Gálgaklettur og órar sjónskynsins

2. júní — 26. ágúst

Kjarvalsstaðir

Sýning um samtal Jóhannesar Kjarvals við náttúruna og íslenska myndlist

Í um aldarfjórðung heimsótti Jóhannes Kjarval reglulega afskekktan stað í Garðahrauni norðan Hafnarfjarðar, sem hann kenndi við Gálgaklett. Ekki verður séð að þessi staður hafi neitt sérstakt upp á að bjóða umfram það sem almennt gerist í íslensku hrauni, en andspænis formlausum hraunmyndunum Gálgakletts málaði Kjarval engu að síður fjölda mynda sem eru grunnurinn að sýningunni.

Sýningin fjallar öðru fremur um fyrirbærafræði sjónskynsins þar sem sýningarstjórinn Ólafur Gíslason hefur til hliðsjónar verk eftir tuttugu aðra íslenska listamenn og finnur í þeim endurómun við Gálgaklettsviðfangsefni Kjarvals. Verkin eru unnin í ólíka miðla og spanna heila öld, en fjölmörg þeirra eru ný og önnur hafa aldrei verið sýnd áður hér á landi.

Auk Jóhannesar S. Kjarval (1885–1972) eiga eftirtaldir listamenn verk á sýningunni:

Finnur Jónsson (1892–1993)
Svavar Guðnason (1909–1988)
Jóhann Eyfells (1923)
Erró (1932)
Vilhjálmur Bergsson (1937)
Steina (1940)
Kristján Guðmundsson (1941)
Hreinn Friðfinnsson (1943)
Jóhanna Kristín Yngvadóttir (1953–1991)
Helgi Þorgils Friðjónsson (1953)
Ívar Valgarðsson (1954)
Erla Þórarinsdóttir (1955)
Halldór Ásgeirsson (1956)
Kristján Steingrímur Jónsson (1957)
Georg Guðni (1961–2011)
Bjarni Sigurbjörnsson (1966)
Hekla Dögg Jónsdóttir (1969)
Margrét H. Blöndal (1970)
Egill Sæbjörnsson (1973)
Heimir Björgúlfsson (1975)
Sigurður Guðjónsson (1975)

Sýningunni er fylgt úr hlaði með fjölbreyttri viðburðadagskrá sem hefst sunnudaginn 3. júní kl. 15 þegar Ólafur Gíslason verður með sýningarstjóraspjall og ræðir við gesti um sýninguna. Jónatan Garðarsson fjölmiðla- og fræðimaður leiðir kvöldgöngu að Kjarvalsreitnum í Gálgahrauni fimmtudaginn 14. júní frá kl. 20-22 og hefst gangan við Hraunvík nærri Sjálands- og Ásahverfum, en rútuferð er frá Grófarhúsi kl. 19:30. Sunnudaginn 24. júní kl. 15 verður svo fjölskylduleiðsögn og smiðja tengd sýningunni.

Sýningarlýsingu sýningarstjóra má finna hér.

DAGSKRÁ

Sunnudag 3. júní kl. 15
Kjarvalsstaðir – Gálgaklettur og órar sjónskynsins
Sýningarstjóraspjall. Ólafur Gíslason ræðir við gesti um sýninguna.

Fimmtudag 14. júní kl. 20-22
Kvöldganga – Gálgaganga
Jónatan Garðarsson, fjölmiðla- og fræðimaður leiðir göngu að Kjarvalsreitinum í Gál

Prenta Til baka
Jóhannes S. Kjarval. Gálgaklettur, 1956

Jóhannes S. Kjarval. Gálgaklettur, 1956





 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00