Frá hugmynd að höggmynd - Teikningar Ásmundar Sveinssonar

30. apríl 2011 - 22. apríl 2012

Ásmundarsafn

Í sýningunni Frá hugmynd að höggmynd – Teikningar Ásmundar Sveinssonar verður veitt innsýn í ríkulegt safn teikninga sem myndhöggvarann Ásmundur Sveinsson lét eftir sig. Á sýningunni hafa verið valdar saman myndir sem tengja má eftir ákveðnum viðfangsefnum, sem ganga eins og rauður þráður í gegnum safnið. Einnig eru sýndar fjölmargar teikningar sem tengja má einstökum höggmyndum Ásmundar, einkum frá fyrri hluta ferils hans, ásamt höggmyndunum sjálfum.
Nýlega var lokið skráningu og rafrænni skönnun allra teikninga í eigu Listasafns Reykjavíkur – Ásmundarsafns, og er mikill fengur að því að geta nú loks kynnst þessari hlið á listsköpun Ásmundar Sveinssonar. Umræddar teikningar eru tæplega 2.000 talsins og þar má finna fjölbreytt viðfangsefni; helgimyndir, landslagsteikningar, formstúdíur, mannamyndir og allt sem nöfnum tjáir að nefna – þar á meðal nokkurn fjölda teikninga sem tengja má við einstakar höggmyndir, sem Ásmundur Sveinsson vann á langri og gifturíkri starfsævi.
Teikningar Ásmundar Sveinssonar hafa ekki verið mikið sýndar, og má vænta þess að þær veki verðskuldaða athygli allra þeirra sem hafa áhuga á að kynnast nýjum þætti í íslenskri listasögu og listsköpun þessa ágæta listamanns.

Sýningarstjóri er Eiríkur Þorláksson, listfræðingur.

Texti sýningarstjóra


Dagskrá:

Sunnudag 15. maí  kl. 14
Ásmundarsafn – Frá hugmynd að höggmynd
Fjölskylduleiðsögn og smiðja

Sunnudag 21. ágúst kl. 15
Ásmundarsafn – Frá hugmynd að höggmynd
Sýningastjóraspjall- Eiríkur Þorláksson ræðir við gesti um sýninguna.

Prenta Til baka
Úr sýningunni. Ljósmyndari: Pétur Thomsen.

Úr sýningunni. Ljósmyndari: Pétur Thomsen.





 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00