Listasafn Islands

Erró – Mannlýsingar

28. maí 2009 – 29. ágúst 2010

Hafnarhús

Árið 2009 verður helgað glæsilegri listaverkagjöf sem Erró færði Reykjavíkurborg árið 1989, eða fyrir tuttugu árum síðan. Á árinu verða haldnar nýjar sýningar og boðið upp á fjölbreytta viðburði í Hafnarhúsinu. Á sýningunni Erró – Mannlýsingar er lögð áhersla á svokallaða frásagnar portretta eða mannlýsingar sem Erró hefur þróað í gegnum tíðina. Verkin eru af ýmsum þekktum einstaklingum heims á sviði stjórnmála, vísinda, bókmennta og lista og endurspegla ímyndir og hugmyndir þeirra. Hluti verkanna verða á sýndur til lengri tíma á meðan önnur eru breytileg eftir þemum á borð við Andlitsmyndum af ófreskjum (28. maí – 30. ágúst), Japönskum ástarbréfum (3. sept. – 31. des.) og síðar Dúkkum, Geimförum og Konum frá N-Afríku. Vönduð bók verður gefin út í tengslum við sýninguna.

Sýningarstjóri: Danielle Kvaran.

Formáli Hafþór Yngvason safnstjóri

Erró eða portrettmyndin sem endurómun. Eftir Danielle Kvaran.


Sunnudag 29. nóvember kl. 15 
Hafnarhús – Mannlýsingar
Þorsteinn Vilhjálmsson vísindasagnfræðingur kynnir gestum verkfræðinga og vísindamenn í verkum Errós.

Sunnudag 13. desember kl. 15 
Hafnarhús – Mannlýsingar
Sigfríður Björnsdóttir tónlistarsagnfræðingur leiðir gesti í gegnum tónlistarsöguna með Mannlýsingum Errós og leiknum tóndæmum.





Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.48.2012