Byggingarlist og tímaflakk
14. janúar ─ 4. mars 2012
Kjarvalsstaðir.
Opin og fræðandi listsmiðja fyrir fjölskyldur sem sett er upp í tengslum við sýningarnar Snøhetta - Arkitektúr, landslagshönnun, innanhússhönnun og „Draumlandið mitt í norðri“ - Karen Agnete Þórarinsson sem standa yfir í vestursal. Snøhetta er norsk arkitektastofa með aðsetur í Osló og New York og Karen Agnete var málari og dönsk eiginkona Sveins Þórarinssonar sem flutti frá fágaðri borgarastétt í Kaupmannahöfn til Íslands og settist að í torfbæ. Sérkenni íslenskrar byggingarlistar felast m.a. í torfbæjum, bárujárnsklæddum húsum og síðar steinsteyptum húsum. Unnið verður með þessi sérkenni í smiðjunni.
Hópar eru velkomnir en þurfa að bóka tíma hjá fræðsludeild safnsins gegnum netfangið fraedsludeild@reykjavik.is.
Dagskrá:
Sunnudag 29. janúar kl. 15
Kjarvalsstaðir – Byggingarlist og tímaflakk
Fjölskylduleiðsögn og smiðja.
Prenta Til baka
Draumalandið mitt í norðri - Karen Agnete