Listasafn Reykjavíkur

Fræðsla og viðburðir

Allir viðburðir fara fram á íslensku nema annað sé tekið fram.
  
 

Maí


Sunnudag 13. maí kl. 14
Ásmundarsafn – Inn í kviku
Sýningarstjóraspjall. Kristín Guðnadóttir og Steinunn Helgadóttir ræða við gesti.

Miðvikudag 16. maí kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
- Vegna persónulegra ástæðna Alönnu Heiss fellur fyrirlesturinn niður þar til í haust.
Bandaríski sýningarstjórinn Alanna Heiss er síðasti gestur í fyrirlestraröðinni
Umræðuþræðir á vorönn 2012. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er styrktur af Bandaríska sendiráðinu á Íslandi. Aðgangur ókeypis. Samstarfsverkefni.

19. maí – 3. júní
Listahátíð í Reykjavík 2012 „Sjálfstætt fólk“
Fjölbreytt dagskrá meðal þátttakenda í verkefninu fer fram í ýmsum sýningarýmum borgarinnar. Nánari upplýsingar: www.independentpeople.is

Laugardag 19. maí kl. 21-23
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Raflost & Steina
Vídeó listamaðurinn Steina flytur verkið Violin Power í portinu, en hún er sérstakur gestur Raflosts, Hátíðar íslenskrar raftónlistar, þetta ár. Aðrir flytjendur eru Arduino-bandið og Hestbak sem flytur verk eftir meðlimi S.L.Á.T.U.R.s.

Mánudag 21. maí kl. 15-17
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
The Leyline Project
Listamennirnir Steingrímur Eyfjörð & Sparre leiða rannsóknarsmiðju um Jarðárur.

Miðvikudag 23. maí kl. 14-16
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Raflost & Steina
Steina tekur þátt í spjalli um verk sín ásamt öðrum listamönnum hátíðarinnar.
Viðburðurinn fer fram á ensku.

Fimmtudag 24. maí kl. 12:15
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Hlynur Hallsson & Jóna Hlíf Halldórsdóttir
JBK Ransu myndlistarmaður og listgagnrýnandi flytur hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna.

Fimmtudag 24. maí kl. 17
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Sýningarstjórinn Jonatan Habib Engqvist leiðir spjall um sýningarnar með þátttöku
listamannanna. Viðburðurinn fer fram á ensku.

Fimmtudag 31. maí kl. 12:15
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Hlynur Hallsson & Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Arnar Eggert Thoroddsen tónlistargagnrýnandi og Hjálmar Stefán Brynjólfsson lögfræðingur flytja hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna.

 

Júní
 

Leiðsögn á ensku á Kjarvalsstöðum alla föstudaga kl. 11, í júní, júlí og ágúst.

 

Sunnudag 3. júní kl. 15
Kjarvalsstaðir – Gálgaklettur og órar sjónskynsins
Sýningarstjóraspjall. Ólafur Gíslason ræðir við gesti um sýninguna.

Fimmtudag 7. júní kl. 12:15
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Hlynur Hallsson & Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Þóranna Björnsdóttir mynd- og hljóðlistamaður og Þráinn Hjálmarsson tónskáld flytja hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna.

Sunnudag 10. júní kl. 15
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Elin Strand Ruin + The New Beauty Council Prjónakaffi í tengslum við sýninguna.

Sunnudag 10. júní kl. 20
Kjarvalsstaðir – FRUM
Árviss nútímatónlistarhátíð, sem kammerhópurinn Adapter og Listasafn Reykjavíkur standa saman að. Á tónleikunum verða í bland frumflutt ný verk sem og verk eftir samtímameistara. Flytjendur eru Kristjana Helgadóttir alt- og bassaflautuleikari og Ingólfur Vilhjálmsson klarínettu- og bassaklarínettuleikari.

Fimmtudag 14. júní kl. 12:15
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Hlynur Hallsson & Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Hlynur Helgason myndlistarmaður og heimspekingur flytur hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna.

Fimmtudag 14. júní kl. 20-22
Kvöldganga – Gálgaganga
Jónatan Garðarsson, fjölmiðla- og fræðimaður leiðir göngu að Kjarvalsreitinum í Gálgahrauni í tengslum við sýninguna Gálgaklettur og órar sjónskynsins á Kjarvalsstöðum. Gangan hefst við Hraunvík nærri Sjálands- og Ásahverfum. Rútuferð frá Grófarhúsi kl. 19:30.

Laugardag 23. júní kl. 13-17
Hafnarhús – LornaLAB
LornaLAB – smiðja unnin í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur. Aðgangur ókeypis.

Sunnudag 24. júní kl. 15
Kjarvalsstaðir – Gálgaklettur og órar sjónskynsins
Fjölskylduleiðsögn og smiðja.


Júlí


Fimmtudag 5. júlí kl. 20
Reykjavík safarí – fjölmenningarleg kvöldganga
Menningarlífið í miðborginni er kynnt á spænsku, pólsku, ensku, litháensku og tælensku. Hvar eru leikhúsin, listasöfnin og aðrir skemmtilegir staðir? Hvað er í boði fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna? Lagt er uppi frá Grófarhúsi.

