Fréttir / tilkynningar
HönnunarMars 2010. Fimmtudag 11. mars kl. 20
Dagana 18. – 21. mars stendur Hönnunarmiðstöðin öðru sinni fyrir HönnunarMars sem er fjögurra daga hátíð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.
Af þessu tilefni verður Hönnunarmiðstöð með kynningu í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi fimmtudagskvöldið 11. mars kl. 20 þar sem farið verður yfir það helsta sem í boði er á HönnunarMars. Hafnarhúsið verður helsti vettvangur hátíðarinnar en þar verða í boði fyrirlestrar, móttökur, sýningar og fleira.
> Sjá nánar
Aðsóknarmet slegið - Tvö hundruð og tuttugu þúsund gestir
Aðsóknarmet var slegið í Listasafni Reykjavíkur á síðasta ári þegar gestafjöldinn fór í fyrsta sinn yfir tvö hundruð þúsund, en heildargestafjöldi ársins 2009 nam samtals tvö hundruð og tuttugu þúsundum. Aukningin nemur 20% milli áranna 2008 og 2009 en aðgangur að safninu var gefinn frjáls 1. janúar 2008.
> Sjá nánar
Katrín Elvarsdóttir - Hvergiland. Sunnudag 7. mars kl. 15
Katrín Elvarsdóttir spjallar við gesti um sýninguna. Sýningin er 16. verkefnið sem er unnið fyrir D-salinn en sýningaröðin hófst í febrúar 2007. Í D-salnum er lögð áhersla á að kynna ný verk eftir listamenn af yngri kynslóðinni sem ekki hafa sýnt í safninu áður.
D-salar verkefnið er tilnefnt til Menningarverðlauna DV 2009.
> Sjá nánar
Kínó klúbburinn - Tatsu Aoki. Hafnarhúsi fimmtudag 4. mars kl. 20.
Tatsu Aoki, kvikmyndagerðar- og tónlistarmaður. Kínó klúbburinn helgar fimmtudagsdagskrá sína í Listasafni Reykjavíkur hinum fjölhæfa japanska listamanni Tatsu Aoki sem fæddur er í Tokýó árið 1957. Auk þess að hafa helgað sig kvikmyndagerðarlistinni er Aoki eftirsóttur jazz kontrabassaleikari og hljómplötuútgefandi.
> Sjá nánar
Síðasta sýningarhelgi á sýningu Högnu Sigurðardóttur
Vinsamlega athugið að sunnudaginn 28. febrúar lýkur arkitektasýningu Högnu Sigurðardóttur á Kjarvalsstöðum.
> Sjá nánar
Vatn og litur - fjölskyldusmiðja. Sunnudag 28. febrúar kl. 14
Næstkomandi sunnudag býðst börnum og fullorðnum að skoða vatnslitasýninguna Blæbrigði vatnsins á Kjarvalsstöðum og í kjölfarið að búa til sitt eigið vantslitaverk í norðursal Kjarvalsstaða þar sem málað er beint á vegg og á póstkort sem hægt er að taka með sér að heimsókn lokinni.
> Sjá nánar
Yrki Arkitektar. Hafnarhús, Fimmtudag 25. febrúar kl. 20
Arkitektar teiknistofunnar Yrkis, þær Sólveig Berg og Ásdís Helga Ágústsdóttir munu sýna og segja frá helstu verkefnum sínum í dagskrá á vegum byggingarlistardeildar safnsins.
> Sjá nánar
Boðskort: D16 Katrín Elvarsdóttir - Hvergiland, Hafnarhús. Fimmtudag 25. febrúar kl. 17
Verið velkomin á opnun ljósmyndasýningar Katrínar Elvarsdóttur, Hvergiland, í 16. D-salar sýningaverkefni Listasafns Reykjavíkur.
> Sjá nánar
Erró í Pompidou safninu í París
Þann 17. febrúar, var opnuð í Pompidou safninu í París yfirlitssýning á klippimyndum erftir Erró. Sýningin spannar 50 ára sögu klippimynda Errós eða frá 1958 til 2009. Erró gaf Pompidou á sjöunda tug klippimynda á síðasta ári og fyrirhugar meira framlag á þessu ári.
> Sjá nánar
Sýningarlok. D15 Dodda Maggý. Hafnarhús - Sunnudag 21. febrúar
Lucy nefnist myndbands- og hljóðinnsetning Doddu Maggýjar (1981) sem er 15. listamaðurinn til að sýna í D-salar verkefninu í Hafnarhúsinu. Í verkinu kannar listamaðurinn hugmyndina um hljóðskynjun út frá mannsröddinni og mannslíkamanum.
> Sjá nánar
Hyldýpi þar sem augað týnist. Hafnarhús - Sunnudag 21. febrúar kl. 15
Franski málarinn Paul Cézanne er sagður hafa krafist þess af málverkinu að það væri „hyldýpi þar sem augað týndist, leynileg spírun og lituð upphafning andans“. Hafþór Yngvason sýningarstjóri leitast við að uppfylla þessar kröfur hins dáða málara á sýningunni Ljóslitlífun og reifar þær hugmyndir sínar í formála veglegrar sýningarskrár, sem gefin hefur verið út með sýningunni.
> Sjá nánar
Tríó Reykjavíkur á hádegistónleikum. Fimmtudag 18. febrúar kl. 12:15
Bráðfjörug sígaunasyrpa, íslenskar dægurperlur og hugljúf Mozartsónata eru meðal verka á tónleikum Tríós Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum næstkomandi fimmtudag.
> Sjá nánar
Sýningarstjóraspjall um Blæbrigði vatnsins. Sunnudag 14. ferbúar 15
Aðalsteinn Ingólfsson verður með sýningarstjóraspjall um nýlega opnaða sýningu, Blæbrigði vatnsins, á Kjarvalsstöðum.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Vatnslitasmiðja fjölskyldunnar Vatn og litur er opin alla daga. Þar er hægt að mála beint á veggi norðursalarins.
> Sjá nánar
Geimsmiðja og gjörningar - Tónlist og tangó - Vatnslitir og vökudraumar.
Safnanótt Listasafns Reykjavíkur. Föstudaginn 12. febrúar kl 18 - 24
> Sjá nánar
Blæbrigði vatnsins, Kjarvalsstöðum. Föstudag 12. febrúar kl. 18
Á Safnanótt, 12. febrúar verður opnuð á Kjarvalsstöðum ein stærsta úttekt sem gerð hefur verið á íslenskri vatnslitalist frá upphafi íslenskrar listasögu til okkar daga. Sýningin spannar um 130 ára sögu vatnslitamynda á Íslandi allt frá vatnlistamyndum Sölva Helgasonar (1820-1895) um miðja nítjándu öld til mynda samtímalistamanna frá síðasta ári. Verkin á sýningunni eru eitthundrað og fjörutíu talsins og höfundar þeirra alls sextíu.
> Sjá nánar
Tækniþróunarsjóður fyrir hönnun og arkitektúr. Fimmtudag 11. Febrúar kl. 20
Í fyrirlestrarröð Hönnunarmiðstöðvar Íslands í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi næstkomandi fimmtudagskvöld verður sjónum beint að Tækniþróunarsjóði og styrkjum á sviði hönnunar og arkitektúrs.
> Sjá nánar
Skjaldmeyjar og Hugarfley - Sýningarstjóraspjal. Kjarvalsstaðir – Sunnudag 7. febrúar kl. 15
Meðal þess myndefnis sem Kjarval var hugleikið eru skjaldmeyjar, bátar, hörpur, vængjaðir hestar, englar, fuglar og kýr. Þetta kemur skýrt fram í teikninga- og skissusafni Kjarvals sem skiptir þúsundum.
> Sjá nánar
Húsin hennar Högnu. Kjarvalsstaðir – Laugardag 6. febrúar kl. 14
Pétur H. Ármannsson arkitekt flytur fyrirlesturinn Húsin hennar Högnu á Kjarvalsstöðum. Þar fjallar hann um verk Högnu Sigurðardóttur arkitekts í tengslum við sýninguna Efni og andi í byggingarlist. En sem kunnugt er ánafnaði Högna Listasafni Reykjavíkur öllu teikningasafni sínu á síðasta ári.
> Sjá nánar
Kínó Klúbburinn. Hafnarhús – Fimmtudag 4. febrúar kl. 20
Níu stuttmyndir eftir hollensku kvikmyndagerðarkonuna, Francien Van Everdingen verða sýndar á fimmtudagskvöldið. Síðastliðin 13 ár hefur Francien búið til tuttugu stuttmyndir sem eru frá 2 til 6 mínútum að lengd.
> Sjá nánar
Högna Sigurðardóttir - Framlengdur sýningartími
Sýning á verkum Högnu Sigurðardóttur arkitekts, sem nú stendur yfir í austurforsal Kjarvalsstaða er fyrsta sýning sem sett hefur verið upp á Íslandi með verkum hennar. Sýningin gefur einstakt yfirlit yfir feril Högnu og hefur verið ákveðið að framlengja hana til sunnudagsins 28. febrúar.
> Sjá nánar
Steinunn - Sýningarlok. Sunnudag 31. janúar
Sýning Steinunnar Sigurðardóttur fatahönnuðar á Kjarvalsstöðum markaði ekki einungis tímamót í starfsemi Listasafns Reykjavíkur sem fyrsta einkasýning á verkum fatahönnuðar heldur var hún fyrsta fatahönnunarsýning í listasafni á Íslandi.
> Sjá nánar
Tunglfarar á Íslandi. Hafnarhús - Sunnudag 31. janúar kl. 15
Í fyrirlestri sínum mun Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor við Háskólann á Akureyri fjalla um geimfara og tunglferðir út frá geimfaraseríu Errós og AlmaDís Kristinsdóttir vera með leiðsögn um sýninguna.
> Sjá nánar
Fjölskyldudagskrá um Furðuverur. Hafnarhús - Laugardag 30. janúar kl. 14
Á laugardaginn klukkan 14 er boðið upp á dagskrá fyrir alla fjölskylduna í tengslum við sýninguna Ljóslitlífun þar sem ellefu, ungir málarar sýna kraftmikil, litrík og oft ævintýraleg málverk og myndir.
> Sjá nánar
Dodda Maggý. Hafnarhús - Fimmtudag 28. janúar kl. 20
Dodda Maggý, I'm not here, 2009. Kvölddagskrá Hafnarhússins á fimmtudaginn er helguð Doddu Maggý sem er fimmtándi listamaðurinn til að sýna í D-salnum.
> Sjá nánar
Íslensk tónlist fyrir fiðlu og píanó. Kjarvalsstaðir - Föstudag 29. janúar kl. 12:10
Tónleikarnir eru á dagskrá Myrkra músíkdaga 2010. Þar koma fram Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari.
> Sjá nánar
Afmælistónleikar Mozarts. Kjarvalsstaðir - Miðvikudag 27. janúar kl. 20
Líkt og undanfarin ár verða tónleikar til heiðurs Mozart haldnir á Kjarvalsstöðum á fæðingardegi hans 27. janúar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 með fjölbreyttri efnisskrá sem samanstendur af tónum og tali.
> Sjá nánar
Hönnunarsamkeppni byggð á verkum Ásmundar Sveinssonar
Samstarfsverkefni Kraums, Listasafns Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Verslunin Kraum, Listasafn Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöð Íslands standa í annað sinn fyrir hönnunarsamkeppni þar sem sjónum er beint að ákveðnum listamanni.
> Sjá nánar
Prjónað eftir eyranu - fjölskyldusmiðja. Kjarvalsstaðir, Sunnudag 24. janúar kl. 14
Í fjölskyldusmiðju Kjarvalsstaða næstkomandi sunnudag mun Steinunn Sigurðardóttir hönnuður segja frá hugmyndum sínum og nálgun við prjónaskap í tengslum við sýningarverkefnið Steinssmiðja í norðursalnum.
> Sjá nánar
Högna – Sýningarstjóraspjall. Kjarvalsstaðir, Laugardag 23. Janúar kl. 15
Sýningarstjórinn Guja Dögg Hauksdóttir fer með gestum um sýninguna Högna Sigurðardóttir - Efni og andi í byggingarlist, sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Aðgangur er ókeypis.
> Sjá nánar
Sláandi myndir: Ögrandi list og óvænt viðbrögð. Hafnarhús, Fimmtudag 21. Janúar kl. 20
Dr. Steven C. Dubin sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á sviði safnafræði og lista, mun í erindi sínu fjalla um myndlistarmenn og sýningar sem hafa verið mjög umdeildar og leitt til kröftugra átaka á síðari hluta 20. aldar og í upphafi 21. aldar. Dr. Steven C. Dubin er Fulbright-gestakennari í safnafræði við Háskóla Íslands frá Columbia-háskólanum í New York.
> Sjá nánar
Listamannaspjall ungra málara. Sunnudag 17. janúar kl. 15
Þrír af listamönnunum ellefu sem eiga verk á sýningunni Ljóslitlífun í Hafnarhúsinu bjóða gestum að ganga með sér um sýninguna og ræða það sem fyrir augu ber næstkomandi sunnudag, 17. janúar kl. 15. Listamennirnir eru Guðmundur Thoroddsen, Heimir Björgúlfsson og Ragnar Jónasson.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
> Sjá nánar
Ljóslitlífun, Erró - Geimfarar og D15 Dodda Maggý. Föstudag 15. janúar kl. 21
Fyrstu sýningar ársins í Listasafni Reykjavíkur verða opnaðar í Hafnarhúsinu föstudagskvöldið 15. janúar. Opnunarathöfnin verður með óhefðbundnum hætti, hún hefst kl. 21 og stendur fram eftir kvöldi með hressilegri tónlist Péturs Eyvindssonar, öðru nafni DJ Musician.
> Sjá nánar
Ný Sýningadagskrá er komin út!
Sýninga- og viðburðadagskrá Listasafns Reykjavíkur hefur litið dagsins ljós. Fram á vor eru í boði 15 sýningar og 42 viðburðir.
> Sjá nánar
Íslensk Hönnun - Alþjóðleg söluvara. Fimmtudag 14. janúar kl. 20
Fyrsti fyrirlestur Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Listasafns Reykjavíkur á þessu ári verður haldinn í Hafnarhúsinu fimmtudaginn 14. janúar kl. 20. Þar mun Rúnar Ómarsson framkvæmdastjóri og einn af stofnendum fatahönnunarfyrirtækisins Nikita segja sögu fyrirtækisins, sem stofnað var í ársbyrjun 2000.
> Sjá nánar
Vikan Framundan – Kvikmynd, Steinunn og Högna. Fimmtudag 7. – Þriðjudags 12. Janúar
Framundan er viðburðarík vika í Listasafni Reykjavíkur. Fimmtudagskvöld Hafnarhússins er helgað kvikmyndum, Steinunn Sigurðardóttir hönnuður verður með fyrirlestur á sunnudaginn og næstkomandi þriðjudag heldur arkitektinn Pétur H. Ármannsson fyrirlestur um Högnu Sigurðardóttur arkitekt. Ókeypis aðgangur er á alla viðburðina.
> Sjá nánar
Sýningalok í Hafnarhúsi. Sunnudag 3. janúar
Sunnudaginn 3. janúar lýkur þremur sýningum í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Þetta eru sýningarnar Innpökkuð herbergi – Yoshitomo Nara + YNG, Egill Sæbjörnsson – Staðarandi og frásögn og D-16 innsetningu Ryans Parteka.
> Sjá nánar
Gleðilega Hátíð
Starfsfólk Listasafns Reykjavíkur óskar þér gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökkum fyrir það liðna.
> Sjá nánar
Elektra Ensemble og Franskir töfrar. Miðvikudag 30. desember kl. 20
Hinn glæsilegi tónlistarhópur Elektra Ensemble heldur tónleika á Kjarvalsstöðum miðvikudaginn 30. desember kl. 20 sem eru lokatónleikar hópsins sem tónlistarhóps Reykjavíkurborgar árið 2009. Um efnisskránna leika franskir straumar en flutt verða verk eftir Gaubert, Saint-Saëns, Milhaud, Debussy og Fauré.
> Sjá nánar
Opnunartími Listasafns Reykjvíkur um jól og áramót.
Listasafn Reykjavíkur er opið alla daga yfir jól og áramót að undanskildum aðfangadegi og jóladegi. Opnunartími er breytilegur en hann er sem hér segir:
> Sjá nánar
Heiminum breytt á fimm tímum með Ykon. Laugardag 19. des kl. 12 - 17
Finnski myndlistarhópurinn Ykon býður þér að taka þátt með sér í leik laugardaginn 19. des í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi, frá kl. 12.00-17.00. Nauðsynlegt er að skrá sig áður en leikur hefst á netfangið info@ykon.org.
