Rím - Verk Ásmundar Sveinssonar og listamanna samtímans
2. maí 2009 – 30. apríl 2010
Ásmundarsafn
Ásmundur Sveinsson myndhöggvari var 20. aldar maður mótaður af 19. öldinni. Hann átti sér mörg viðfangsefni í listinni, mörg þeirra sótt í arfleifðina og þann tíðaranda sem skóp hann en önnur í framtíðina, tæknina og vísindin. Á sýningunni er horft til listamanna sem glíma við sömu hluti og Ásmundur en í nútímanum og í samhengi við sinn tíma og tíðaranda. Framsetning, hugsun og úrvinnsla er gjarnan með öðrum hætti þó glíman sé sú sama á nýrri öld. Listamenn sem verk eiga á sýningunni auk Ásmundar Sveinssonar eru Birgir Snæbjörn Birgisson, Davíð Örn Halldórsson, Eirún Sigurðardóttir, Finnur Arnar Arnarson, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Ólöf Nordal, Pétur Örn Friðriksson, Sara Riel og Steingrímur Eyfjörð.
Sýningarstjórar eru Ólöf K. Sigurðardóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir.
Texti sýningarstjóra
Sunnudag 11. október kl. 14
Ásmundarsafn – Rím. Fjölskylduleiðsögn
Spennandi leiðangur með sögum og tónum um Ásmundarsafn í fylgd Guðrúnar Ásmundsdóttur leikkonu og Kristínar Önnu Valtýsdóttur tónlistarkonu.
Prenta Til baka
RÍM - Verk Ásmundar Sveinssonar og listamanna samtímans yfirlitsmynd af sýningunni