Listasafn Islands

Mel Ramos

18. september - 7. nóvember 2010

Hafnarhús

Nýlega færði austurríski galleríistinn Ernst Hilger Listasafni Reykjavíkur glæsilega listaverkagjöf, sem saman stendur af þrjátíu grafíkverkum eftir bandaríska popplistamanninn Mel Ramos (1935).

Ramos er einn helsti brautryðjandi popplistar á vesturströnd Bandaríkjanna, en verk hans einkennast af háðskri ádeilu á notkun kvenlíkamans sem markaðsvöru í fjölmiðlum, auglýsingum og á hinum almenna neytendamarkaði. Listaverkagjöfin spannar verk sem gerð eru á árunum 1996–2009 og er um helmingur þeirra til sýnis núna.

Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.

Mel Ramos Videó


Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.51.2012