> Sjá nánar
Egill með ókeypis tónleika 17. desember
Egill Sæbjörnsson verður með tónleika ásamt mörgum, kunnum tónlistarmönnum í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20:30. Aðgangur er ókeypis en tónleikarnir eru haldnir í tilefni af sýningu hans Staðarandi og frásögn sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu og nýlegum geisladiski.
> Sjá nánar
ERRÓ LEIÐSÖGN MEÐ SIGFRÍÐI BJÖRNSDÓTTUR. SUNNUDAG 13. DESEMBER KL. 15
Næstkomandi sunnudag verður leiðsögn í fylgd Sigfríðar Björnsdóttur tónlistarsagnfræðings um sýninguna Erró - Mannlýsingar. Á sýningunni er lögð áhersla á svokallaða frásagnar portretta eða mannlýsingar sem Erró hefur þróað í gegnum tíðina.
> Sjá nánar
KÍNÓ KLÚBBURINN MEÐ ANN ARBOR HÁTÍÐ Í HAFNARHÚSINU. FIMMTUDAG 10. DESEMBER KL. 20
Fimmtudagskvöld í Hafnarhúsinu er vinsæll vettvangur ólíkra viðburða hvort sem um er að ræða málþing, gjörninga, tónlist, kvikmyndir, umræður eða annars konar viðburði. Næstkomandi fimmtudagskvöld bætist nýr fastagestur í fimmtudagsdagskránna en um er að ræða Kínó ör-kvikmyndaklúbbinn sem stýrt er af Rebeccu Moran.
> Sjá nánar
FRIÐUR OG FJÖLMENNING Í VIÐEY. SUNNUDAG 6. DESEMBER KL. 14:30- 16:30
Opin listsmiðja og notaleg samverustund fyrir börn og fullorðna verður í Viðeyjarstofu sunnudaginn 6.desember frá kl. 14:30-16:30.
Í smiðjunni er unnið út frá friðarsúlu Yoko Ono og orðunum HUGSA SÉR FRIÐ sem áletruð eru á 24 tungumálum á súluna sjálfa. Þátttakendur velja sér setningu á nokkrum tungumálum og festa þær á kerti, sem þeim stendur frítt til boða. Umsjón með listsmiðjunni hefur AlmaDís Kristinsdóttir verkefnastjóri fræðslu hjá Listasafni Reykjavíkur.
> Sjá nánar
STEINUNN – LEIÐSÖGN OG GJÖRNINGUR. LAUGARDAG 5. DESEMBER KL. 14
Gríðarlegur áhugi hefur verið á sýningu Steinunnar Sigurðardóttur hönnuðar en um fjögurþúsund manns hafa sótt Kjarvalsstaði frá opnun hennar 21. nóvember.
Næstkomandi laugardag kl. 14 verður Steinunn á Kjarvalsstöðum og bíður gestum að ganga með sér um sýninguna. Hún ræðir feril sinn, efnistök og ráðandi áhrifavalda í hönnun sinni.
> Sjá nánar
SÝNING FRAMHALDSSKÓLANEMA. FIMMTUDAG 3. DESEMBER KL. 20
Fyrsta námskeið Listasafns Reykjavíkur fyrir framhaldsskólanema fékk góðar viðtökur en afrakstur þess verður á sýningu í fjölnotasal Hafnarhússins á fimmtudagskvöldið klukkan átta. Meðal þess sem verður til sýnis er bíll í eigu starfsmanns Listasafnsins, sem hópurinn hefur skreytt í öllum regnbogans litum undir stjórn námskeiðshaldaranna og listamannanna Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur og Davíðs Arnar Hilmarssonar. Allur undirbúningur og framkvæmd fimmtudagskvöldsins er í höndum framhaldsskólanemanna.
> Sjá nánar
GARÐAR CORTES OG HVÍT JÓL Á KJARVALSSTÖÐUM. 2. OG 3. DESEMBER KL. 12:15
Einn dáðasti tenórsöngvari Íslands, Garðar Cortes, heldur tvenna hádegistónleika á Kjarvalsstöðum þar sem hann flytur helstu jólaperlur tónbókmenntanna með píanóleikaranum Robert Sund. Tónleikarnir eru miðvikudaginn 2. og fimmtudaginn 3. desember og hefjast kl. 12:15.
Garðar og Robert buðu einnig til jólatónleika í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur á síðasta ári sem mæltust svo vel fyrir að afráðið var að gera þá að árvissum viðburði.
> Sjá nánar
FJÖLSKYLDUDAGSKRÁ: Sjónauki Galileós, þróunarkenning Darwins og ljósapera Edison. SUNNUDAG 29. NÓVEMBER KL. 15
Víðfrægum einstaklingum bregður fyrir á sýningu Errós, Mannlýsingar sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Meðal þeirra eru kunnustu uppfinningamenn sögunnar en á sunnudaginn klukkan 15 mun Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor í vísindasögu og eðlisfræði vera með dagskrá sem tengist þeim og er sérstaklega ætluð vísindaþyrstum börnum frá tíu ára aldri. Áður en dagskrá Þorsteins hefst verður stutt leiðsögn um verk Errós sem sýna vísindamenn og verkfræðinga.
> Sjá nánar
HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR – SÝNINGARSTJÓRASPJALL. Laugardag 28. nóvember kl. 15
Sýning á verkum Högnu Sigurðardóttur arkitekts var löngu tímabær ef marka má þá athygli og aðsókn sem hún hefur holtið frá því að hún var opnuð á Kjarvalsstöðum fyrr í nóvember. Á sýningunni eru sýndar teikningar, módel og ljósmyndir af byggðum og óbyggðum húsum á Íslandi eftir Högnu, en næstkomandi laugardag kl. 15 mun Guja Dögg Hauksdóttir, deildarstjóri byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur vera með sýningarstjóraspjall um sýninguna. Aðgangur er ókeypis.
> Sjá nánar
PECHA KUCHA NIGHT REYKJAVÍK #4. FIMMTUDAG 26. NÓVEMBER KL. 20
Lífstíll og hönnun á Íslandi verður þema Pecha Kucha kvöldsins í Hafnarhúsinu á fimmtudagskvöld kl. 20. Rúmlega tíu manns stíga á stokk og láta í ljós eða kynna viðfangsefnið í máli og myndum.
> Sjá nánar
FYRIRLESTUR, SPJALL OG GJÖRNINGUR RYANS PARTEKA. SUNNUDAG 22. NÓVEMBER KL. 15
Næstkomandi sunnudag mun Ryan Parteka halda fyrirlestur undir yfirskriftinni Tragedía landslags og endurkoma rómantíkur í vestrænum menningarkimum og ræða sýningu sína Þúsund ár, dagur ei meir (fyrir Caspar David Friedrich) sem nú stendur yfir í D-sal Hafnarhússins. Að loknu spjalli verður endurtekinn gjörningur með þátttöku hljóðfæraleikara, sem frumfluttur var á opnun sýningarinnar og myndar hljóðmynd verksins.
> Sjá nánar
TRÍÓ REYKJAVÍKUR Á HÁDEGISTÓNLEIKUM. FÖSTUDAG 20. NÓVEMBER KL. 12:15
Hinir reglulegu hádegistónleikar Tríós Reykjavíkur í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum eru að þessu sinni helgaðir tónskáldum frá Tékklandi með áherslu á verk eftir Antonin Dvořák og Josef Suk. Meðal verka á tónleikunum er hið víðkunna Dumky píanótríó.
> Sjá nánar
STEINUNN. LAUGARDAG 21. NÓVEMBER KL. 16
Næstkomandi laugardag kl. 16 verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á fatahönnun Steinunnar Sigurðardóttur.
Hróður Steinunnar hefur borist víða frá því að fyrsta flíkin undir hennar merkjum leit dagsins ljós árið 2000 og hefur hún hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar á heimsvísu.
> Sjá nánar
MÁLÞING UM MANGA, MEÐVITUND OG MARKAÐSFRÆÐI. SUNNUDAG 15. NÓVEMBER KL. 15
Ólíkum aðferðum verður beitt til að nálgast verk myndlistarmannsins Yoshitomo Nara á málþingi sem haldið verður í tengslum við sýningu hans, Innpökkuð herbergi, sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu. Málþingið er unnið í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur en framsögumenn eru Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður, Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og Guðmundur Oddur Magnússon prófessor í grafískri hönnun. Málþingið er öllum opið.
> Sjá nánar
MÁLÞING UM HÖGNU SIGURÐARDÓTTUR. LAUGARDAG 14. NÓVEMBER KL. 14-17
Fyrsta einkasýning á verkum frumkvöðulsins Högnu Sigurðardóttur arkitekts var opnuð á Kjarvalsstöðum síðastliðinn laugardag. Viku síðar, laugardaginn 14. nóvember kl. 14, er boðað til málþings um Högnu með þátttöku arkitekta og listamanns. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
> Sjá nánar
SKAPANDI FYRIRTÆKI FIMMTUDAG 12. NÓVEMBER KL. 20
Á fyrirlestri Hönnunarmiðstöðvar Íslands sem haldinn verður í Hafnarhúsinu fimmtudaginn 12. nóvember kl. 20, verður rætt um hvernig hönnun, sköpun og viðskipti mætast.
Fyrirlesturinn er unnin í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og er öllum opinn. Frummælendur eru Margrét Sigrún Sigurðardóttir aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Ísland, Helga Valfells sérfræðingur fjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóði og Gunnar Hilmarsson fatahönnuður. Að loknum framsögum er boðið upp á umræður og fyrirspurnir.
> Sjá nánar
SMIÐJA UM SJÓNHVERFINGAR OG VÍSINDI. SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Á BLIK. SUNNUDAG 8. NÓVEMBER KL. 15
Sjónblekkingar og vísindi leika aðalhlutverkið í fjölskylduleiðsögn sem verður á Kjarvalsstöðum næstkomandi sunnudag klukkan 15.
Smiðjan tengist sýningunni Blik, sem er í vestursal Kjarvalsstaða, og verður sýningin skoðuð áður en smiðjan hefst.
> Sjá nánar
THE MIND – GJÖRNINGUR EGILS SÆBJÖRNSSONAR. FIMMTUDAG 5. NÓVEMBER KL. 20
Sýning Egils Sæbjörnssonar, Staðarandi og frásögn, var opnuð í Hafnarhúsinu síðastliðinn fimmtudag að viðstöddu fjölmenni. Sunnudaginn á eftir var Egill með listamannsspjall sem einnig vakti mikla athygli. Næstkomandi fimmtudag, 5. nóvember kl. 20, mun Egill bæta um betur og flytja gjörninginn The Mind ásamt listakonunni Marcia Moraes. Gjörningurinn er unnin í samstarfi við Sequences gjörningahátíðina sem nú stendur yfir. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
> Sjá nánar
krÚtt og KvikYndi
Námskeið fyrir skapandi framhaldsskólanema á vegum Listasafns Reykjavíkur hefst 12. nóvember og lýkur með sýningu 3. desember.
Kennarar eru Davíð Örn Halldórsson og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.
> Sjá nánar
HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR EFNI OG ANDI Í BYGGINGARLIST. LAUGARDAG 7. NÓVEMBER KL. 16
Högna Sigurðardóttir arkitekt ánafnaði Listasafni Reykjavíkur nýlega öllu teikningasafni sínu. Í tilefni af þeirri rausnarlegu gjöf og því að Högna fagnaði áttræðis afmæli sínu á dögunum verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á byggingarlist hennar með áherslu á íslensk verk, byggð sem óbyggð. Þetta er fyrsta einkasýning á verkum Högnu Sigurðardóttur á Íslandi og er hún unnin í náinni samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
Sýningin verður opnuð laugardaginn 7. nóvember kl. 16. Á sýningartímabilinu verða málþing og fyrirlestrar tileinkaðir Högnu.
Sýningin stendur til 31. janúar 2010.
> Sjá nánar
GJÖRNINGAHÁTÍÐ. 30. OKTÓBER – 7. NÓVEMBER
Listasafn Reykjavíkur og Gjörningalistahátíðin Sequences standa fyrir spennandi dagskrá í Hafnarhúsinu frá 30. október til 7. nóvember. Hátíðin verður opnuð með pomp og pragt í Hafnarhúsinu næstkomandi föstudag, en heiðurslistamaður hátíðarinnar, Magnús Pálsson, frumflytur um klukkustundar langan gjörning sama kvöld.
> Sjá nánar
TVÆR OPNANIR OG GJÖRNINGUR: EGILL SÆBJÖRNSSON / D 14 RYAN PARTEKA. FIMMTUDAG 29. OKTÓBER 2009 KL. 17
EGILL SÆBJÖRNSSON
Eftir tólf ár í hringiðu myndlistarinnar á meginlandi Evrópu kemur Egill Sæbjörnsson heim með sína fyrstu, stóru sýningu sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi næstkomandi fimmtudag kl. 17. Á sama tíma verður opnuð sýning Ryans Parteka í D-salnum. Sýningarnar standa báðar til 3. janúar 2010.
> Sjá nánar
HVAÐ ER SJÁLFSMYND? – FJÖLSKYLDUSMIÐJA. SUNNUDAG 25. OKTÓBER KL. 15
Er hægt að vera eitthvað annað en maður sjálfur á sjálfsmynd?
Lóa Hlín Hjámtýrsdóttir er þekkt sem hljómsveitarmeðlimur FM Belfast, en hún hefur einnig verið mjög afkastamikil sem myndlistarmaður. Næstkomandi sunnudag mun Lóa Hlín leiða smiðju fyrir fjölskyldur í tengslum við sýningu japanska listamannsins Yoshitomo Nara, Innpökkuð herbergi, sem nú sendur yfir í Hafnarhúsinu.
> Sjá nánar
FRÁ TORFBÆ TIL FORSÍÐU TIME. HAFNARHÚS FIMMTUDAG 22. OKTÓBER KL. 20
Heimildamyndin From Turf Cottage to the Cover of Time (Frá torfbæ til forsíðu Time) eftir Hans Kristján Árnason segir sögu Holger Cahill – eða Sveins Kristjáns Bjarnarsonar sem fæddist árið 1887 á Íslandi og dó í Bandaríkjunum árið 1960. Tuttugu og sjö ára gamall sneri Sveinn við blaðinu, fékk sér nýtt nafn og breytti staðreyndum um fæðingardag og þjóðerni.
> Sjá nánar
SÝNINGALOK Í HAFNARHÚSINU. SUNNUDAG 18. OKTÓBER
Á sunnudag lýkur tveimur sýningum í Hafnarhúsinu: Endurkynni rammanna þar sem Lars von Trier og Friðrik Þór Friðriksson sýna valda ramma úr kvikmyndum sínum, sem málaðir hafa verið á stóra strigafleti.
> Sjá nánar
TEIKNANDI RÓLA OG LEYNDARDÓMAR LÍMBANDSINS. SUNNUDAG 18. OKTÓBER KL. 14
Getur þú ímyndað þér hvernig teikningu rólan framkallar?
Hefurðu pælt í leyndardómum límbandsins? Næstkomandi sunnudag mun tilraunaeðlisfræðingurinn Ari Ólafsson leiða listsmiðju um ljósfræði og pendúla í tengslum við sýninguna Blik á Kjarvalsstöðum.
> Sjá nánar
A SEA CHANGE - HEIMILDAMYND. LAUGARDAG 10. OKTÓBER KL. 18
Næstkomandi laugardag mun listamaðurinn Alexander Zaklynzky standa fyrir kvikmyndasýningu í Hafnarhúsinu til styrktar íslenskri list. Sýnd verður heimildarmyndin A Sea Change, í leikstjórn Barböru Ettinger, sem fjallar um áhrif mengunar og ofveiði á lífríki hafsins og hefur unnið til fjölda verðlauna á kvikmyndahátíðum víða um heim.
> Sjá nánar
FRIÐARSÚLAN – LENNON TÓNLEIKAR, HEIMILDARMYNDIR OG FLEIRA. FÖSTUDAG 9. OKTÓBER KL. 19:30
Margir af fremstu tónlistarmönnum landsins koma fram á tónleikadagskrá sem Yoko Ono býður til í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi að kvöldi 9. október þegar tendrað verður á Friðarsúlunni. Auk þess verður boðið upp á heimildamyndir og sýnd verða myndbrot úr lífi og starfi John Lennon og Yoko Ono. Hafnarhúsið verður opnað kl. 19:30 og eru allir velkomnir.
> Sjá nánar
FJÖLSKYLDUFYLGD Í TALI OG TÓNUM. SUNNUDAG 11. OKTÓBER KL. 14
Hin ástæla leikkona Guðrún Ásmundsdóttir bregður á leik í Ásmundarsafni ásamt hinni kunnu söngkonu hljómsveitarinnar Múm, Kristínu Önnu Valtýsdóttur næstkomandi sunnudag kl. 14.
