D16 Katrín Elvarsdóttir
25. febrúar - 11. apríl 2010
Hafnarhús
Katrín Elvarsdóttir lauk B.F.A. gráðu frá Art Institute of Boston árið 1993 og hefur síðan þá sýnt víða, bæði í Bandaríkjunum, Evrópu og á Íslandi.
Með sýningunni Hvergiland býður Katrín okkur að stíga inn í veruleika sem orðin er til í beinu framhaldi af öðrum sýningum hennar, s.s. Sporlaust, Af þessum heimi og Margsögu. Líkt og með þeim sýningum býr Katrín hér til veruleika sem áhorfandinn á þátt í að gefa innihald.
Við erum stödd í heimi sem sprottinn er úr raunveruleikanum sjálfum, heimi sem er hvergi til en hefur engu að síður orðið til úr áþreifanlegu efni. Við erum stödd í veruleika sem verður til þegar ímyndunaraflið mætir því sem augað nemur.“
Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.
Inngangur
Prenta Til baka
Katrín Elvarsdóttir, Hvergiland, 2009