Ljóslitlífun

15. janúar — 11. apríl 2010

Hafnarhús

LJÓSLITLÍFUN

Þessari sýningu er ætlað að kynna hóp ungra íslenskra listamanna sem hafa lagt stund á málaralistina á síðustu árum. Þótt ekki sé um einn sameiginlegan stíl eða stefnu að ræða á hópurinn það sammerkt að hafa alist upp við sjónmenningu – mótaða af myndasögum, teiknimyndum, tölvugrafík og götulist – sem hefur haft áhrif á verk hans og aðskilið hann frá fyrri stefnum málaralistarinnar. Áhrifin sjást í formrænum þáttum fremur en í myndefninu. Þótt sum listaverkin styðjist við fundið efni úr dægurmenningunni spretta flest þeirra úr hugarheimi listamannanna sjálfra. Í formi eru verkin höll undir flata og vel afmarkaða fleti og ótónaða liti, eins og teiknimyndir og myndasögur. Þau eru gjarnan fígúratíf (sýna fólk eða verur) og glettin án þess að vera kaldhæðin. Litagleðin er gegnumgangandi. Engu að síður eru verkin ekki einsleit. Sum eru grófgerð og tilfinningaþrungin en önnur hófstillt og öguð, með vandlega dregnum formum og mynstri. Sum eru máluð með iðnaðarmálningu á gróf tréspjöld, önnur með listamannableki á fíngerðan pappír og í sumum þeirra stendur málningin ein án undirstöðu.

Titillinn Ljóslitlífun er nýyrði sem varð til með því að snúa öðru atkvæðinu í ljóstillífun svo að úr varð „lit“, eða orðið „litur“ í þolfalli. Það vísar til umbreytingar sem verður fyrir tilstilli ljóss, sem má taka sem margræða líkingu fyrir málun.

Listamennirnir eru Davíð Örn Halldórsson, Gabríela Friðriksdóttir, Guðmundur Thoroddsen, Heimir Björgúlfsson, Helgi Þórsson, Jón Henrysson, Ragnar Jónasson, Sara Riel, Sigga Björg Sigurðardóttir, Sigtryggur Berg Sigmarsson og Þórdís Aðalsteinsdóttir.

Sýningarstjóri Hafþór Yngvason

Texti sýningarstjóra

CV

Sunnudag 17. janúar kl. 15
Hafnarhús – Ljóslitlífun
Listamannaspjall með Heimi Björgúlfsyni, Ragari Jónassyni og Guðmundi Thoroddsen.

Laugardag 30. janúar kl. 14
Hafnarhús – Ljóslitlífun
Dagskrá fyrir alla fjölskylduna í tengslum við sýninguna Ljóslitlífun.

Sunnudag 21. febrúar kl. 15
Hafnarhús – Ljóslitlífun
Umræður með þátttöku listamannanna og sýningarstjóra.

Sunnudag 21. mars kl. 15
Hafnarhús – Ljóslitlifun
Listamannaspjall. Sigtryggur Berg Sigmarsson, Davíð Örn Halldórsson, Helgi Þórsson og Sara Riel.

Sunnudag 11. apríl kl. 15
Hafnarhús – Ljóslitlífun
Listamannaspjall. Sigga Björg Sigurðardóttir, Jón Henrysson og Gabríela Friðriksdóttir.

Prenta Til baka
Guðmundur Thoroddsen, Spýtur dulbúnar sem spýtur, 2009

Guðmundur Thoroddsen, Spýtur dulbúnar sem spýtur, 2009





 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 22:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið: Laugardaga og sunnudaga 13:00-16:00