> Sjá nánar
HÖNNUÐUR & LISTAMAÐUR. FIMMTUDAG 8. OKTÓBER KL. 20
Hvar mætast list og hönnun er umfjöllunarefni sem tekið verður fyrir á málþingi sem Hönnunarmiðstöð Íslands stendur fyrir í Hafnarhúsinu í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.
> Sjá nánar
OP-LIST - MÁLÞING. SUNNUDAG 4. OKTÓBER KL. 15
Sálfræðingurinn Árni Kristjánsson, listfræðingurinn Þóra Þórisdóttir og listamaðurinn JBK Ransu eru framsögumenn á málþingi um Op-listina sem haldið verður á Kjarvalsstöðum næstkomandi sunnudag kl. 15.
> Sjá nánar
SVARLEYSA - TILRAUNAKVÖLD. FIMMTUDAG 1. OKTÓBER KL. 20
Tilraunakvöld helgað kvikmyndum, innsetningu, upplestri og tónlist verður haldið í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi næstkomandi fimmtudagskvöld í samstarfi við Reykjavik Documentary workshop.
> Sjá nánar
TRÍÓ REYKJAVÍKUR - AFMÆLISTÓNLEIKAR. FIMMTUDAG 1. OKTÓBER KL. 12:15
Hinir reglulegu hádegistónleikar Tríós Reykjavíkur í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum halda áfram göngu sinni í vetur.
Næstu tónleikar, sem haldnir verða fimmtudaginn 1. október kl. 12:15, eru helgaðir merkisviðburðum tengdum tveimur tónskáldum, þeim Joseph Haydn (1732-1809) og Felix Mendelssohn (1809 –1847).
> Sjá nánar
RAFSKINNA – LIFANDI LISTATÍMARIT. SUNNUDAG 27. SEPT. 14-16 OG ÞRIÐJUDAG 29. SEPT. 15-17
Valið efni úr DVD-sjónritinu Rafskinnu verður sýnt í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í samvinnu við kvikmyndahátíðina Nordisk Panorama, sem stendur yfir í Reykjavík dagana 25. – 30. september. Sýnt verður efni úr þeim þremur tölublöðum sem út hafa komið auk áður óbirts efnis með listamönnum, sem Rafskinna hefur unnið með. Alls verða sýndir þrettán titlar sunnudaginn 27. september kl. 14-16 og þriðjudaginn 29. september kl. 15-17. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
> Sjá nánar
RIFF Í DAG SUNNUDAG 26. SEPTEMBER
> Sjá nánar
RIFF Í DAG LAUGARDAG 26. SEPTEMBER
> Sjá nánar
LISTAMANNASPJALL FRIÐRIKS ÞÓRS OG ARA ALEXANDERS. FÖSTUDAG 25. SEPTEMBER KL. 12:30
Í tilefni af Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni, sem Listasafn Reykjavíkur tekur virkan þátt í, munu listamennirnir og kvikmyndaleikstjórarnir Friðrik Þór Friðriksson og Ari Alexander Ergis Magnússon fylgja gestum og ræða um sýningu sína Rammar í endursýn í Hafnarhúsinu í hádeginu næstkomandi föstudag. Spjallið fer fram á ensku.
> Sjá nánar
KONAN VAR SÓLIN - NÚ ER HÚN TUNGLIÐ. SUNNUDAG 27. SEPTEMBER KL. 15
Nokkrar af þekktustu kvenréttindakonum Japans og ýmsir menntamenn, sem þeim tengdust, prýða nú veggi Hafnarhússins á sýningu Errós, Japönsk ástarbréf. Næstkomandi sunnudag kl. 15 mun Kristín Ingvarsdóttir fylgja safngestum í gegnum sýninguna.
> Sjá nánar
Manga manga: myndir og sögur
Í tilefni af sýningu á verkum japanska myndlistamannsins Yoshitomo Nara í félagi við hönnunarhópinn Graf, sem haldin er í Hafnarhúsi, efnir Borgarbókasafnið í Grófarhúsi til útstillingar undir yfirskriftinni: 'Manga manga: myndir og sögur'.
> Sjá nánar
ELEKTRA ENSEMBLE – SUÐURAMERÍSKUR SEIÐUR. LAUGARDAG 26. SEPTEMBER KL. 20
Andi Suðurameríku svífur yfir Kjarvalsstöðum næstkomandi laugardagskvöld á þriðju tónleikunum sem Elektra Ensemble heldur á þessu ári í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.
> Sjá nánar
RIFF NÆSTU SÝNINGAR
> Sjá nánar
BLIKSMIÐJA – FJÖLSKYLDULEIÐSÖGN OG SMIÐJA. LAUGARDAG 19. SEPTEMBER KL. 14
Orðatiltækið ekki er allt sem sýnist á svo sannarlega við á hinni fræðandi barna- og fjölskyldusýningu Bliksmiðja, sem nýlega var opnuð á Kjarvalsstöðum.
Næstkomandi laugardag kl. 14 verður fræðslufulltrúi Listasafns Reykjavíkur í salnum og tekur á móti fjölskyldufólki.
> Sjá nánar
D13 - INGIBJÖRG BIRGISDÓTTIR - LISTAMANNSSPJALL. SUNNUDAG 20. SEPTEMBER KL. 15
Fyrir skömmu var opnuð 13. sýningin í D-salar verkefni Listasafns Reykjavíkur þar sem ungum listamönnum er gefið færi á að vinna nýtt verk inn í þennan sal Hafnarhússins. Þar sýnir núna Ingibjörg Birgisdóttir innsetningu sem nefnist Hvergi en á sunnudaginn mun hún ásamt Sirru Sigurðardóttur verkefnisstjóra viðburða, ræða sýninguna og eigin feril.
> Sjá nánar
ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR. HAFNARHÚS 17. – 27. SEPTEMBER
Listasafn Reykjavíkur tekur þátt í Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Hafnarhúsinu með reglulegum sýningum í fjölnotasal Hafnarhússins flesta daga hátíðarinnar frá kl. 14 – 22.
> Sjá nánar
INNPÖKKUÐ HERBERGI - YOSHITOMO NARA + YNG. FIMMTUDAG 17. SEPTEMBER KL. 17
Fígúrur og málverk hins heimskunna, japanska popplistamanns, Yoshitomo Nara (1959) hafa farið sigurför um heiminn undanfarna tvo áratugi. Nara er nú kominn til Íslands og opnar nýja sýningu í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, næstkomandi fimmtudag. Málverk Nara tengjast mjög japanskri teiknimyndahefð og popplist en umgjörð verkanna er breytileg eftir sýningarstað.
> Sjá nánar
BLIK - SÝNINGARSTJÓRASPJALL. SUNNUDAG 13. SEPTEMBER KL. 15
Sunnudaginn 13. september, daginn eftir opnun sýningarinnar Blik, verður Helgi Már Kristinsson með sýningastjóraspjall um verkin á sýningunni. Á sýningunni eru verk í anda op-listastefnunnar, en hún kom fram á sjónarsviðið um miðja síðustu öld.
> Sjá nánar
BLIK. LAUGARDAG 12. SEPTEMBER KL. 16
Á sýningunni Blik, sem verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum næstkomandi laugardag, er varpað ljósi á op–listina og þau áhrif sem hún hefur haft á íslenska listamenn frá miðjum sjöunda áratugnum til dagsins í dag.
> Sjá nánar
HUGMYNDAHÚS HÁSKÓLANNA. FIMMTUDAG 10. SEPTEMBER KL. 20
HÖNNUNARMIÐSTÖÐ ÍSLANDS hefur í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur gengist fyrir mánaðarlegri dagskrá í Hafnarhúsinu á fimmtudagskvöldum.
Næstkomandi fimmtudagskvöld verður starfsemi og hugmyndafræði Hugmyndahúss Háskólanna í brennidepli.
> Sjá nánar
NORRÆNAR KVIKMYNDIR
Norrænar kvikmyndir er yfirskrift útstillingar í tón- og mynddeild Borgarbókasafnsins í Grófarhúsi, í tilefni af opnun sýningar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi, á máluðum römmum úr kvikmyndum þeirra Friðriks Þórs Friðrikssonar og Lars von Triers.
> Sjá nánar
FRIÐRIK OG ARI RÆÐA ENDURKYNNI RAMMANNA SUNNUDAG 6. SEPTEMBER KL. 15
Sunnudaginn 6. september kl. 15 verða kvikmyndagerðarmennirnir Friðrik Þór Friðriksson og Ari Alexander Ergis Magnússon í Hafnarhúsinu og fjalla um sýninguna Endurkynni rammanna.
> Sjá nánar
NÝ SÝNINGADAGSKRÁ ER KOMIN ÚT!
Sýninga- og viðburðadagskrá Listasafns Reykjavíkur hefur litið dagsins ljós.
Fram að áramótum eru í boði 14 sýningar og 90 viðburðir.
Ókeypis er á allar sýningar og alla viðburði sem Listasafnið stendur fyrir nema annað sé tekið fram.
> Sjá nánar
FRÉTTABRÉF LISTASAFNS REYKJAVÍKUR
Haustið er innan seilingar og framundan hjá Listasafni Reykjavíkur er líflegt sýningaár með fjölbreyttum listsýningum og ótal viðburðum. Næstkomandi fimmtudag verða opnaðar þrjár sýningar í Hafnarhúsinu sem marka upphaf sýningatímabils vetrarins. Næstkomandi sunnudag verður listamannaspjall í Hafnarhúsinu auk þess sem Listasafnið tekur þátt í Hverfahátíð Miðborgar og Hlíða á Kjarvalsstöðum, en hún fer fram næsta laugardag.
> Sjá nánar
ERRÓ - JAPÖNSK ÁSTARBRÉF (1979-1980). FIMMTUDAG 3. SEPTEMBER KL. 17
Japönsk ástarbréf er önnur syrpan á verkum Errós sem tengist sýningunni Mannlýsingar sem opnuð var fyrr á þessu ári. Syrpan er ekki einkennandi fyrir myndlist Errós þar eð litbrigði verkanna eru grá og brún, sem er ákaflega óvenjulegt hjá þessum litaglaða málara.
> Sjá nánar
D13 INGIBJÖRG BIRGISDÓTTIR. OPNUN FIMMTUDAG 3. SEPTEMBER KL. 17
Þrettándi listamaðurinn í D-salar sýningaröðinni er Ingibjörg Birgisdóttir (1981) sem sýnir nýtt myndbandsverk og bútasaums verk á vegg. Yfirskrift sýningarinnar er Hvergi en óræða merkingu orðsins er víða að finna í innsetningu hennar.
> Sjá nánar
SÝNINGARLOK - JAZZÓÐUR
Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna Jazzóður á Kjarvalsstöðum, en henni lýkur í dag mánudaginn 31. ágúst. Aðgangur ókeypis.
> Sjá nánar
ENDURKYNNI RAMMANNA – FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON OG LARS VON TRIER. FIMMTUDAG 3. SEPTEMBER KL. 17
Það eru 129.600 myndrammar í níutíu mínútna langri kvikmynd og hver þeirra sést aðeins í brot af sekúndu. Þannig er upplifun okkar af kvikmyndinni ólík því að skoða málverk þar sem við ráðum því sjálf hve langan tíma við tökum okkur til að skoða myndina og velta henni fyrir okkur. Á sýningunni Endurkynni rammanna í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi hefur Friðrik Þór Friðriksson valið myndir eða ramma úr kvikmyndum sínum og Lars von Triers sem síðan hafa verið málaðir upp með olíulitum á gríðarstóra strigafleti.
> Sjá nánar
SÝNINGALOK - FRÁ UNUHÚSI TIL ÁTTUNDA STRÆTIS. SUNNUDAG 30. ÁGÚST
Sýningin um tvær af okkar mikilvirkustu myndlistarkonum um miðja síðustu öld þær, Nínu Tryggvadóttur og Louisu Matthíasdóttur lýkur næstkomandi sunnudag, 30. ágúst.
> Sjá nánar
KALLINN Í KÚLUHÚSINU. GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR OG ÓLÖF ARNALDS Í ÁSMUNDARSAFNI. SUNNUDAG 30. ÁGÚST KL. 14
Tvær af ástsælustu listakonum þjóðarinnar þær Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Ólöf Arnalds söngkona bjóða fjölskyldufólki að slást í för með sér og skoða sýninguna Rím í Ásmundarsafni í tali og tónum.
> Sjá nánar
JAZZ BRÆÐINGUR. DAGANA 27. – 29. ÁGÚST
Listasafn Reykjavíkur er samstarfsaðili Jazzhátíðar í Reykjavík og tekur virkan þátt í dagskrá hátíðarinnar með sýningu, fyrirlestrum, tónleikum og tangóballi.
> Sjá nánar
SVIÐSETT LÍF – ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON. FIMMTUDAG 27. ÁGÚST KL. 19:30
Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur er einn þeirra sem ritar í sýningarskrá sem gefin var út í tengslum við sýninguna Erró – Mannlýsingar. Þar leggur hann út frá mynd Errós Trafalgar 1805, sem Erró málaði árið 1977 og sýnir Nelson flotaforingja og dauða hans á Trafalgar.
> Sjá nánar
LÍÐUR AÐ HAUSTI – UPPSKERUTÓNLEIKAR MEÐ VERKUM ÁSKELS MÁSSONAR. SUNNNUDAG 30. ÁGÚST KL. 20:00
Áskell Másson er eitt virtasta og afkastamesta tónskáld okkar Íslendinga. Á sunnudaginn 30. ágúst gefst einstakt tækifæri til að hlýða á brot af tónverkum hans á tónleikum sem tónskáldið og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir á Kjarvalsstöðum. Miðasala við innganginn. Miðaverð kr. 1.500,-
> Sjá nánar
SÍÐUSTU FORVÖÐ AÐ SJÁ MÖGULEIKA
Sýningin Möguleikar - Listsjóður Guðmundu S. Kristinsdóttur lýkur sunnudaginn 23. ágúst.
Á sýningunni eru verk tíu íslenskra samtímalistakvenna sem allar hafa hlotið viðurkenningu úr Listsjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur.
Hafnarhúsið er opið daglega frá kl. 10-17 og alla fimmtudag 10-22.
> Sjá nánar
JAZZDÍVUR Á KJARVALSSTÖÐUM. Sunnudag 23. ágúst kl. 16.00
Tvær af fremstu jazzsöngkonum landsins bjóða til sannkallaðrar söngveislu á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 23. ágúst kl. 16:00 í tengslum við Jazzhátíð í Reykjavík. Þetta eru þær Ragnheiður Gröndal og Kristjana Stefánsdóttir sem syngja sig inn í jazzhjörtu gesta með píanistanum Eyþóri Gunnarssyni, Guðmundi Péturssyni gítarleikara og Róberti Þórhallssyni bassaleikara.
> Sjá nánar
MENNINGARNÓTT Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR
Aldrei fyrr hefur Listasafn Reykjavíkur státað af jafn fjölbreyttri dagskrá á Menningarnótt og núna. Húsin verða opin frá morgni og langt fram á kvöld og dagskrá sniðin að þörfum menningarþyrstra gesta á öllum aldri.
> Sjá nánar
KENNARAKVÖLD Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR. FIMMTUDAG 20. ÁGÚST KL. 20
Það er spennandi skólaár framundan í Listasafni Reykjavíkur. Fimmudagskvöldið 20. ágúst kl. 20 mun Hafþór Yngvason, safnstjóri og listfræðingur kynna sýningadagskrá skólaársins í fjölnotasal Hafnarhúss. AlmaDís Kristinsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og menntunarfræðingur mun kynna fræðslumöguleika í tengslum við sýningar framundan í öllum safnhúsum (Hafnarhús, Kjarvalsstaðir og Ásmundarsafn), námskeið haustsins og aðrar nýungar.
> Sjá nánar
JAZZ-SMIÐJUR OG MASTERCLASS. KJARVALSSTÖÐUM 17 - 19 ÁGÚST
Þriðjudagur 18. ágúst
Kjarvalsstaðir - Jazz workshop
Kl. 14.00 – 16.00 Open workshop
Kl. 16.00 – 17.00 Open masterclass - Hilmar Jensson ræðir tónlist sína
> Sjá nánar
ÚR HVERJU ERU LISTAVERK? – FYRIR FJÖLSKYLDUNA. SUNNUDAG 16. ÁGÚST KL. 15
Í fjölskylduleiðsög næstkomandi sunnudag kl. 15 mun AlmaDís Kristinsdóttir verkefnastjóri fræðslu hjá Listasafninu fara um sýninguna og skoða hinn fjölbreytta efnivið verkanna og ræða þá möguleika sem listamaðurinn hefur úr að moða. Lögð er áhersla á að gestir séu virkir þátttakendur í ferðinni um sýninguna og komi sínum hugmyndum á framfæri.
