„Ég kýs blómlegar konur . . .“ Konan sem tákn í list Ásmundar Sveinssonar
1. maí 2010 - 17. apríl 2011
Ásmundarsafn
Stór hluti af verkum Ásmundar Sveinssonar fjalla um konur; allt frá ástríkum mæðrum til stritandi vinnukvenna og frá viðkvæmum yngismeyjum til hamslausra tröllkvenna. Titill sýningarinnar er sóttur í viðtal við Ásmund en verkin á sýningunni spanna allan feril myndhöggvarans, allt frá fyrstu raunsæisverkum hans til íburðarmikilla túlkunar hans á konunni.
Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.
Í píramídanum hefur verið sett up endurgerða af vinnustofu Ásmundar þar sem ljósi er varpað á aðstöðu hans og verkfæri í Sigtúninu. Einnig er þar lesstofa þar sem hægt er að fræðast um líf og list Ásmundar í máli og myndum.
Sunnudag 29. ágúst
Ásmundarsafn – „Ég kýs blómlegar konur…“ Konan sem tákn í list Ásmundar Sveinssonar
Fjölskylduleiðsögn.
Prenta Til baka
Ásmundur Sveinsson. Listhneigð, 1936