Safneign
Safneign Listasafns Reykjavíkur samanstendur af fimm söfnum: Almennu listaverkaeigninni, Errósafni, Kjarvalssafni, Ásmundarsafni og byggingarlistarsafni. Þessi söfn hafa orðið til ýmist fyrir stórmannlegar gjafir listamanna eða einstaklinga, langtímalán verka eða kaup á listaverkum. Einnig hefur safnið umsjón með útilistaverkum og er ráðgefandi varðandi þau verk sem sett eru upp á opinberum svæðum í borginni. Almenna listaverkaeignin samanstendur af verkum sem Reykjavíkurborg, síðar Kjarvalsstaðir og nú Listasafn Reykjavíkur hefur eignast með kaupum eða gjöfum frá því um miðbik síðustu aldar til dagsins í dag.
Prenta