> Sjá nánar
JAZZÓÐUR / JAZZ Í ÍSLENSKRI MYNDLIST. KJARVALSTAÐIR SUNNUDAG 16. ÁGÚST KL. 16.00
Sýningin Jazzóður – Jazz í íslenskri myndlist er framlag Listasafns Reykjavíkur til Jazzhátíðar í Reykjavík sem nú fagnar tuttugu ára afmæli sínu. Sýningin verður opnuð á Kjarvalsstöðum næstkomandi sunnudag kl. 16 við undirleik sænska bandsins Music Music Music sem skipað er Michael Edlund trommleikara, Fabian Kallerdahl píanóleikara og Josef Kallerdahl bassaleikara.
> Sjá nánar
LOKAÚTKALL!
Sunnudaginn 9. ágúst lýkur sýningunni Íslensk hönnun 2009 á Kjarvalsstöðum.
> Sjá nánar
KVIKMYNDA- OG VÍDEÓHÁTÍÐIN. 700IS HREINDÝRALAND. Hafnarhús 6. – 9. ágúst
Frá fimmtudegi til sunnudags verða á fimmta tug verka frá hinni árlegu kvikmyndahátíð austurlands, 700IS Hreindýraland, sýnd í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 2006 og hefur vakið mikla athygli fyrir framúrstefnulega kvikmyndagerð með tilraunakenndum kvikmyndum og myndbandsverkum eftir þekkta innlenda og erlenda listamenn.
> Sjá nánar
Reykjavík Safarí!
Fimmtudagskvöldið 16. júlí kl. 20 bjóða menningarstofnanir Reykjavíkurborgar til kvöldgöngu úr Kvosinni þar sem menningarlífið í miðborginni verður kynnt á pólsku, tælensku, ensku og spænsku.
Þátttakendur geta valið um leiðsögn á fyrrnefndum tungumálum en hóparnir fjórir munu svo hittast í lok göngu í Hafnarhúsinu þar sem boðið verður upp á hressingu og stutt skemmtiatriði þar sem Sigríður Thorlacius, söngkona Hjaltalíns, syngur fyrir gestina.
Lagt verður af stað frá Grófarhúsi kl. 20 og tekur gangan um klukkustund en dagskránni í Hafnarhúsinu lýkur um kl. 22. Þátttaka er ókeypis. Allir eru velkomnir!
> Sjá nánar
GRJÓTAÞORPIÐ – FYRSTA ÍBÚÐAHVERFIÐ Í REYKJAVÍK. FIMMTUDAG 30. JÚLÍ KL. 20
Síðasta Kvosarganga júlímánaðar er í höndum Guju Daggar Hauksdóttur, deildarstjóra byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur. Í göngunni verður farið um Grjótaþorpið og skoðaðar þær fjölbreytilegu birtingarmyndir íbúðahúsa sem þar eru, allt frá lágreistum timburhúsum til splunkunýrra glæsihúsa.
> Sjá nánar
FJÖLSKYLDULEIÐSÖGN: KJARVAL OG DÝRIN. LAUGARDAG 25. JÚLÍ KL. 14
Á Kjarvalsstöðum verður boðið upp á dagskrá fyrir alla fjölskylduna næstkomandi laugardag kl. 15 þar sem skoðaðar verða sérstaklega myndir af dýrum eftir Kjarval. Fræðslufulltrúi Listasafns Reykjavíkur, Klara Þórhallsdóttir, sér um dagskránna en í norðursal Kjarvalsstaða hefur verið sett upp sýning þar sem lögð er áhersla á dýramyndir Kjarvals sérstaklega með börn í huga.
> Sjá nánar
ÍSLENSK HÖNNUN 2009 – SÝNINGARSTJÓRASPJALL. SUNNUDAG 12. JÚLÍ KL. 15
Næstkomandi sunnudag er hinn Íslenski safnadagur haldinn hátíðlegur. Af því tilefni mun Listasafn Reykjavíkur bjóða upp á einstakt tækifæri til að kynnast íslenskri hönnun og arkitektúr í fremstu röð í spjalli sem Elísabet V. Ingvarsdóttir, sýningarstjóri sýningarinnar Íslensk hönnun 2009 – húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr annast á Kjarvalsstöðum. Sýningin er unnin í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands. Aðgangur er ókeypis.
> Sjá nánar
SÝNINGARSTJÓRASPJALL HRAFNHILDAR SCHRAM. SUNNUDAG 26. JÚLÍ KL. 15
Sýningarstjórinn og listfræðingurinn Hrafnhildur Schram verður með leiðsögn á Kjarvalsstöðum um sýninguna Frá Unuhúsi til Áttunda strætis sunnudaginn 26. júlí kl. 15. Leiðarstef sýningarinnar er ferill listamannanna Louisu Matthiasdóttur og Nínu Tryggvadóttur og tengsl þeirra við aðra listamenn, skáld og rithöfunda á Íslandi og í New York um miðja síðustu öld, en Hrafnhildur er sérfróð um tímabilið og ritaði m.a. bók um Nínu Tryggvadóttur.
> Sjá nánar
Bókin Erró – Mannlýsingar
Bókin Erró – Mannlýsingar er komin út í samstarfi Bókaútgáfunnar Opnu og Listasafns Reykjavíkur. Hún gefin út í tilefni af 20 ára afmæli listaverkagjafar Errós og fylgir samnefndri sýningu í Listasafni Reykjavíkur.
> Sjá nánar
FJÖLSKYLDULEIÐSÖGN – HVAÐ GERIR LISTAVERK AÐ LISTAVERKI? SUNNUDAG 28. JÚNÍ KL. 15
Næstkomandi sunnudag klukkan þrjú verða sýningarnar Erró - Mannlýsingar og Möguleikar, sem sýnir verk tíu samtímalistakvenna, skoðaðar frá sjónarhóli fjölskyldunnar.
> Sjá nánar
VATNSLITIR Í 100 ÁR. LAUGARDAGINN 27 JÚNÍ KL. 14 – 16.30
Laugardaginn 27. júní verður í Hafnarhúsinu viðamikil dagskrá helguð
vatnslitamálun með þátttöku listamanna og listfræðinga.
Dagskráin hefst klukkan 14.00 með fyrirlestri Hrafnhildar Schram um
frumherja í vatnslitun á Íslandi, að því búnu tekur Aðalsteinn
Ingólfson til máls og fjallar um vatnsliti í abstraktlistinni, þá
fremur Halldór Ásgeirsson gjörning og að lokum mun JBK Ransu fjalla
um vatnslitamálun eins og hún birtist í samtímalist.
> Sjá nánar
UNA DÓRA COPLEY, DÓTTIR NÍNU TRYGGVA MEÐ Í LEIÐSÖGN. SUNNUDAG 21. JÚNÍ KL. 15
Næstkomandi sunnudag kl. 15 mun Una Dóra Copley taka þátt í leiðsögn Hafþórs Yngvasonar, safnstjóra um sýninguna Frá Unuhúsi til Áttunda strætis. Una Dóra er dóttir listamannahjónanna Nínu Tryggvadóttur og Alfred L. Copley og býr og starfar í New York.Leiðarstef sýningarinnar er ferill listamannanna Louisu Matthiasdóttur og Nínu Tryggvadóttur og tengsl þeirra við aðra listamenn, skáld og rithöfunda á Íslandi og í New York um miðja síðustu öld, en sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram
> Sjá nánar
RÍM - SÝNINGARSTJÓRASPJALL. SUNNUDAG 5. JÚLÍ KL. 14
Sigríður Melrós Ólafsdóttir, sýningarstjóri Rím í Ásmundarsafni verður með leiðsögn um sýninguna næstkomandi sunnudag kl. 14. Yfirskrift sýningarinnar vísar til þess skyldleika í verkum eftir íslenska samtímalistamenn sem finna má víða við mörg verka myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar.
> Sjá nánar
RÍM - BIRGIR SNÆBJÖRN OG DAVÍÐ ÖRN. SUNNUDAG 14. júní KL. 14
Birgir Snæbjörn Birgisson og Davíð Örn Halldórsson eru tveir af tólf listamönnum sem eiga verk á sýningunni Rím í Ásmundarsafni. Næstkomandi sunnudag kl. 14 munu þeir skoða sýninguna í fylgd með gestum og segja frá skyldleika í verkum þeirra og Ásmundar Sveinssonar.
> Sjá nánar
SKIPULAG AUÐNARINNAR – HJÁLMAR SVEINSSON. FIMMTUDAG 11. JÚNÍ KL. 20
Skipulag auðnarinnar er yfirskrift göngu sem Hjálmar Sveinsson mun leiða frá Hafnarhúsinu að Höfðatorgi næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20:00, en Hjálmar er kunnur fyrir gagnrýna umfjöllun sína um skipulagsmál í Reykjavík. Gangan er hluti af verkefninu Kvöldgöngur úr Kvosinni sem er dagskrá sem menningarstofnanir borgarinnar hafa sett saman hvert fimmtudagskvöld yfir sumartímann og stendur nú til boða fimmta árið í röð.
> Sjá nánar
ÍSAFOLD – BEST OF THE DEEP. FIMMTUDAG 25. JÚNÍ KL. 20.00
Ung og efnileg, íslensk tónskáld verða í sviðsljósinu á tónleikum Ísafoldar á Kjarvalsstöðum næstkomandi fimmtudag kl. 20. Tónleikarnar eru samstarfsverkefni Ísafoldar og Listasafns Reykjavíkur. Á efnsiskránni verður einnig tónlist eftir Nico Muhly og Daníel Bjarnason.
> Sjá nánar
UPPHAFIÐ Í ENDINUM - Hugmyndir um virkjun hrunsins. FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ KL. 20
Þýski hugmynda- og tengslasmiðurinn og Íslandsvinurinn Christoper Patrick Peterka heldur fyrirlestur í Hafnarhúsinu fimmtudaginn 18. júní kl. 20. Fyrirlesturinn er skipulagður af Hönnunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur. Hann fer fram á ensku, er ókeypis og öllum opinn.
> Sjá nánar
INNVIÐIR UNUHÚSS. SUNNUDAG 7. JÚNÍ KL. 15
Á sunnudaginn klukkan þrjú lifnar við í máli og myndum hið sögufræga Unuhús við Garðastræti 15 í framsögum Silju Aðalsteinsdóttur, Gests Ólafssonar og Jóns Karls Helgasonar á Kjarvalsstöðum.
> Sjá nánar
ENSK LEIÐSÖGN
Í SUMAR ER BOÐIÐ UPP Á GJALDFRJÁLSA LEIÐSÖGN Á ENSKU Á KJARVALSSTÖÐUM ALLA FIMMTUDAGA KL. 11:00.
> Sjá nánar
FJÓRIR VERÐLAUNAHAFAR. FIMMTUDAG 4. JÚNÍ KL. 20
Listakonurnar Guðrún Vera Hjartardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Sara Björnsdóttir og nýjasti verðlaunahafi Guðmundusjóðsins, Margrét H. Blöndal, ræða verk sín og feril næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20:00 í Hafnarhúsinu.
> Sjá nánar
FRUM NÚTÍMATÓNLISTARHÁTÍÐ. HELGINA 6. OG 7. JÚNÍ
frum- er nútímatónlistarhátíð sem haldin er á Kjarvalsstöðum í júní ár hvert. Megináhersla hátíðarinnar er að kynna meistaraverk nútímatónbókmenntanna fyrir tónlistarunnendum, verk sem þegar hafa sett mark sitt á tónlistarsöguna en þó eru sjaldheyrð í tónleikahúsum Reykjavíkur.
> Sjá nánar
MARGRÉT H. BLÖNDAL HLÝTUR STYRK ÚR LISTASJÓÐI GUÐMUNDU S. KRISTINSDÓTTUR
Í dag afhentu listamaðurinn Erró og borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Margréti H. Blöndal verðlaunafé og viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur fyrir framlag sitt á sviði myndlistar. Afhendingin fór fram við opnun sýninganna Erró – Mannlýsingar og Möguleikar – Listasjóður Guðmundu Kristinsdóttur, en Margrét á verk á þeirri síðari ásamt hinum níu listakonum sem hlotið hafa viðurkenningu úr sjóðnum.
Sjóðinn stofnaði Erró til minningar um frænku sína Guðmundu og er honum ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna. Er þetta í tíunda sinn sem styrkur er veittur úr sjóðnum en framlagið rennur til listakonu sem þykir skara fram úr. Stjórn sjóðsins skipa safnstjórar Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands og Listasafnsins á Akureyri.
> Sjá nánar
ERRÓ OG RJÓMI ÍSLENSKRA LISTAKVENNA 28. MAÍ KL. 18
Listamaðurinn Erró verður viðstaddur opnun á nýrri sýningu Listasafns Reykjavíkur á mannlýsingamyndum hans af þjóðþekktum einstaklingum, lífs eða liðnum. Á sama tíma verður opnuð sýning á verkum íslenskra kvenna sem hlotið hafa viðurkenningu úr sjóði sem kenndur er við móðursystur Errós, Guðmundu Kristinsdóttur og tíundi verðlaunahafinn hlýtur viðurkenningu.
> Sjá nánar
SÝNINGARSTJÓRASPJALL HRAFNHILDAR SCHRAM FRÁ UNUHÚSI TIL ÁTTUNDA STRÆTIS. SUNNUDAG 24. MAÍ KL. 15
Sýningarstjórinn og listfræðingurinn Hrafnhildur Schram verður með leiðsögn á Kjarvalsstöðum um sýninguna Frá Unuhúsi til Áttunda strætis sunnudaginn 24. maí kl. 15. Leiðarstef sýningarinnar er ferill listamannanna Louisu Matthiasdóttur og Nínu Tryggvadóttur og tengsl þeirra við aðra listamenn, skáld og rithöfunda á Íslandi og í New York um miðja síðustu öld, en Hrafnhildur er sérfróð um tímabilið og ritaði m.a. bók um Nínu Tryggvadóttur.
> Sjá nánar
ÁTTAVITALEIÐANGUR FJÖLSKYLDUNNAR. SÍÐASTA SÝNINGARHELGI ELÍNAR HANSDÓTTUR
Út frá sjónarhorni byggingarlistarinnar eru Hafnarhúsið og sýning Elínar Hansdóttur, Parallax hafsjór af óvæntum fjársjóði, sem gestum á öllum aldri gefst tækifæri á að uppgötva næstkomandi sunnudag kl. 15 með aðstoð Fræðsluáttavitans. Um helgina lýkur sýningu Elínar en hún leikur sér með rými Hafnarhússins og skynjun og upplifun áhorfandans. Sýningin hefur hlotið mjög góða aðsókn og vakið verðskuldaða athygli.
> Sjá nánar
SUMARDAGSKRÁ LISTASAFNS REYKJAVÍKUR KOMIN ÚT
Sjö sýningar verða í Listasafni Reykjavíkur í sumar; ein í Ásmundarsafni, tvær í Hafnarhúsinu og fjórar á Kjarvalsstöðum. Listasafnið býður einnig upp á fjölbreytta dagskrá sem tengist sýningum. Einnig eru í boði skipulagaðar gönguferðir, tónleikar, fjölskylduviðburðir, vídeókvöld og fleira og fleira.
> Sjá nánar
SUMARSÝNINGAR KJARVALSSTAÐA OPNA
Sumarsýningar Listasafns Reykjavíkur - Kjarvalsstaða verða opnaðar næstkomandi föstudag 15. maí við sama tækifæri og setning Listahátíðar fer fram. Megin sýning safnsins, Frá Unuhúsi til Áttunda strætis, hefur verið þrjú ár í undirbúningi en þar eru olíumálverk eftir Louisu Matthíasdóttur og Nínu Tryggvadóttur, sem hafa aldrei áður verið sýnd hér á landi auk verka eftir lærimeistara þeirra beggja, Hans Hofmann og aðra nemendur hans sem getið hafa sér gott orðspor vestanhafs. Stór hluti sýningarinnar er helgaður verkum sem Louisa og Nína máluðu af samferðarmönnum sínum í Unuhúsi. Þá verður opnuð sýning á íslenskri hönnum sem er unnin í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands.
> Sjá nánar
RÍM - SÝNINGARSTJÓRASPJALL. SUNNUDAG 10. MAÍ KL. 14
Fjölmargir, íslenskir samtímalistamenn eiga samleið með myndhöggvaranum Ásmundi Sveinssyni eins og sést glöggt á sýningunni Rím, sem nýlega var opnuð í Ásmundarsafni.
Næstkomandi sunnudag mun Ólöf K. Sigurðardóttir vera með sýningarstjóraspjall.
