Kjarvalsstaðir - Íslensk myndlist 1900-1950
Leiðsögn á ensku á Kjarvalsstöðum alla föstudaga kl. 11, í júní, júlí og ágúst.
Mánudag 10. júní kl. 20
Hafnarhús - Tónleikar
Duo Harpverk - Nordic cool revisited
Aðgangseyrir 1.500.-
Sunnudag 16. júní kl. 15
Hafnarhús - Kaflaskipti
Sýningarstjóra- og listamannaspjall - Shauna Laurel Jones, sýningarstjóri ræðir við Huginn Þór Arason myndlistarmann.
Þriðjudag 18. júní kl. 19.30
Viðey - Útilistaverkaganga í Viðey
Heiðar Kári Rannversson leiðir göngu um útilistaverkin í Viðey. Siglt er frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19.15 og fer til baka um 22:00. Leiðsögnin hefst við Viðeyjarstofu.
Sunnudag 23. júní kl. 15
Kjarvalsstaðir - Íslensk myndlist 1900-1950
Fjölskylduleiðsögn og smiðja. Leiðsögumenn eru Anja Ísabella og Fríða Dís, listfræðinemar.
Júlí
Kjarvalsstaðir - Íslensk myndlist 1900-1950
Leiðsögn á ensku á Kjarvalsstöðum alla föstudaga kl. 11, í júní, júlí og ágúst.
Fimmtudag 4. júlí kl. 20
Kvöldganga að Streymi tímans
Kvöldganga Listasafns Reykjavíkur. Gengið verður að verki Sólveigar Aðalsteinsdóttur, Streymi tímans í Litluhlíð, Öskjuhlíð og rætt um jarðfræði svæðisins. Gangan hefst við Kjarvalsstaði.
Fimmtudag 11. júlí kl. 20
Reykjavík safarí – fjölmenningarleg kvöldganga
Menningarlífið í miðborginni er kynnt á spænsku, pólsku, ensku, litháensku og tælensku. Hvar eru leikhúsin, listasöfnin og aðrir skemmtilegir staðir? Hvað er í boði fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna? Lagt er uppi frá Grófarhúsi.
Helgina 13. -14. júlí kl. 20-22
Kjarvalsstaðir - tónleikar
FRUM-hátíðin
Frum- er nútímatónlistarhátíð þar sem lögð er áhersla á að kynna meistaraverk nútímatónbókmentanna fyrir tónlistarunnendum, verk sem þegar hafa sett mark sitt á tónlistarsöguna en eru þó sjaldheyrð í tónleikahúsum Reykjavíkur. Eins eru alla jafnan flutt tónverk eftir yngri kynslóð tónskálda og hátíðin því kjörinn vettvangur til að kynnast alþjóðlegum straumum og stefnum í nútímatónlist. Kammerhópurinn Adapter stendur að hátíðinni í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur.
Ágúst
Kjarvalsstaðir - Íslensk myndlist 1900-1950
Leiðsögn á ensku á Kjarvalsstöðum alla föstudaga kl. 11, í júní, júlí og ágúst.
Fimmtudag 1. ágúst kl. 20
Kvöldganga um höggmyndagarð Hallsteins í Gufunesi.
Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur leiðir göngu um Hallsteins Sigurðssonar.
Sunnudag 11. ágúst kl. 15
Ásmundarsafn - Sagnabrunnur
Ásmundur og bókmenntirnar. Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur og þýðandi tekur þátt í leiðsögn.
Fimmtudag 15. ágúst kl. 20
Kvöldgöngur - Knæpuganga
Minjasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafn og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir sameiginlegri kvöldgöngu.
Laugardag 17. ágúst
Hafnarhús - Magnús Pálsson: Lúðurhljómur í skókassa
Málþing um feril og störf Magnúsar Pálssonar, myndlistarmanns í tilefni sýningarinnar. Stjórnandi málþingsins er Jón Proppé.
Sunnudag 18. ágúst kl. 15
Hafnarhús - Magnús Pálsson: Lúðurhljómur í skókassa
Almenn leiðsögn um sýninguna.
Fimmtudag 22. ágúst kl. 17-19
Hafnarhús - hönnun
Fyrirlestrarröð Hönnunarmiðstöðvar unnin í tengslum við sýninguna Kaflaskipti.
Laugardag 24. ágúst
Menningarnótt
Fjölbreytt dagskrá í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum.
Fimmtudag 29. ágúst kl. 17-19
Kjarvalsstaðir - fræðslumöguleikar
Kynning á framboði og fræðslumöguleikum Listasafns Reykjavíkur fyrir skólaárið 2013-2014. Viðburðurinn er öllum opinn án endurgjalds.