Draumlandið mitt í norðri – Karen Agnete Þórarinsson

14. janúar – 4. mars 2012

Kjarvalsstaðir.

Karen Agnete Þórarinsson ( 1903-1992) listmálari var ein hinna mörgu, dönsku kvenna sem fylgdu íslenskum eiginmönnum heim frá Kaupmannahöfn á fyrri hluta 20. aldar, eftir nám beggja við dönsku listaakademíuna. Hún hreifst af landi og þjóð og næstu sex áratugina málaði hún og sýndi verk sín víða um land og varð virtur og vel þekktur málari. Á sýningunni verður lögð áhersla á að kynna þá myndaflokka sem hún sem sinnti hvað mest en það voru mannamyndir, náttúrustemmur og blóm og kyrralíf. Titill sýningarinnar er sóttur í ljóð Einars Benediktssonar „Bláskógavegur“.

Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram.

Ferill Karen Agnete

Grein sýningarstjóra um Karen Agnete


Dagskrá:

Sunnudag 22. janúar kl. 15
Kjarvalsstaðir – Karen Agnete
Sýningarstjóraspjall. Hrafnhildur Schram ræðir við gesti um sýninguna.

Sunnudag 4. mars kl. 15
Kjarvalsstaðir – Karen Agnete
Gestaspjall - Sigurlaugur Ingólfsson, sagnfræðingur tekur þátt í umræðum.

Prenta Til baka
Karen Agnete

Karen Agnete





 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00