> Sjá nánar
ELEKTRA ENSEMBLE – VERK GÖMLU MEISTARANNA. SUNNUDAG 10. MAÍ KL. 20
ELEKTRA ENSEMBLE er glæsilegur tónlistarhópur skipaður fimm, ungum og framúrskarandi tónlistarkonum. Hópurinn var á dögunum tilnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2009 og í kjölfarið gekk hópurinn til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð á Kjarvalsstöðum. Tónleikaröðin er þematengd þar sem haldið verður á vit framandi slóða um víða veröld. Á tónleikunum á sunnudag verður haldið til Þýskalands og Austurríkis þar sem verk gömlu meistaranna, Mozarts, Beethovens og Brahms verða í hávegum höfð. Þegar hefur Elektra Ensemble haldið eina tónleika á Kjarvalsstöðum þar sem viðkomustaðurinn var Rússland.
> Sjá nánar
FÉLAGAR FLÓKA - FIMMTUDAG 7. MAÍ KL. 20. SÝNINGARLOK SUNNUDAG 10. MAÍ
Gríðarlega góð aðsókn hefur verið á sýninguna Skuggadrengur – Heimur Alfreðs Flóka frá því hún var opnuð í byrjun febrúar en tæplega 36.000 gestir hafa komið í Hafnarhúsið á tímabilinu. Sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag 10. maí en næstkomandi fimmtudagskvöld, 7. maí, verður merkisviðburður í Hafnarhúsinu í tengslum við sýninguna þegar margir af helstu vinum Flóka koma saman og minnast hans með margvíslegu móti.
> Sjá nánar
STÓRKOSTLEG LISTAVERKAGJÖF
Þriðjudaginn 5. maí, var afhjúpuð í Hafnarhúsinu ný og ómetanleg listaverkagjöf sem listamaðurinn Erró hefur fært Listasafni Reykjavíkur.
Alls eru verkin um 150 talsins og standa aðallega saman af grafíkmyndum, klippimyndum og olíuprenti á striga. Erró er svo væntanlegur hingað til lands undir lok maí vegna gjafarinnar og nýrrar sýningar á verkum hans.
> Sjá nánar
ELÍN HANSDÓTTIR – INNSETNINGIN KRUFIN. SUNNUDAG 3. MAÍ KL. 15
Næstkomandi sunnudag kl. 15 mun innsetning Elínar Hansdóttur, Parallax verða skoðuð og greind út frá ýmsum sjónarhornum. Leiðsögn verður um sýninguna en þeir sem bregða ljósi á verkið eru Hjálmar Sveinsson, útvarpsmaður og útgefandi, Ólafur Mathíesen, arkitekt, Shauna Laurel Jones, listfræðingur og Magnús Þór Þorbergsson, lektor við leiklistardeild LHÍ.
> Sjá nánar
SNERTIFLETIR MYNDLISTAR OG BYGGINGARLISTAR STEVE CHRISTER OG KRISTINN E. HRAFNSSON. HAFNARHÚS FIMMTUDAG 30. APRÍL KL. 20
Verslunarmiðstöðin Kringlan verður í sviðsljósinu í þriðja fyrirlestrinum sem byggingarlistardeild Listasafns Reykjavíkur gengst fyrir í umræðusyrpu um snertifleti myndlistar og byggingarlistar. Umræðan beinist að einum af grunnþáttum í manngerðu umhverfi okkar, þ.e. umgjörð almennra borgara í byggingum og opnu rými tengdum samskiptum, s.s. verslun og viðskiptum.
> Sjá nánar
SAMTÍMAHEIMSPEKI Í SÝNINGU JEANNETTE. JEANNETTE CASTIONI OG ÓLAFUR GÍSLASON SUNNUDAG 26. APRÍL KL. 15
Listamaðurinn Jeannette Castioni og listfræðingurinn Ólafur Gíslason skoða og fjalla um sýningu Jeannette sem nú stendur yfir í D-sal Hafnarhússins. Farið verður í leiðsögn um sýninguna en að því loknu mun Ólafur fjalla um sýninguna í máli og myndum út frá hugmyndum ítalsaka heimspekingsins Umberto Galimberti um fyrirbærafræði sem komu fram í bókinni Il corpo.
> Sjá nánar
SÚRREALISMI SKUGGADRENGSINS. SJÓN FJALLAR UM VERK ALFREÐS FLÓKA. SUNNUDAG 19. APRÍL KL. 15
Næstkomandi sunnudag klukkan þrjú mun skáldið og sýningarstjórinn Sjón rifja upp kynni sín af listamanninum Alfreð Flóka og beina athyglinni sérstaklega að því hvernig súrrealisminn birtist í verkum hans.
> Sjá nánar
ÁSMUNDARSAFN LOKAÐ TIL 2. MAÍ
Vinsamlegast athugið að Ásmundarsafn er lokað frá 20. apríl,
Ný sýning, RÍM verður opnuð í safninu 2. maí og verður safnið opið daglega frá kl. 10 - 16 yfir sumarmánuðina.
> Sjá nánar
FERÐAFAGNAÐUR LAUGARDAGINN 18. APRÍL
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús tekur þátt í Ferðafagnaði á vegum Reykjavíkurborgar með áherslu á fjölskylduna. Í Hafnarhúsinu og Ásmundarsafni stendur fjölskyldum til boða sérstakur leiðangur sem heitir HVAÐ ER SVONA MERKILEGT VIÐ SAFN?
> Sjá nánar
OSTASKERI EÐA RAKVÉL – FYRIRLESTUR ILMAR STEFÁNSDÓTTUR. FIMMTUDAG 16. APRÍL KL. 20
Viðfangsefni myndlistarmannsins Ilmar Stefánsdóttur snúast oftar en ekki um það að hugsa út fyrir rammann. Viðjar vanans lætur hún lönd og leið og leyfir hversdagslegum hlutum að leiða sig inn í undraheima sköpunarinnar með því að ljá þeim nýtt og notadrjúgt gildi.
> Sjá nánar
PÁSKALEIKUR Í ÁSMUNDARSAFNI LAUGARDAGINN 11. APRÍL KL. 14 - 15
Ratleikur um hinn ævintýralega styttugarð sem umlykur Ásmundarsafn verður í boði fyrir alla fjölskylduna. Páskaeggjum verður komið fyrir á völdum stöðum í styttunum og felst ratleikurinn í því að skoða garðinn og finna eggin.
> Sjá nánar
OPIÐ ALLA PÁSKANA Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR. SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Á KJARVALSSTÖÐUM
Öll hús Listasafns Reykjavíkur eru með hefðbundinn opnunartíma yfir páskana og er aðgangur ókeypis. Á laugardeginum, 11. apríl er boðið upp á FJÖLSKYLDUDAGSKRÁ í Ásmundarsafni frá kl. 13-16.
> Sjá nánar
ELEKTRA ENSEMBLE - RÚSSNESKT ÆVINTÝRI. MIÐVIKUDAG 8. APRÍL KL. 20
Elektra Ensemble er glæsilegur tónlistarhópur skipaður fimm, ungum og framúrskarandi tónlistarkonum. Hópurinn var á dögunum tilnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar og í kjölfarið gekk hópurinn til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð á Kjarvalsstöðum.
> Sjá nánar
FEGURÐARFLÉTTUR SUNNUDAG 5. APRÍL KL. 15
Alþjóðlegur meistari í skák Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, stórmeistarinn Helgi Ólafsson og safnstjórinn Hafþór Yngvason rýna í hugtak fagurfræðinnar í samhengi við skáklistina á Kjarvalsstöðum næstkomandi sunnudag klukkan 15:00.
> Sjá nánar
UM INNRI OG YTRI SKYNJUN DR. HAUKUR INGI JÓNASSON. FIMMTUDAG 2. APRÍL KL. 20
Í fyrirlestri sínum í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi næstkomandi fimmtudagskvöld skoðar Dr. Haukur Ingi Jónasson hvernig við skynjum umhverfi okkar og sýnir fram á hvernig ímyndunaraflið vinnur á mörkum þess innra og ytra.
> Sjá nánar
HLAUT HÁLFA MILLJÓN OG SAMNING
Hönnuðurinn Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hlaut 500.000 króna verðlaun fyrir tillögu sína Minnistafla í hönnunarsamkeppni sem Listasafn Reykjavíkur, Kraum og Hönnunarmiðstöð Íslands stóðu fyrir.
> Sjá nánar
SAGA SKÁKLISTARINNAR. FYRIRLESTUR HELGA ÓLAFSSONAR. SUNNUDAG 29. MARS KL. 15
Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák, heldur fyrirlestur um sögu skáklistarinnar í tengslum við sýninguna Skáklist á Kjarvalsstöðum.
> Sjá nánar
BÖRN OG BYGGINGARLIST. LAUGARDAG OG SUNNUDAG Í HAFNARHÚSINU
Listasafn Reykjavíkur býður til hófs í tilefni af útgáfu bókarinnar Byggingarlist í augnhæð eftir Guju Dögg Hauksdóttur, laugardaginn 28. mars kl. 15.
> Sjá nánar
VERÐLAUNAVEITING Í ERRÓSAMKEPPNI. FÖSTUDAGUR 27. MARS KL. 12:00
Næstkomandi föstudag mun borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, afhenda hönnunarverðlaun í samkeppni, sem efnt var til fyrir nokkru í gerð nytjahlutar með innblæstri eða tilvísun í listaverk eftir Erró.
> Sjá nánar
MUNDI, NÝ LÍNA – TÍSKUSÝNING Í HAFNARHÚSINU
Línan verður kynnt með veglegri og óhefðbundinni tískusýningu í Hafnarhúsinu
næstkomandi fimmtudaginn 26. mars klukkan 20:00.
> Sjá nánar
TÍSKUSÝNING MUNDA / ERRÓVERÐLAUN / BÓKAÚTGÁFA / BÖRN OG BYGGINGARLIST FIMMTUDAG 26. - SUNNUDAGS 28. MARS
HönnunarMarsinn heldur innreið sína í Hafnarhúsið á fimmtudaginn.
> Sjá nánar
LISTAMANNSSPJALL ELÍNAR HANSDÓTTUR. SUNNUDAG 22. MARS KL. 15
Sýning Elínar Hansdóttur, Parallax. Um er að ræða innsetningu, sem leikur sér með upplifun og skynjun áhorfandans útfrá sjónsviði og mögulegri bjögun þess.
> Sjá nánar
FLÚXUSGJÖRNINGUR SÆLKERANNA EFTIR TAKAKO SAITO. GJÖF TIL LISTASAFNS REYKJAVÍKUR. LAUGARDAG 21. MARS KL. 17 - 19
Nafntogaðir sælkerar og þjóðþekktir einstaklingar taka þátt í sögulegum Flúxusgjörningi á Kjarvalsstöðum. Gjörningurinn er gjöf hins heimskunna Flúxus listamanns, Takako Saito, til Listasafns Reykjavíkur í tilefni af skáksýningunni Skáklist á Kjarvalsstöðum. Saito hefur búið til yfir eitt hundrað skákborð sem mörg hver byggja á skynjun þeirra sem tefla. Það á einnig við um skákgjörninginn sem hún hefur fært Listasafninu að gjöf, en hann felst annars vegar í því að tefla með léttvíni og hins vegar snittum.
> Sjá nánar
MOZART, MASSENET OG MONTI HÁDEGISTÓNLEIKAR. FÖSTUDAG 20. MARS KL. 12.15. AÐGANGUR ÓKEYPIS
Listasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið verið í samstarfi um hádegistónleikaröð á Kjarvalsstöðum. Aðgangur á tónleikana er gjaldfrjáls og er efnisskráin jafnan samsett af kunnum, klassískum perlum.
> Sjá nánar
TVÆR OPNANIR FIMMTUDAGINN 19. MARS KL. 17. ELÍN HANSDÓTTIR OG JEANETTE CASTIONI
D-12 – JEANNETTE CASTIONI
Jeannette er tólfti listamaðurinn sem sýnir í sýningaröðinni sem kennd er við D-sal Hafnarhússins. Á sýningu sinni í D-sal, Hver er hræddur við hvern lítur hún yfir svið hins ímyndaða sambræðings menningarheima gegnum samskipti og tækni. Á sýningunni getur m.a. að heyra hljóðupptöku þar sem súrrealistinn Dalí ræðir um skegg sitt.
> Sjá nánar
TVÆR OPNANIR FIMMTUDAGINN 19. MARS KL. 17. ELÍN HANSDÓTTIR OG JEANETTE CASTIONI
PARALLAX / SÝNDARHLIÐRUN ELÍNAR HANSDÓTTUR
Myndlistarmaðurinn Elín Hansdóttir á að baki merkilegan feril þó ung sé að árum en hún sýnir nú í fyrsta sinn hjá Listasafni Reykjavíkur. Sýning hennar, Parallax eða Sýndarhliðrun er hluti af sýningarröð Hafnarhússins. Elín Hansdóttir fylgir sýningunni úr hlaði með listamannsspjalli sunnudaginn 22. mars kl. 15.00
> Sjá nánar
TVEIR VINIR FLÓKA. SUNNUDAG 15. MARS KL. 15
Tveir góðir vinir Alfreðs Flóka koma saman og rýna í ritverk og myndlist listamannsins í Hafnarhúsinu. Þetta eru rithöfundurinn Sjón, sem jafnframt er sýningarstjóri sýningarinnar um Alfreð Flóka og skáldið og þýðandinn Jóhann Hjálmsson.
> Sjá nánar
SÝNINGUM LÝKUR Í HAFNARHÚSINU. ÁSMUNDUR ÁSMUNDSSON OG PÉTUR MÁR GUNNARSSON
Sunnudaginn 8. mars lýkur sýningum Ásmundar Ásmundssonar og Péturs Má Gunnarssonar í Hafnarhúsinu.
> Sjá nánar
LISTAMENN LEIKSKÓLANNA OG LEIÐSÖGN Á KJARVALSSTÖÐUM. SUNNUDAG 8. MARS
LISTSKÖPUN OG SKÁKKENNSLA KL. 13
Skákakademía Reykjavíkur hefur unnið að skemmtilegu tilraunaverkefni með fjórum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu ásamt barnaspítala Hringsins en skákfélagið Hrókurinn hefur verið með reglulegar kennsluheimsóknir þangað síðastliðin fjögur ár. Verkefnið gengur út á að kynna skák á frumlegan hátt gegnum skákkennslu og listsköpun.
> Sjá nánar
ÍSLENSKUR SYMBOLISMI. FIMMTUDAGUR 5. MARS KL. 19.30
Íslenskur symbolismi er yfirskrift fyrirlestra, umræðna og ljóðalesturs sem skáldið og sýningarstjórinn Sjón mun standa fyrir í Hafnarhúsinu í tengslum við sýninguna Skuggadrengur - Alfreð Flóki.
> Sjá nánar
MÆRI PÉTURS MÁS GUNNARSSONAR. SUNNUDAG 1. MARS KL. 15. HAFNARHÚS
Listamaðurinn Pétur Már Gunnarsson fjallar um innsetningu sína Mæri í Hafnarhúsinu. Pétur Már er einn þeirra listamanna sem sýna í D-salar sýningarröðinni þar sem Listasafn Reykjavíkur vekur athygli á efnilegum myndlistamönnum sem eiga það sameiginlegt að hafa ekki sýnt í stærri söfnum landsins áður.
> Sjá nánar
GÓÐAR FRÉTTIR Í BRESKUM BLÖÐUM FRÁ LISTASAFNI REYKJAVÍKUR
Í dag, fimmtudaginn 26. febrúar birtist á forsíðu vefmiðils Daily Telegraph frétt og myndasyrpa um Skáksýninguna, Skáklist, sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum.
> Sjá nánar
NÝSKÖPUN OG MIKILVÆGI ÞVERFAGLEGS SAMSTARFS. FIMMTUDAG 12. MARS KL. 20
Á þessum fyrirlestri hönnuðarins Karls Aspelund skoðar hann hönnunarferilinn með tilliti til þess hvernig samstarf fólks úr mismunandi umhverfi og af ólíkum sviðum er áhrifarík leið að Nýsköpun. Fyrirlesturinn er samstarf Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Listasafns Reykjavíkur.
> Sjá nánar
TÁKNMYNDIR VALDSINS: SNERTIFLETIR MYNDLISTAR OG BYGGINGARLISTAR FIMMTUDAG 26. FEBRÚAR KL. 20
Viðfangsefni þessa fyrirlestrar Listasafns Reykjavíkur sem haldinn verður í Hafnarhúsinu er tengt hinu veraldlega valdi, innbyggðum táknmyndum í byggingum stjórnsýslu og ríkjandi öflum meðal þjóða. Þátttakendur eru Sigurður Einarsson arkitekt og myndlistarmennirnir Hafdís Helgadóttir og Ólöf Nordal. Fyrirlesturinn eru öllum opin.
> Sjá nánar
KAMMERKÓRINN STAKA, KJARVALSSTÖÐUM FÖSTUDAG 20. FEBRÚAR KL. 20.00
Staka er ungur kammerkór sem starfar í Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir ungan aldur hefur kórinn sungið víða og fengið mikið lof fyrir. Meðlimir Stöku hafa flestir einhverja tónlistarmenntun og kórreynslu sér að baki.
