Errósafnið - Listamaður verður til
9. september - 23. apríl 2006
Hafnarhús
Á sýningunni má sjá ýmis verk Erró frá barnsaldri þar til hann hélt sína fyrstu einkasýningu á Íslandi í Listamannskálanum árið 1957. Sýndar eru myndir sem hann gerði á uppvaxtarárum sínum á Kirkjubæjarklaustri, á námskeiði sem unglingur í Handíðaskólanum í Reykjavík og síðar sem fullgildur nemandi við þann skóla, ásamt myndum frá námsárum hans við Akademíuna í Osló, Flórens og Ravenna. Öll verkin á sýningunni eru úr Errósafni Listasafns Reykjavíkur og gefa áhugaverða mynd af hæfileikaríkum og vinnusömum, ungum manni sem frá barnæsku einsetti sér að verða listamaður.
Sýningarstjóri er Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 24.45.2013
|