Ný list verður til
10. september – 6. nóvember 2011
Kjarvalsstaðir
Hvað gerist þegar eitt skeið í listum víkur fyrir öðru? Verða skörp skil þar sem einn straumur hverfur inn í annan eða myndast iður og straumköst? Þessum spurningum snýr sýningarstjórinn Jón Proppé upp á miðjan sjöunda áratug síðustu aldar, en þá var eins og allar gáttir opnuðust. Afdrifarík kynslóðaskipti urðu í íslenskri myndlist þar sem hin lífsseiga landslagslist svaraði ekki lengur kröfum tímans og abstraktið, sem hafði verið ráðandi í áratug, varð að víkja. Sams konar umskipti urðu í bókmenntum, leiklist og tónlist, og áhrifin flæddu milli listgreina.
Nýja kynslóðin vildi eitthvað allt annað og virtist tilbúin að skoða ólíklegustu kima til að leita sér innblásturs. Á sýningunni verður listsköpun þessa tíma skoðuð og andrúmsloftið í listaheiminum þegar ný list var að verða til. Mörg verkanna á sýningunni hafa sjaldan eða aldrei komið fyrir almennings sjónir en að baki þeim stendur allstór hópur þekktra listamanna. Svipmyndir frá tímabilinu birtast í blaðagreinum, bókum, upptökum og fleiru auk þess sem dregnar eru fram í dagsljósið fágætar ljósmyndir frá sýningum og gjörningum. Til að fanga andrúmsloft tímabilsins verða sýnd viðtöl við listamenn, sem settu sterkan svip á tímabilið, en þau voru gerð sérstaklega fyrir sýninguna.
Öflug viðburðardagskrá verður í gangi allt sýningartímabilið þar sem kunnir forkólfar hinna ýmsu listgreina varpa ljósi á umbrotin sem áttu sér stað með tónlistargjörningum, upplestri, fyrirlestrum og umræðum.
Verk eftir þessa listamenn eru á sýningunni:
Jón Gunnar Árnason, Dieter Roth, Jóhann Eyfells, Magnús Tómasson, Róska, Sigurjón Jóhannsson, Magnús Pálsson, Jes Einar Þorsteinsson, Gunnar S. Magnússon, Vilhjálmur Bergsson, Tryggvi Ólafsson, Kristján Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Erró, Dagur Sigurðarson, Alfreð Flóki og Magnús Blöndal Jóhannsson.
Dagskrá:
Sunnudag 18. september kl. 15
Kjarvalsstaðir – Ný list verður til & Jaðarber
Sýningarstjóraspjall og gjörningur. Jón Proppé listheimspekingur ræðir við gesti um sýninguna og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari flytur tónlistargjörning í tengslum við tónlistarröðina Jaðarber.
Sunnudag 9. október kl. 15
Kjarvalsstaðir – Ný list verður til & Jaðarber
Bjarki Sveinbjörnsson forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands ræðir um tilraunir í tónlist á sjöunda áratugnum. Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari flytur tónlist frá tímabilinu í tengslum við tónlistarröðina Jaðarber.
Sunnudag 23. október kl. 15
Kjarvalsstaðir – Ný list verður til
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og stofnandi leikhópsins Grímu ræðir við Jón Proppé og aðra gesti um tilraunaleikhús og framúrstefnu á sjöunda áratugnum.
Miðvikudag 26. október kl. 20
Kjarvalsstaðir – Ný list verður til & Jaðarber
Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari flytur valin, íslensk tónverk frá sjöunda áratugnum í tengslum við sýninguna og tónleikaröðina Jaðarber.
Sunnudag 30. október kl. 15
Kjarvalsstaðir – Ný list verður til & Jaðarber
Jón Proppé sýningarstjóri fær til sín góða gesti og stýrir umræðum um nýjar raddir í bókmenntum um miðbik sjöunda áratugarins. Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari flytur tónlistargjörning í tengslum við sýninguna og tónleikaröðina Jaðarber.
Prenta Til baka