðarber Grams
Á tónleikunum verður dótakassinn opnaður með frumfluttum verkum sem hafa
eitthvað með dót og leiki að gera. Flytjendur eru Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari, Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari og Frank Aarnink
slagverksleikari. Samstarfsverkefni.

Apríl

Sunnudag 1. apríl kl. 14
Ásmundarsafn – Fjölskylduleiðsögn
Satt eða logið. Leiðsögn fyrir alla fjölskylduna í tilefni dagsins.

Fimmtudag 12. apríl kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Bandaríski sýningarstjórinn Helen Molesworth er þriðji gestur og þátttakandi í fyrirlestraröðinni Umræðuþræðir.

Föstudag 13. apríl kl. 12:15
Kjarvalsstaðir – Tríó Reykjavíkur
Klassískar tónlistarperlur fyrir alla.
Samstarfsverkefni.

Laugardag 14. apríl kl. 13 - 17
Hafnarhús – LornaLAB
LornaLAB smiðja í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.

Sunnudag 15. apríl kl. 15
Kjarvalsstaðir – Tàpies
Gestaspjall. Myndlistarmennirnir Ingibjörg Jónsdóttir og Rebekka Rán Samper ræða við gesti um sýningu Tàpies.

Dagana 17. – 24. apríl
Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2012
Fjölbreytt dagskrá í öllum húsum safnsins.

Dagana 21. apríl – 6. maí
Hafnarhús – Útskrifarsýning LHÍ
Fjölbreytt dagskrá í tengslum við útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands.

Fimmtudag 26. apríl kl. 20
Hafnarhús - Hönnun
Fyrirlestur Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Samstarfsverkefni.

Til að fá frekari upplýsingar um viðburði á Listasafni Reykjavíkur
hafið samband við afgreiðslur húsanna eða í síma: 590 1200

Prenta

Safnfræðsla 2011-2012

Kennslupakki Listasafns Reykjavikur


Hvað er svona skemmtilegt við safn ?



Sápukúlusmiðja, ljósmynd anna kristín scheving

Safnfræðsla ásmundarsafni

Safnfræðsla ásmundarsafni

Safnfræðsla ásmundarsafni

Safnfræðsla ásmundarsafni - styttuleikur

Leirsmiðja ásmundarsafni

Leirsmiðja




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00