Fimmtudag 19. júlí kl. 20
Kvöldganga fyrir „Sjálfstætt fólk“
Listasafn Reykjavíkur leiðir göngu um sögu listamannarekinna rýma í Reykjavík í samvinnu við Nýlistasafnið. Lagt upp frá Grófarhúsi.

Þriðjudag 31. júlí kl. 19:30
Viðey – Útilistaverkaganga í Viðey
Heiðar Kári Rannversson, meistaranemi í listfræði leiðir göngu um útilistaverk Richard Serra og Yoko Ono í Viðey. Siglt er frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15 og til baka um 22:00. Leiðsögnin hefst við Viðeyjarstofu.

 

Ágúst

 

Fimmtudag 9. ágúst kl. 12:15
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Hlynur Hallsson & Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Tinna Grétarsdóttir mannfræðingur flytur hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna.

Sunnudag 12. ágúst kl. 14
Ásmundarsafn – Inn í kviku
Fjölskylduleiðsögn.

Fimmtudag 16. ágúst kl. 12:15
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Hlynur Hallsson & Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Halldór Úlfarsson myndlistarmaður og Páll Ivan Pálsson tónskáld flytja hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna.

Fimmtudag 16. ágúst kl. 20
Kvöldganga - HÍ101
Minjasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafn og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir sameiginlegri kvöldgöngu um Háskólasvæðið.

Laugardag 18. ágúst
Menningarnótt
Fjölbreytt dagskrá í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum.

Fimmtudag 23. ágúst kl. 12:15
Hafnarhús – „Sjálfstætt fólk“
Hlynur Hallsson & Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Skipuleggjendur Endemis, tímarits um samtímalist íslenskra kvenna, flytja hádegisfyrirlestur í tengslum við sýninguna.

Sunnudag 26. ágúst kl. 15
Kjarvalsstaðir – Gálgaklettur og órar sjónskynsins
Listamenn taka þátt í spjalli um sýninguna.

Þriðjudag 28. ágúst – laugardags 1. september
Hafnarhús & Kjarvalsstaðir - UNM – Music Innovation
Ísland er í gestgjafahlutverki Ung Nordisk Musik tónlistarhátíðarinnar sem fram fer í Reykjavík að þessu sinni. Listasafn Rekjavíkur gengur til samstarfs við hátíðina með smiðju og tónleikum í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum. Á hátíðinni er lögð áhersla á nýsköpun í hljóðfæragerð og notkun hljóðfæranna í verkum nútímatónskálda.

Miðvikudag 29. ágúst kl. 15-18
Hafnarhús – UNM smiðja
Á UNM hátíðinni verða haldnar opnar smiðjur þar sem fimm tónskáld starfa saman, eitt frá hverju þátttökulandanna. Þau munu í samstarfi við íslenska hljóðfærauppfinningamenn prófa ný íslensk hljóðfæri, gera hljóðprufur og vinna að spunaverki.

Fimmtudag 30. ágúst kl. 17-19
Kjarvalsstaðir – fræðslumöguleikar
Kynning á framboði og fræðslumöguleikum Listasafns Reykjavíkur fyrir skólaárið 2012-2013. Viðburðurinn er öllum opinn án endurgjalds.

Föstudag 31. ágúst kl. 15-18
Hafnarhús – UNM smiðja
Framhald á opinni smiðju UNM frá miðvikudeginum.

Föstudag 31. ágúst kl. 20
Hafnarhús – UNM & Jaðarbers tónleikar
Á tónleikunum má heyra afrakstur frá tveggja daga smiðjum tónskálda á UNM hátíðinni. Einnig verður fluttur strengjakvartett eftir Viktor Orra Árnason og verk fyrir mjög umbreytt hljóðfæri, stóla, nótnastatíf, ljós og súkkulaði svo eitthvað sé nefnt.

Laugardag 1. september kl. 16
Kjarvalsstaðir – UNM & Elektra ensemble tónleikar
Kammertónleikar þar sem leikin verða verk eftir Petter Ekman (IS), Sebastian Ingvarsson (SE), Martin Stauning (DK) og Øyvind Mæland (NO). Tónleikarnir eru hluti af röð þriggja tónleika, sem fara fram á ólíkum stöðum sama dag.


 

Til að fá frekari upplýsingar um viðburði á Listasafni Reykjavíkur
hafið samband við afgreiðslur húsanna eða í síma: 590 1200

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Prenta

Safnfræðsla 2011-2012

Kennslupakki Listasafns Reykjavikur


Hvað er svona skemmtilegt við safn ?



Sápukúlusmiðja, ljósmynd anna kristín scheving

Safnfræðsla ásmundarsafni

Safnfræðsla ásmundarsafni

Safnfræðsla ásmundarsafni

Safnfræðsla ásmundarsafni - styttuleikur

Leirsmiðja ásmundarsafni

Leirsmiðja




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00