> Sjá nánar
KVENNASKÁK Á KJARVALSSTÖÐUM, SUNNUDAG 22. FEBRÚAR KL. 15
Skáklist verður í forgrunni í sunnudagsdagskrá Listasafns Reykjavíkur með áherslu á konudaginn. Klukkan þrjú verður leiðsögn um sýninguna Skáklist og hálftíma síðar munu Guðlaug Þorsteinsdóttir, fyrrverandi Íslandsmeistari kvenna í skák og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (16 ára) núverandi Íslandsmeistari kvenna etja kappi á skákborðinu.
> Sjá nánar
HÚMOR OG AMOR
Húmor og Amor er verkefni á vegum menningastofnana Reykjavíkurborgar, Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, Alþjóðahús og Hins Húsins.
> Sjá nánar
ÁSMUNDUR ÁSMUNDSSON Í SÓFASPJALLI. FIMMTUDAG 19. FEBRÚAR KL. 20:00
Í sófaspjalli fjölnotasalar Hafnarhússins næstkomandi fimmtudagskvöld mun listamaðurinn Ásmundur Ásmundsson bregða upp svipmyndum af hugmynda- og vinnuferli sínu, sýna verk sem tengjast sýningu hans í Hafnarhúsinu og spjalla við gesti um tilurð þess.
> Sjá nánar
SUNNUDAGSÞRENNA ÓKEYPIS OG ÖLLUM OPIN: SALON - SKÁKLIST - SÖNGTÓNLEIKAR. SUNNUDAG 15. FEBRÚAR
Fjölbreytt dagskrá verður í boði á Kjarvalsstöðum næstkomandi sunnudag. Þá verður boðið upp á leiðsögn um sýningar hússins, listsmiðja fjölskyldunnar verður opin að vanda og söngtónleikar til heiðurs Jóni Ásgeirssyni tónskáldi verða haldnir í dagslok. Allir viðburðir eru gjaldfrjálsir og öllum opnir
> Sjá nánar
SÖNGTÓNLEIKAR TIL HEIÐURS JÓNI ÁSGEIRSSYNI. SUNNUDAG 15. FEBRÚAR KL. 17
Söngskólinn í Reykjavík og Listasafn Reykjavíkur bjóða til ókeypis söngtónleika til heiðurs tónskáldinu Jóni Ásgeirssyni á Kjarvalsstöðum, sunnudaginn 15. febrúar kl. 17:00. Jón fyllti áttunda áratuginn í október síðastliðnum en af því tilefni hefur verið skipulögð röð tónleika honum til heiðurs.
> Sjá nánar
SAFNANÓTT Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR. FÖSTUDAGINN 13. FEBRÚAR
AMIINA, PIKKNIKK, SJÓN, ILMUR, SÖNGLEIKJATÓNLIST, SKÁKSNILLINGAR, LISTSMIÐJUR, LISTAVERKAGEYMSLUR, LISTAMENN OG LEIÐSAGNIR! OPIÐ 19-24 Á SAFNANÓTT.
> Sjá nánar
MYNDMÁL OG STJÓRNMÁL - FYRIRLESTUR GUÐMUNDAR ODDS MAGNÚSSONAR, FIMMTUDAG 12. FEBRÚAR KL. 20
Fimmtudagskvöldið 12 febrúar kl. 20 mun Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands fjalla um táknmál stjórnmála á veggspjöldum, ljósmyndum og merkjum.
> Sjá nánar
STÓRMEISTARAEINVÍGI VIÐ ELDHÚSBORÐ OG SKOÐUNARFERÐ UM SKÁKBORÐ, SUNNUDAG 8. FEBRÚAR KL. 15
Með tómatsósuflösku, gúmmíönd og þrjátíu öðrum ólíkum hlutum úr eldhúsi Paul McCarthys sem taflmenn, ætla stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Helgi Ólafsson að heyja skákeinvígi á Kjarvalsstöðum næstkomandi sunnudag kl. þrjú.
> Sjá nánar
SKUGGADRENGUR – HEIMUR ALFREÐS FLÓKA FIMMTUDAG 5. FEBRÚAR 2009
„Ég er eiginlega neyddur til að halda yfirlitssýningu á verkum mínum til þess að ganga frá þessum öpum í eitt skipti fyrir öll,” ritaði Alfreð Flóki á blað sem rak á fjörur rithöfundarins Sjóns og varð kveikjan að sýningunni Skuggadrengur – Heimur Alfreðs Flóka.
> Sjá nánar
ÁSMUNDUR ÁSMUNDSSON – LISTAMANNSSPJALL SUNNUDAG 1. FEBRÚAR KL. 15
HOLA - ÁSMUNDUR ÁSMUNDSSON
Listamaðurinn Ásmundur Ásmundsson er vel kunnur fyrir afdráttarlausa gagnrýni á samfélagið og samferðamenn hvort sem er á vettvangi myndlistar eða ritlistar
> Sjá nánar
ERRÓ - MYNDASPIL LAUGARDAG 31. JANÚAR KL. 11
Fjölskylduvæn sýning sem Ilmur Stefánsdóttir listamaður á veg og vanda að. Á sýningunni bregður Ilmur á leik með nokkur af stærri verkum Errós, brýtur þau niður í stóra, handhæga kubba sem hægt er að raða aftur samkvæmt frummyndinni, sem hangir á veggnum eða skapa ný verk.
> Sjá nánar
TRÍÓ REYKJAVÍKUR - HÁDEGISTÓNLEIKAR FÖSTUDAG 30. JANÚAR KL. 12.15
Listasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið verið í samstarfi um hádegistónleika á Kjarvalsstöðum þar sem aðgangur er ókeypis.
> Sjá nánar
SNERTIFLETIR MYNDLISTAR OG BYGGINGARLISTAR FIMMTUDAG 29. JANÚAR KL. 20
Listasafn Reykjavíkur stendur að nýrri röð fyrirlestra og umræðna sem hafa það markmið að vekja athygli á listrænum þáttum byggingarlistar.
> Sjá nánar
SKÁKLIST KJARVALSSTÖÐUM SUNNUDAG 25. JANÚAR KL. 14 OG 15
VIÐBURÐARÍKUR SUNNUDAGUR
Sýningunni er fylgt úr hlaði með viðburðaríkri dagskrá sem hefst strax sunnudaginn 25. janúar kl. 14. Þá munu listamennirnir Gavin Turk, Oliver Clegg og Paul Fryer ásamt sýningarstjóranum Juliu Royse skoða verkin með sýningargestum.
Klukkan 15:00 taka sýningastjórarnir Mark Sanders og Larry List þátt í pallborðsumræðum um skák og list ásamt Hafþóri Yngvasyni, safnstjóra.
> Sjá nánar
AFMÆLISTÓNLEIKAR MOZARTS Þriðjudaginn 27. janúar kl. 20
Samkvæmt venju undanfarin ár verða haldnir MOZART-tónleikar á Kjarvalsstöðum
næstkomandi þriðjudag, 27.janúar kl. 20, sem er fæðingardagur tónskáldsins.
> Sjá nánar
HÖNNUNARSAMKEPPNI
Hönnunarmiðstöð Íslands, verslunin Kraum og Listasafn Reykjavíkur standa sameiginlega fyrir hönnunarsamkeppni sem felst í því að hanna nytjahlut með innblæstri eða tilvísun í listaverk eftir Erró.
> Sjá nánar
S K Á K L I S T LAUGARDAG 24. JANÚAR KL. 16
Á annan tug frumlegra og óhefðbundinna skákborða eftir nokkra af kunnustu listamönnum samtímans verða á sýningunni Skáklist sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum laugardaginn 24. janúar kl. 16. Hugmyndaheimi listamannanna eru fá takmörk sett og birtast í skákborðum sem hvetja áhorfendann til að endurmeta hinn formfasta leik skáklistarinnar og þá grundvallarhugsun sem býr að baki hefðbundnum skákborðum.
> Sjá nánar
ÁSMUNDUR ÁSMUNDSSON OG PÉTUR MÁR GUNNARSSON FIMMTUDAGINN 22. JANÚAR KL. 17.00
Fyrstu sýningar Hafnarhússins á nýju ári eru á verkum listamannanna Ásmundar Ásmundssonar og Péturs Már Gunnarssonar. Ásmundur sýnir verk í A-salar sýningarröðinni sem tekst á við samfélagið og tengsl þess við myndlistina og Pétur er ellefti listamaðurinn sem sýnir í D-salnum, sem helgaður er yngri kynslóð listamanna. Sýningarnar standa báðar til 8. mars
> Sjá nánar
SAMSÍÐA HEIMAR - INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR - LISTAMANNSSPJALL SUNNUDAGINN 18. JANÚAR KL. 15:00
Næstkomandi sunnudag kl. 15:00 mun listamaðurinn Ingibjörg Jónsdóttir segja frá sýningu sinni Samsíða heimar, en þá er lokadagur sýningarinnar. Innsetning Ingibjargar er afar sjónræn, margbrotin og breytileg; hún ýmist dregur í sig ljós eða varpar því frá sér eftir því sem ljósmagnið í salnum breytist eða staðsetning áhorfandans í salnum.
> Sjá nánar
JURGEN BEY - EINN AF EFTIRTEKTARVERÐUSTU HÖNNUÐUM SAMTÍMANS Fimmtudag 15. janúar kl. 20
Næstkomandi fimmtudagskvöld hefst í Hafnarhúsinu ný fyrirlestraröð sem Hönnunarmiðstöð Íslands á veg og vanda að og vinnur í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.
Fyrsta fyrirlesturinn flytur Jurgen Bey sem er einn af áhugaverðustu hönnuðum samtímans og starfar um þessar mundir sem gestakennari við Listaháskóla Íslands
> Sjá nánar
SÝNINGALOK OG SÝNINGASTJÓRASPJALL Í HAFNARHÚSI
Sunnudaginn 11. janúar lýkur þremur sýningum í Hafnarhúsinu:
> Sjá nánar
KJARVALSSAFNEIGNIN AFHJÚPUÐ LAUGARDAG 10. JANÚAR KL. 14 - MYND AF HEILD
Nokkur hundruð verka Jóhannesar S. Kjarvals í eigu Listasafns Reykjavíkur verða dregin fram í dagsljósið á sýningunni. Listasafn Reykjavíkur hefur leitast við að setja Kjarvalssafneignina fram á ólíkan máta, með þematengdum sýningum, yfirlitssýningum og samsýningum en í fyrsta sinn er safneignin sýnd í heild sinni, ef frá eru taldar teikningar og skissur sem eru í eðli sínu ekki sýningagripir eða tilbúnar til sýningar. Kjarvalssafneign safnsins samanstendur af 3.348 verkum eftir listamanninn; 3.189 teikningum og 159 málverkum.
> Sjá nánar
LISTAVERKALEIÐANGUR ÚT / INN FIMMTUDAG 8. JANÚAR KL. 20
Líta listaverk eins út þegar þau hanga innan um föt eða samlokur? Hvað með
auglýsingaskilti sem er komið inn á safn - er það orðið að listaverki? Næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20 mun AlmaDís Kristinsdóttir safnfræðslufulltrúi safnsins bjóða listunnendum í leiðangur um miðbæinn þar sem þeim gefst kostur á að líta listaverk í nýju ljósi.
> Sjá nánar
SÝNINGALOK Á KJARVALSSTÖÐUM SUNNUDAG 4. JANÚAR
Tveimur sýningum lýkur næstkomandi sunnudag á Kjarvalsstöðum. Það eru yfirlitssýning á lykilverkum Kjarvals auk hinnar rómuðu sýningar Braga Ásgeirssonar, Augnasinfóníu.
> Sjá nánar
ID-LAB: LISTAMANNSSPJALL JÓNS SÆMUNDAR AUÐARSONAR. SUNNUDAG 4. JANÚAR KL. 15:00
Jón Sæmundur Auðarson, ID-LAB, 2008 Slagorð Jóns Sæmundar 'Sá sem óttast dauðann kann ekki að njóta lífsins' endurspeglar persónulega stöðu hans sem HIV smitaðs einstaklings sem samið hefur frið við dauðann en lifir heilbrigðu lífi af krafti og óttaleysi.
> Sjá nánar
BRAGI OG SIGURLAUG MEÐ LEIÐSÖGN Á KJARVALSSTÖÐUM Sunnudaginn 21. DES. KL. 15:00
Sýningu Braga Ásgeirssonar á Kjarvalsstöðum lýkur í byrjun janúar og því hver að verða síðastur að líta þetta einstaka yfirlit á ferli listamannsins. Næstkomandi sunnudag munu Bragi og Sigurlaug leiða saman hesta sína og bjóða gestum að njóta listaverkanna undir leiðsögn og spjalli auk þess sem Bragi mun árita bókina Augnasinfónía.
> Sjá nánar
ANDREA MAACK - LISTAMANNSSPJALL SUNNUDAG 14. DESEMBER KL. 15
Andrea Maack endurspeglar á einfaldan hátt óaðfinnanlegt andrúmsloft hátískuiðnaðarins í D-sal Hafnarhússins. Til að fullkomna þessa upplifun hefur listamaðurinn látið gera ilmvatn sem liggur í lofti salarins.
> Sjá nánar
HVÍT JÓL GARÐAR CORTES OG ROBERT SUND Á KJARVALSSTÖÐUM
Einn dáðasti tenórsöngvari Íslands, Garðar Cortes, mun halda tvenna hádegistónleika á Kjarvalsstöðum þar sem hann flytur helstu jólaperlur tónbókmenntanna með píanóleikaranum Robert Sund. Tónleikarnir verða mánudaginn 15. og þriðjudaginn 16. desember og hefjast kl. 12:15.
> Sjá nánar
FLAKKARINN
Flakkarinn, ný farandsýning Listasafns Reykjavíkur, lagði af stað í sinn fyrsta leiðangur um grunnskóla Reykjavíkur þann, 8. desember s.l. Fyrsti viðkomustaður Flakkarans var Grandaskóli þar sem kennarar og nemendur tóku á móti honum.
> Sjá nánar
SPJALL HLYNS HALLSSONAR Í HAFNARHÚSINU SUNNUDAG 30. NÓVEMBER KL. 15:00
Sýning Hlyns Hallssonar hefur vakið óskipta athygli fjölmiðla og almennings en næstkomandi sunnudag mun Hlynur skoða sýninguna með gestum, segja frá tilurð hennar og fyrri verkum sínum.
> Sjá nánar
FRIÐUR OG FJÖLMENNING VIÐEY SUNNUDAGINN 30. NÓVEMBER KL. 14-17
Opin listsmiðja og notaleg samverustund fyrir börn og fullorðna. Í smiðjunni er unnið út frá friðarsúlu Yoko Ono og orðunum HUGSA SÉR FRIÐ sem áletruð eru á 24 tungumálum á súluna sjálfa.
> Sjá nánar
KÆRLEIKSKÚLAN
Kærleikskúlan var afhent við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi miðvikudaginn 26. nóvember.
> Sjá nánar
OPNUNARTÍMI LISTASAFNS REYKJAVÍKUR UM JÓL OG ÁRAMÓT
Listasafn Reykjavíkur er opið alla daga yfir jól og áramót að undanskildum aðfangadegi og jóladegi. Opnunartími er breytilegur en hann er sem hér segir:
HAFNARHÚS: opið daglega 10 - 17 , fimmtudaga 10 - 22.
Opið 26. des.: 12 - 17.
Opið 31. des.: 10 - 14.
Opið 1. jan.: 13 - 17.
Lokað 24. og 25. des.
KJARVALSSTAÐIR: opnir daglega 10 - 17.
Opið 26. des.: 12 - 17.
Lokað 24. 25. og 31. des og 1. jan.
ÁSMUNDARSAFN: opið daglega 13 - 16.
Lokað 24. 25. 26. og 31. des. og 1. jan.
> Sjá nánar
Margmiðlunarverkefni um Ásmund Sveinsson
Listasafn Reykjavíkur hefur opnað margmiðlunarverkefni um Ásmund Sveinsson sem nefnist Í kálgarði tilverunnar, leiðangur fyrir börn og fullorðna.
> Sjá nánar
D-10 ANDREA MAACK FIMMTUDAG 20. NÓVEMBER KL. 17
Andi hátískuhúsa Parísarborgar svífur yfir D-salnum þegar tíunda sýning í sýningaröð salarins verður opnuð. Sýning listamannsins Andreu Maack ber yfirskriftina CRAFT.
> Sjá nánar
FJÖLSKYLDULEIÐANGUR KL. 14 UGLUSPEGILL KATRÍNAR ÓLÍNU KL. 15 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER
FJÖLSKYLDULEIÐANGUR UM MIÐBÆINN KL. 14
Líta listaverk eins út þegar þau hanga innan um föt eða samlokur? LISTAMANNSSPJALL KATRÍNAR ÓLÍNU Í ID LAB KL. 15
Hönnuðurinn Katrín Ólína Pétursdóttir er einn listamannanna sem eiga verk á sýningunni ID LAB.
