Erró – Teikningar
3. september 2011 – 19. ágúst 2012
Hafnarhús
Teikningin er sú grein Errós sem hann er hvað minnst þekktur fyrir, en á sýningunni eru sýnd um 200 slík verk.
Verkin vann listamaðurinn frá árinu 1944 til vorra daga og beitti fjölbreyttri tækni og aðferðum við gerð þeirra.
Ákveðin þáttaskil urðu í sköpun Errós í byrjun sjöunda áratugarins þegar samklippiverk hans litu fyrst dagsins ljós. Við það gaf hann grafíska sköpun endanlega upp á bátinn og klippimyndirnar urðu skissur að málverkum, grafíkverkum og vatnslitamyndum.
Höndin var ekki lengur aðal túlkandinn í myndverkinu heldur fyrst og fremst tæki til að yfirfæra myndir á pappír, striga og aðra miðla, oft með hjálp skuggamyndavéla eða skjávarpa.
Sýningin er skipulögð í náinni samvinnu við Erró og byggð á verkum sem koma úr einkasafni listamannsins og safneign Listasafns Reykjavíkur.
Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.
Bæklingur.
Dagskrá:
Sunnudag 4. september kl. 14
Hafnarhús – Erró teikningar
Fjölskylduleiðsögn og teiknismiðja.
Sunnudag 6. nóvember kl. 15
Hafnarhús – Erró-teikningar &Attarsee
Almenn leiðsögn.
Prenta Til baka
Erró, Án titils (Skissa fyrir málverk „The Devil of Pompei‟) úr seríunni Beinagrindurnar (1955-1957), 1955