Snøhetta - Arkitektúr, landslagshönnun, innanhússhönnun
14. janúar – 4. mars 2012
Kjarvalsstaðir.
Norska arkitektastofan Snøhetta hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir byggingar sínar. Hún bar sigur úr bítum í alþjóðlegri samkeppni um gerð Bókasafnsins í Alexandríu og nýja Óperuhússins í Ósló; byggingum sem nú eru orðnar að þekktum kennileitum. Á 20 ára afmæli stofunnar árið 2009 var efnt til stórrar yfirlitssýningar í nýju byggingarlistardeildinni í Listasafni Noregs í Ósló og er úrval verka frá þeirri sýningu sýnt á Kjarvalsstöðum. Sýningin skiptist í átta hluta þar sem arkitektastofan og afrek hennar eru kynnt á fjölbreyttan og lifandi máta.
Sýningin er gerð með stuðningi frá Norska sendiráðinu á Íslandi og er haldin á vegum Norska utanríkisráðuneytisins.
Hún er sett upp af byggingar- og hönnunardeild Listasafns Noregs í náinni samvinnu við Snøhetta.
Sýningarstjóri er Eva Madshus, yfirsýningarstjóri byggingar- og hönnunardeildar Listasafns Noregs.
Dagskrá:
Sunnudag 15. janúar kl.15
Kjarvalsstaðir - Snøhetta
Málþing skipulagt í tengslum við sýningu Snøhetta. Sýningarstjórinn Eva Madshus fjallar um norska byggingarlist í samtímanum og Tarald Lundvall framkvæmdarstjóri Snøhetta fjallar um valin verkefni. Þátttakendur í pallborði eru Ólöf Örvarsdóttir og Baldur Ó. Svavarsson, en umræður taka einnig á norskum áhrifum á íslenska byggingarlist.
Upptökur frá málþinginu má nálgast hér.
Sunnudag 26. febrúar kl. 15
Kjarvalsstaðir – Snøhetta
Gestaspjall – Hans Jóhannsson, fiðlusmiður tekur þátt í umræðum.
WWW.SNOARC.NO
Prenta Til baka
King Abdulaziz Centre for World Culture