Hugleikir og fingraflakk - Stiklur úr starfsævi Ragnheiðar Jónsdóttur
17. nóvember 2012 – 20. janúar 2013
Kjarvalsstaðir
Fyrsta yfirlitssýning á verkum Ragnheiðar Jónsdóttur verður opnuð á Kjarvalsstöðum laugardaginn 17. nóvember kl. 14. Yfirskrift sýningarinnar er Hugleikir og fingraflakk - Stiklur úr starfsævi Ragnheiðar Jónsdóttur.
Á rúmlega fjörutíu ára ferli sínum hefur Ragnheiður skilað drjúgu lífsverki, sem lifir í myndhugsun Íslendinga. Eftir að hefja feril sinn sem listmálari var hún meðal frumherja í flokki þeirra sem settu grafíklistina í öndvegi í íslenskum listheimi á 8. og 9. áratug síðustu aldar. Ýmsar túlkanir hennar úr hversdagleikanum urðu að táknmyndum samtímans, einkum á sviði kvennabaráttunnar og þeirrar umræðu um sjálfsvitund einstaklingsins, sem varð áberandi í umræðu vestrænna þjóða á þessum tíma. Hróður Ragnheiðar barst víða um lönd með þátttöku hennar í fjölda samsýninga, og grafíkverk hennar er að finna í ýmsum erlendum söfnum, allt frá Færeyjum til Egyptalands, auk þess sem verk hennar eru í fjölda safna á Íslandi.
Um 1990 tók Ragnheiður að hverfa á vit teikningarinnar í listsköpun sinni, þar sem frjálslegt línuspil á stórum myndflötum skapar fjölbreytt mynstur og flæði, sem má hverfa inn í og fylgja eftir um sviðið. Frá þeim tíma hafa teikningarnar verið kjarninn í myndheimi Ragnheiðar. Í stórum teikningum, sem gjarna eru skapaðar í flokkum, má nema kjarna tilverunnar, iður og strauma lofts, láðs og lagar, sem einkenna náttúruna í sinni smæstu jafnt sem stærstu mynd, og fylla hugi áhorfandans í túlkun listakonunnar. Sýning Ragnheiðar stendur til 20. janúar 2013.
Sýningarstjóri er Eiríkur Þorláksson.
Vefsíða Ragnheiðar Jónsdóttur
Prenta Til baka