> Sjá nánar
DIETER ROTH PUZZLE MIÐVIKUDAG 12. NÓVEMBER KL. 20:00
Listasafn Reykjavíkur og kvikmyndafyrirtækin AX, Ground Control og H. Oddsson ehf standa fyrir boðsýningu á heimildarmyndinni „dieter roth puzzle" eftir Hilmar Oddsson í Hafnarhúsinu, miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
> Sjá nánar
FENEYJATVÍÆRINGURINN Í BYGGINGARLIST 2008 GUJA DÖGG MEÐ FYRIRLESTUR Í HAFNARHÚSINU FIMMTUDAGINN 13. NÓVEMBER KL. 20:00
Flestir kannast við Feneyjatvíæringinn í myndlist en færri vita að byggingarlist hefur einnig átt sinn sess á þessum spennandi vettvangi í Feneyjum síðustu 22 árin - annað hvert ár á móti myndlistinni.
> Sjá nánar
KRAUM Á KJARVALSSTÖÐUM - FRÁBÆRT TILBOÐ Á BÓKUM Í SAFNVERSLUNUM
Verslunin Kraum í Aðalstræti hefur nú opnað útibú sitt í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum. Fram að jólum hyggst Listasafn Reykjavíkur stórlækka verðið á nokkrum af vinsælustu bókunum
> Sjá nánar
FRAMLENGING Á AUGNASINFÓNÍU BRAGA
Vegna mikillar aðsóknar verður Augnasinfónía, sýning Braga Ásgeirssonar á Kjarvalsstöðum, framlengd til 4. janúar 2009.
> Sjá nánar
TÍÐARANDINN - LISTAMANNSSPJALL SUNNUDAG 9. NÓVEMBER KL. 15:00
Fjórar ólíkar og áhugaverðar sýningar eru í gangi í Hafnarhúsinu, en á sunnudaginn verður sjónum aðallega beint að sýningunni ID-LAB þar sem einn listamannanna, Eirún Sigurðardóttir í Gjörningaklúbbnum, tekur þátt í leiðsögn um sýninguna.
> Sjá nánar
ÚT / INN HLYNUR HALLSSON FIMMTUDAG 6. NÓVEMBER KL. 17:00
Tuttugu þjónustufyrirtæki í miðbænum taka virkan þátt í sýningu Hlyns Hallssonar ÚT / INN sem verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi fimmtudaginn 6. nóvember. Sýning Hlyns felur í sér að færa hluta af safnkosti Listasafns Reykjavíkur út á meðal almennings og á sama tíma að varpa nýju ljósi á viðtekna hluti í umhverfi okkar og setja þá í nýtt samhengi innan veggja safnsins.
> Sjá nánar
LIBIA CASTRO & ÓLAFUR ÓLAFSSON ALLIR GERA ÞAÐ SEM ÞEIR GETA SÝNINGARLOK SUNNUDAGINN 2. NÓVEMBER
Sýning Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar í Hafnarhúsinu hefur vakið sterk viðbrögð í samfélaginu en þar sýna þau á fjórða tug viðtala við ólíka þjóðfélagsþegna í því skyni að varpa ljósi á stöðu samfélags okkar í dag.
> Sjá nánar
DRAUGUR Á ID LAB HUGINN ÞÓR ARASON SUNNUDAG 2. NÓVEMBER KL. 15:00
Draugur er heiti á verki Hugins Þórs Arasonar á sýningunni ID LAB sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu, en á sunnudaginn kemur kl. 15:00 mun Huginn Þór segja frá verkinu.
> Sjá nánar
ÚTILISTAVERK Í REYKJAVÍK Á NETINU.
Listasafn Reykjavíkur hefur umsjón með list í almenningsrými en undir það falla útilistaverk borgarinnar. Nú er hægt að skoða útilistaverk borgarinnar á netinu.
> Sjá nánar
HUGLEIKUR HREIÐRAR UM SIG Í HAFNARHÚSINU
> Sjá nánar
AUGNASINFÓNÍA BRAGA ÁSGEIRSSONAR LISTAMANNSSPJALL OG ÁRITUN SUNNUDAG 26. OKTÓBER KL. 15:00.
Ein aðsóknamesta sýning þessa árs í Listasafni Reykjavíkur er yfirlitssýning Braga Ásgeirssonar á Kjarvalsstöðum sem nú hefur staðið yfir í rúman mánuð. Á sunnudaginn kl. 15:00 mun listamaðurinn fara um sýninguna ásamt Sigurlaugu Ragnarsdóttur, sem unnið hefur náið með Braga, og ræða um einstök verk og feril sinn í listinni. Við sama tækifæri mun Bragi árita bókina Augnasinfóníu sem fjallar um líf hans og list og skreytt er fjölda mynda. Bókin er seld á tilboðsverði á meðan á sýningunni stendur.
> Sjá nánar
AÐSÓKN EYKST UM SJÖTÍU PRÓSENT YFIR TVÖ HUNDRUÐ ÞÚSUND GESTIR Á ÁRINU.
Frá því að veittur var gjaldfrjáls aðgangur að Listasafni Reykjavíkur um síðustu áramót hefur aðsókn að safninu aukist um tæp sjötíu prósent.
> Sjá nánar
ÓKEYPIS ÆVINTÝRI FYRIR FJÖLSKYLDUNA OG LISTAMANNSSPJALL Í D-SALNUM. SUNNUDAG 19. OKTÓBER
ÆVINTÝRI FYRIR FJÖLSKYLDUNA KL. 14:00.
Samsýningin ID-LAB er mikil ævintýrasýning sem höfðar til allra aldurshópa og státar af óvenjulegum og forvitnilegum verkum, sem unnin eru í ólíka miðla.
JÓNA HLÍF HALL DÓRSDÓTTIR Í D-9 KL. 15:00.
Að lokinni fjölskylduleiðsögninni, eða kl. 15:00, hefst listamannsspjall Jónu Hlífar Halldórsdóttur
> Sjá nánar
ICELAND AIRWAVES tónlistarveisla í Hafnarhúsinu 16 - 18 Október.
ICELAND AIRWAVES hátíðin er nú haldin í 10. sinn. Metnaðarfull og mikil dagskrá í boði.
> Sjá nánar
PÍANÓVEISLA Á KJARVALSSTÖÐUM MIÐVIKUDAG 15. OKTÓBER KL. 20:00
Fjórðu tónleikar tónleikaraðarinnar Klassík á Kjarvalsstöðum. Á tónleikunum leikur einleik Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari. Helga er án efa einn af færustu píanóleikurum landsins.
> Sjá nánar
HUGSA SÉR FRIÐ - IMAGINE PEACE
Kveikt var á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey 9. október síðastliðinn. Á sama tíma afhenti Yoko Ono tvær viðurkenningar úr Lennonono sjóðnum.
> Sjá nánar
HÁDEGISTÓNLEIKAR OG LEIÐSÖGN Á KJARVALSSTÖÐUM SUNNUDAG 12. OKTÓBER
Listasafn Reykjavíkur býður upp á afslappaða og notalega samverustund á Kjarvalsstöðum næstkomandi sunnudag.Klukkan 12.00 verða hádegistónleikar með tveimur tónlistarmönnum úr kammersveitinni Ísafold. Þetta eru þau Guðný Jónsdóttir sellóleikari og Kristján Orri Sigurleifsson kontrabassaleikari.Leiðsögn verður um sýningu Braga Ásgeirssonar, Augnasinfóníu, klukkan 15.00, en sýningin hefur hlotið fádæma góða aðsókn og dómar um hana verið á afar jákvæðum nótum.
> Sjá nánar
Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús - Kjarvalsstaðir - Ásmundarsafn. VEGNA STARFSDAGS - VERÐA SÖFNIN LOKUÐ LAUGARDAGINN 11.10.2008 - AFSAKIÐ ÓÞÆGINDIN
> Sjá nánar
SAMSÍÐA HEIMAR - INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR. LISTAMANNSSPJALL SUNNUDAGINN 5. OKTÓBER KL. 15:00
Ingibjörg Jónsdóttir er veflistakona og skúlptúristi og sýnir í fyrsta skipti í Listasafni Reykjavíkur áhrifamikla innsetningu sem vísar til hugmynda manna og upplifunar af tíma og rými, en sækir efni og aðferðir í heim vefnaðar.
> Sjá nánar
FIMMTUDAGSKVÖLD MEÐ LIBIU & ÓLAFI FIMMTUDAGINN 2. OKTÓBER KL. 20:00
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 2. október, kl. 20:00 munu listamennirnir Libia Castro og Ólafur Ólafsson vera með listamannaspjall í fjölnotasal Hafnarhússins. Libia og Ólafur eru fyrstu listamennirnir til að takast á við nýtt viðfangsefni í A-sal Hafnarhússins þar sem gerð er tilraun til þess að leita uppi samband og samræður út fyrir veggi safnsins.
> Sjá nánar
D9 JÓNA HLÍF HALLDÓRSDÓTTIR LAUGARDAGINN 27. SEPTEMBER KL. 16:00
Næstkomandi laugardag hefst annar hluti sýningaraðar D-salar Hafnarhússins með sýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur.
> Sjá nánar
ID LAB - greining sjálfsmyndar - LAUGARDAGINN 27. SEPTEMBER KL. 16:00. Gjörningaklúbburinn fremur gjörning kl. 17:00
TÍSKUKLEINUR – ÁSTARPUNGUR – HIV-VEIRA – ÍMYNDAÐIR VINIR – UGLUSPEGILL – TÍÐARANDINN – DRAUGUR – AUGNAYNDISFÓLK – BRÚÐARKJÓLL – NÆRFATNAÐUR – HAUSKÚPA – MANTRA
Það er kraftmikill hópur sem kemur saman á sýningunni ID-LAB í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi sem fjallar um sjálfsmynd og tísku frá ólíkum sjónarhornum. Þetta eru Gjörningaklúbburinn, Hrafnhildur Arnardóttir, Huginn Þór Arason, Jón Sæmundur Auðarson og Katrín Ólína Pétursdóttir en þau hafa mörg hver vakið alþjóðlega athygli fyrir verk sín. Sýningarstjóri er Ólöf K. Sigurðardóttir.
> Sjá nánar
FJÖLSKYLDULEIÐANGUR OG ÁRITUN KJARVALSSTAÐIR SUNNUDAG 14. SEPTEMBER
Þátttökumet var slegið á sýningarstjóraspjalli um sýningu Braga Ásgeirssonar síðastliðinn sunnudag á Kjarvalsstöðum. Ríflega eitt hundrað gestir mættu og nutu leiðsagnar sýningarstjórans Þórodds Bjarnasonar. Sýning Braga var opnuð deginum áður að viðstöddu fjölmenni en Listasafn Reykjavíkur hefur skipulagt fjölbreytta dagskrá í tengslum við hana.
> Sjá nánar
Vísindavaka Rannís stefnumót við vísindamenn í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi 22 - 26 september.
> Sjá nánar
HAUSTDAGSKRÁ HAFNARHÚSSINS Þrjár nýjar sýningar verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi fimmtudaginn 18. september kl. 17:00.
Tvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson, sem hefur verið áberandi á alþjóðlegum myndlistarvettvangi, er fyrst til að takast á við nýtt viðfangsefni í A-sal Hafnarhússins þar sem gerð er tilraun til þess að leita uppi samband og samræður út fyrir veggi safnsins. Libia og Ólafur eru kunn fyrir samfélagslega nálgun í myndlist sinni og á sýningunni nota þau sjónvarpsviðtalsformið til að spegla stöðu samfélags og tíðaranda. Ingibjörg Jónsdóttir er bæði veflistakona og skúlptúristi og sýnir í fyrsta skipti í Listasafni Reykjavíkur áhrifamikla innsetningu sem fjallar um tilurð heimsins. Þriðja sýning Hafnarhússins er úr viðamikilli safneign Listasafns Reykjavíkur á verkum Errós. Þar er lögð áhersla á verk listamannsins sem skírskota til vestrænnar- og austrænnar og menningar.
> Sjá nánar
BRAGI ÁSGEIRSSON - AUGNASINFÓNÍA OPNUN 13. SEPTEMBER KL. 16:00
„ „Ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir myndlistinni. Hún er hvorki sprell né grunnrist dægurgaman. Myndlist er kröfuhart fag. Stundum er henni líkt við eiturlyf, sem hefur þó ekkert nema góð áhrif á iðkandann. Það þurfa að vera innri átök og sviptingar í listinni og hún má hvorki verða vani eða skylda.“
Þessi orð Braga Ásgeirssonar listmálara segja allt sem segja þarf um það tak sem myndlistin hefur haft á honum alla tíð, og hann á henni.
> Sjá nánar
HAFNARHÚSIÐ ER LOKAÐ VEGNA SÝNINGARSKIPTA TIL 18. SEPTEMBER 2008.
> Sjá nánar
VATNSBERI - VANTSLITAMYNDIR ELLEFU LISTAMANNA - SÝNINGARSTJÓRASPJALL
Sunnudaginn 7. september kl. 14:00 verður Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri Vatnsberans með leiðsögn um sýninguna. Tæplega sjötíu verk eru á sýningunni eftir ellefu listamenn og er þeim stillt upp með sýningu á verkum Ásmundar Sveinssonar, Lögun línunnar, sem nú stendur yfir í safninu.
> Sjá nánar
T I L R A U N A M A R A Þ O N I Ð Á E N D A - SÍÐASTI SÝNINGARDAGUR SUNNUDAGINN 7. SEPTEMBER
Tilraunamaraþon í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi markaði spor í sögu safnsins, en aldrei áður hefur verið sett upp jafn umfangsmikil sýning í húsum safnsins. Sýningarstjórarnir Hans Ulrich Obrist og Ólafur Elíasson byggðu sýninguna á sambærilegu verkefni sem þekkt er í Serpentine Gallery í Lundúnum, þar sem Hans Ulrich er sýningarstjóri. Þeir fengu til liðs við sig um sjötíu lista- og fræðimenn frá tólf löndum, úr fimm heimsálfum sem margir hverjir tóku þátt í tveggja daga maraþoni í upphafi sýningarinnar. Sumir þeirra eiga einnig verk á sýningunni.
> Sjá nánar
DRAUMAR UM ÆGIFEGURÐ Í ÍSLENSKRI SAMTÍMALIST SÝNINGARLOK SUNNUDAGINN, 31. ÁGÚST
Á sýningunni Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist eru mörg ný verk eftir framsæknustu listamenn landsins sem byggja á ólíkum hugmyndum þeirra um náttúruna sem fyrirbæri í ljósmynda- og vídeólist.
> Sjá nánar
TIL KENNARA:
Bæklingur með fræðsludagskrá og viðburðum vetrarins er í burðarliðnum ásamt ábendingum um hvaða sýningar henta hvaða skólastigi best
> Sjá nánar
I HATE NATURE - SÝNINGARLOK SUNNUDAGINN 24. ÁGÚST
Hin risavaxna innsetning í garði Kjarvalsstaða hefur vakið verðskuldaða athygli, en verkið gerði einn kunnasti landslagsarkitekt heims Martha Schwartz í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur, Félag íslenskra landslagsarkitekta og Listahátíð í Reykjavík með dyggum stuðningi Ingibjargar Kristjánsdóttur landslagsarkitekts og Ólafs Ólafssonar eiginmanns hennar.
> Sjá nánar
FRESTUN Á FYRIRLESTRI DARRA!
Fyrirlestur Darra Lorenzen sem vera átti á morgun, fimmtudaginn 21. ágúst, frestast af ófyrirsjáanlegum ástæðum til fimmtudagsins 4. september. Beðist er velvirðingar á þessum breytingum.
Darri Lorenzen myndlistarmaður flytur fyrirlestur í Listasafni Reykjavíkur Hafanarhúsi fimmtudaginn 4. september kl. 20:00. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina NÚNA, ÞÁ OG SEINNA og byggir á nýlegum verkum og verkefnum sem listamaðurinn er með í vinnslu.
> Sjá nánar
NÚNA, ÞÁ OG SEINNA FYRIRLESTUR / GJÖRNINGUR DARRA LORENZEN Í HAFNARHÚSI NÆSTKOMANDI FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 20:00
Darri Lorenzen myndlistarmaður verður með fyrirlestur / gjörning í Listasafni Reykjavíkur Hafanarhúsi fimmtudaginn 4. september kl. 20:00 sem ber yfirskriftina NÚNA, ÞÁ OG SEINNA og byggir á nýlegum verkum og verkefnum sem listamaðurinn er með í vinnslu.
> Sjá nánar
KLASSÍK Á KJARVALSSTÖÐUM 3. september kl. 20. Flytjendur: Carion – Danskur blásarakvintett
Einstakur blásarakvintett í heimsókn.
Þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni Klassík á Kjarvalsstöðum á vegum F.Í:T. og Listasafns Reykjavíkur verða miðvikudagskvöldið 3. september kl. 20. Á tónleikunum leikur verðlaunaður danskur blásarakvintett Carion.
> Sjá nánar
V A T N S B E R I - VATNSLITAMYNDIR ELLEFU LISTAMANNA - ÁSMUNDARSAFN 22. ÁGÚST KL. 17:00
Föstudaginn 22. ágúst kl. 17:00 verður opnuð í Ásmundarsafni sýning á vatnslitamyndum ellefu, íslenskra listamanna. Tæplega sjötíu verk verða á sýningunni og verður þeim stillt upp með sýningu á verkum Ásmundar Sveinssonar, Lögun línunnar, sem nú stendur yfir í safninu.
> Sjá nánar
Ligeti-tónleikar Ísafoldar Föstudagur 8. ágúst – Kjarvalsstaðir kl. 20:00
Kammersveitin Ísafold flytur fjögur verk eftir einn mesta áhrifavald 20. aldar tónlistar, György Ligeti á Kjarvalsstöðum og verður safnarýmið nýtt á nýstárlegan hátt. Ligeti lést fyrir tveimur árum en þó eru mörg verka hans löngu orðin klassísk og eru vinsæl bæði í geisladiskaútgáfu og til flutnings í tónleikahúsum.
> Sjá nánar
MENNINGARNÓTT 23. ÁGÚST 2008
Listasafn Reykjavíkur tekur virkan þátt í Menningarnótt 23. ágúst. Dagskráin er fjölbreytt og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi: Spurningakeppni, leiðsagnir, lúðrablástur, rokk og ról, leikir, þrautir, strengjasveit og fleira og fleira.
> Sjá nánar
SÝNINGARSTJÓRASPJALL ÆSU SIGURJÓNSDÓTTUR UM ÆGIFEGURÐ SUNNUDAGINN 10. ÁGÚST KL. 15:00
Á sýningunni Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist sem nú er til sýnis á Kjarvalsstöðum eru mörg ný verk eftir framsæknustu listamenn landsins sem byggja á ólíkum hugmyndum þeirra um náttúruna sem fyrirbæri í ljósmynda- og vídeólist. Sunnudaginn 10. ágúst mun sýningarstjórinn Æsa Sigurjónsdóttir annast leiðsögn um sýninguna en þar er að finna verk eftir sextán íslenska listamenn.
> Sjá nánar
KENNILEITI MINNINGANNA KVÖLDGANGA ÚR KVOSINNI 24. JÚLÍ KL. 20:00
Sigurlaug Ragnarsdóttir listfræðingur annast leiðsögn um útilistaverk í miðbænum næstkomandi fimmtudagskvöld þegar lagt verður upp í áttundu kvöldgöngu Kvosarinnar sem menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir. Gangan tekur um klukkustund en í henni mun Sigurlaug kynna ólíkar aðferðir við miðlun útilistaverka, gildi miðlunar og upplifun einstaklings á henni.
> Sjá nánar
SAFNADAGURINN FYRIR FJÖLSKYLDUNA!
Listasafn Reykjavíkur tekur þátt í Íslenska safnadeginum næstkomandi sunnudag en dagurinn er helgaður fjölskyldunni.
Á Kjarvalsstöðum er fjölskylduleiðsögn kl. 15:00 og einnig eru þar í boði sýningar, leikir og þrautir sem ætluð eru börnum á öllum aldri.
> Sjá nánar
SVEINBJÖRN BEINTEINSSON ALLSHERJARGOÐI HEIMILDARMYND
Fimmtudagskvöldið 3. júlí klukkan 20:00 verður sýnd í Hafnarhúsinu heimildarmynd um Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoða. Sveinbjörn Beinteinsson bjó lengst af á Draghálsi í Svínadal. Hann var skáld gott, kvæða-og fræðimaður, og eftir hann liggja nokkrar ljóðabækur og kver, auk bókarinnar Bragfræði og háttatal, sem er undirstöðurit kvæðamanna.
> Sjá nánar
SAFNFRÆÐSLUNÁMSKEIÐ ÆTLAÐ KENNURUM Á KJARVALSSTÖÐUM 21. ágúst frá kl. 9–16
Fræðsludeild Listasafns Reykjavíkur stendur fyrir
safnfræðslunámskeiði ætlað kennurum 21. ágúst n.k. Námskeiðið fjallar
um möguleika safnfræðslu og leiðir sem gagnast geta við undirbúning
og eftirfylgni safnheimsókna á grunnskólastigi Námskeiðið er styrkt
af Menntamálaráðuneytinu.
> Sjá nánar
BLÁA BÍLVÉLIN HÍFÐ UPP - FIMMTUDAG 26. JÚNÍ KL. 20.00
Fresta varð lokahluta gjörningsins á verki Roger Hiorn's sem fram átti að fara þann 22. júní til fimmtudagsins 26. júní kl. 20:00
Mikil óvissa hefur verið með hve langan tíma taki fyrir koparsúlfat upplausnina að ná stofuhita í einangraða plastkarinu í A-sal í Hafnarhúsi. Á sunnudaginn var hitastigið mælt og kom í ljós að það var enn of hátt. Ákveðið var því að fresta gjörningnum.
> Sjá nánar
JÓNSMESSUTÓNLEIKAR Á KJARVALSSTÖÐUM 25. JÚNÍ KL. 20:00
Aðrir tónleikar tónleikaraðarinnar Klassík á Kjarvalsstöðum verða haldnir þann 25. júní kl. 20.00. Í þetta sinn hefur röðin fengið til liðs við sig tvær góðar tónlistarkonur, Ingveldi Ýr Jónsdóttur söngkonu og Guðríði Sigurðardóttur píanóleikara.
> Sjá nánar
BLÁA BÍLVÉLIN FÆR VIÐEIGANDI MEÐFERÐ FJÖGURRA DAGA TILRAUN Í HAFNARHÚSINU HEFST FIMMTUDAGINN 19. JÚNÍ
Fimmtudaginn 19. júní er komið að því að fremja gjörning Rogers Hiorns sem vera átti á Tilraunamaraþoninu um miðjan júní, en veittist ekki unnt þar eð koparsúlfatið sem nota þurfti kom ekki til landsins í tæka tíð.
Koparsúlfatið er nú komið í Hafnarhúsið og er því boðað til tilraunar sem gestir geta fylgst með í fjóra daga. Tilraunin er gerð í nokkrum þrepum og fer fyrsti hluti hennar fram fimmtudaginn 19. júní milli kl. 17 - 22.
> Sjá nánar
ERRÓ Í PARÍS
Þeir sem eru á leið til Parísar ættu ekki að láta nýtt verk eftir Erró fram hjá sér fara. Verkið setti Erró upp á stærstu og flottustu verslunarmiðstöð borgarinnar, BHV á Rue de Rivoli 31. maí síðastliðinn.
> Sjá nánar
LIST Í ALMENNINGSRÝMI Á LÖNGUM FIMMTUDEGI Í HAFNARHÚSINU - MAGS HARRIES & LAJOS HEDER
Fimmtudaginn 19. júní kl. 20:00
Bandarísku listamennirnir Mags Harries og Lajos Heder eru á meðal þekktustu listamanna Bandaríkjanna sem hafa helgað sig list í almenningsrými. Fimmtudaginn 19. júní kl. 20:00 munu þau halda fyrirlestur í Hafnarhúsinu undir yfirskriftinni Afhjúpun hins óséða.
> Sjá nánar
SUNNUDAGUR FJÖLSKYLDUNNAR - 15. JÚNÍ - TILRAUNASTOFA FYRIR BÖRN - LEIÐSÖGN UM FRIÐARSÚLUNA Í VIÐEY
- TILRAUNASTOFA FYRIR BÖRN.
Næstkomandi sunnudag verður starfrækt í Hafnarhúsinu tilraunastofa fyrir börn og fullorðna frá klukkan 14 - 16.
- LEIÐSÖGN UM FRIÐARSÚLUNA Í VIÐEY KL. 14:30.
Hafþór Yngvason safnstjóri segir frá tilurð Friðarsúlunnar í Viðey sem Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, lét reisa í Viðey á síðasta ári.
> Sjá nánar
F R U M - NÚTÍMATÓNLISTARHÁTÍÐ KJARVALSSTÖÐUM 13. - 15. JÚNÍ
Nútímatónlistarhátíðin frum- 2008 verður haldin dagana 13. - 15. júní á Kjarvalsstöðum. Í ár er hátíðin helguð tónlist þriggja tónskálda sem öll eiga stórafmæli á árinu. Atli Heimir Sveinsson fagnar sjötugsafmæli í haust, en frumflutt verður nýtt verk sem Atli tileinkar vinkonu sinni, Bryndísi Schram, sem einnig á stórafmæli á árinu.
> Sjá nánar
KVÖLDGÖNGUR ÚR KVOSINNI MYNDLIST Í MIÐBORGINNI Fimmtudag 12. júní kl. 20
Kvöldgöngur úr Kvosinni hafa verið vinsælar meðal borgarbúa en þetta er fjórða skiptið sem menningarstofnanir Reykjavíkurborgar skipuleggja þennan ánægjulega viðburð, sem boðið er upp á öll fimmtudagskvöld yfir sumartímann.
> Sjá nánar
TILRAUNASTOFA FYRIR BÖRN OG LISTAMANNSSPJALL - SUNNUDAGINN 8. JÚNÍ 2008
TILRAUNASTOFA KL. 14 - 16
Næstkomandi sunnudag verður starfrækt í Hafnarhúsinu tilraunastofa fyrir börn og fullorðna frá klukkan 14 - 16.
LISTAMANNSSPJALL KL. 15
Klukkan 15:00 verður leiðsögn um Tilraunamaraþonið sem samanstendur af verkum eftir fjölmarga erlenda og innlenda listamenn.
> Sjá nánar
SÖFNIN VERÐA LOKUÐ Í DAG 06. JÚNÍ 2008
Listasafn Reykjavíkur
Hafnarhús - Kjarvalsstaðir - Ásmundarsafn.
VEGNA VINNUDAGS STARFSFÓLKS
VERÐA SÖFNIN LOKUÐ 06.06.2008.
AFSAKIÐ ÓÞÆGINDIN
> Sjá nánar
TVÖ SUMARNÁMSKEIÐ Í BOÐI: Leikur og list
Námskeið I: 9. – 20. júní í Ásmundarsafni / fullbókað!
Námskeið II: 23. júní – 4. júlí á Kjarvalsstöðum / örfá pláss laus.
Sú nýbreytni hefur átt sér stað í Listasafni Reykjavíkur að 7 – 10 ára sumarkrökkum er boðið upp á tveggja vikna námskeið bæði í Ásmundarsafni og á Kjarvalsstöðum. Námskeiðin eru frá kl. 9 – 12 og kosta 17.500.- Skráning í síma 590 1200 (biðjið um fræðsludeild).
> Sjá nánar
S T E Y P A Hafnarhúsi, fimmtudaginn 29. maí kl. 20
Í heimildarmyndinni Steypu er fylgst með nokkrum listamönnum um tveggja ára skeið. Listamennirnir eru starfandi heima og erlendis og tengjast hvert öðru á ýmsan hátt. Í myndinni er velt upp afstöðu þeirra til þess efniviðar sem þau kjósa sér, hvaðan þau sæki sér áhrif og hvort og þá hvernig heimaland þeirra hafi áhrif á þeirra starf. Leikstjórar Markús Þór Andrésson og Ragnheiður Gestsdóttir.
> Sjá nánar
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Í ÖLLUM HÚSUM LISTASAFNS REYKJAVÍKUR UM HELGINA
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ KL. 20:00 - HAFNARHÚS
UMRÆÐUR OG ÚTGÁFUFAGNAÐUR
Í dag, fimmtudaginn 22. maí, verður efnt til útgáfuhátíðar og umræðna í tilefni af útkomu tveggja bóka um unga, íslenska listamenn sem hafa sýnt í safninu síðastliðin tvö ár. Annarsvegar er bók um röð átta sýninga í D-sal Hafnarhúss og hinsvegar skrá á ensku fyrir sýninguna Pakkhús postulanna, sem markaði upphaf nýrrar sýningastefnu Listasafns Reykjavíkur. Þátttakendur í umræðunum eru Hafþór Yngvason safnstjóri, Daníel Björnsson sem var annar tveggja sýningarstjóra Pakkhússins, Birta Guðjónsdóttir sem sýndi í D-salar verkefninu og Ragna Sigurðardóttir myndlistargagnrýnandi og rithöfundu r. Ólöf K. Sigurðardóttir deildarstjóri fræðsludeildar Listasafnsins hefur umsjón með umræðunum.
> Sjá nánar
UMRÆÐUR OG ÚTGÁFUFAGNAÐUR - HAFNARHÚS FIMMTUDAG 22. MAÍ KL. 20.00
Listasafn Reykjavíkur efnir til umræðna og útgáfufagnaðar í tilefni af útkomu tveggja bóka um unga íslenskra listamenn sem hafa sýnt í safninu síðastliðin tvö ár. Annarsvegar er bók um röð átta sýninga í D-sal Hafnarhúss og hinsvegar skrá á ensku fyrir sýninguna Pakkhús postulanna, sem markaði upphaf nýrrar sýningastefnu Listasafns Reykjavíkur. Sýningarnar hafa tvímælalaust vakið athygli fyrir fjölbreytni og áhugaverða nálgun við ýmis viðfangsefni
> Sjá nánar
ÁSMUNDARSAFN 25 ÁRA, MIÐVIKUDAGINN 21. MAÍ - NÝTT MARGMIÐLUNARVERKEFNI KYNNT.
Þann 21. maí eru 25 ár liðin frá opnun Ásmundarsafns, sem er eitt af safnhúsum Listasafns Reykjavíkur. Listasafn Reykjavíkur mun einnig opna formlega nýtt margmiðlunarverkefni um Ásmund Sveinsson sem nefnist Í kálgarði tilverunnar, leiðangur fyrir börn og fullorðna.
> Sjá nánar
BLAÐAMANNAFUNDUR Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR Í DAG, FIMMTUDAGINN 15. MAÍ, KL. 14.30 – 15.00
Listasafn Reykjavíkur og Serpentine Gallery boða til blaðamannafundar í Hafnarhúsinu í dag, fimmtudaginn 15. maí kl. 14:30 - 15:00 í tilefni af opnun Tilraunamaraþons, eins viðamesta sýningarverkefnis sem Listasafn Reykjavíkur hefur ráðist í frá upphafi. Á fundinum gefst blaðamönnum tækifæri til að verða vitni að spennandi tilraun, sem einnig verður framkvæmd í safninu um helgina.Á blaðamannafundinum mun Hans Ulrich Obrist, sem er sýningarstjóri verkefnisins ásamt Ólafi Elíassyni, og jafnframt stjórnandi Serpentine Gallery í London, kynna hugmyndafræði verkefnisins og segja frá sýningunni og viðburðum henni tengdri.
> Sjá nánar
T I L R A U N A M A R A Þ O N 16. maí - 24. ágúst SÝNINGASTJÓRAR: HANS ULRICH OBRIST OG ÓLAFUR ELÍASSON
Við setningu Listahátíðar í Reykjavík í Hafnarhúsinu fimmtudagskvöldið 15. maí verður opnað formlega stærsta sýningarverkefni sem Listasafn Reykjavíkur hefur ráðist í frá upphafi með um sextíu þátttakendum. Verkefnið er unnið í samvinnu við Serpentine Gallery í London og ber yfirskriftina Tilraunamaraþon.
> Sjá nánar
- DRAUMAR UM ÆGIFEGURÐ Í ÍSLENSKRI SAMTÍMALIST - I HATE NATURE / 'ALUMINATI' Sunnudag 18. maí kl. 16:00
Listahátíð í Reykjavík setur sterkan svip á menningarlíf borgarinnar næstkomandi helgi en sunnudaginn 18. maí kl. 16:00 verða opnaðar fjórar sýningar á Kjarvalsstöðum, sem eru á dagskrá hátíðarinnar. Meðal þeirra eru sýningarnar DRAUMAR UM ÆGIFEGURÐ Í ÍSLENSKRI SAMTÍMALIST þar sem sýnd eru fjölmörg ný verk eftir framsæknustu listamenn landsins og hin gríðarstóra innsetning I HATE NATURE / 'ALUMINATI' sem fyllir nánast upp í garð Kjarvalsstaða. Innsetningin er eftir einn kunnasta landslagsarkitekt heims, Martha Scwhartz, og er gerð í tilefni af 30 ára afmæli Félags íslenskra landslagsarkitekta.
> Sjá nánar
FIMM NÝJAR SÝNINGAR Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR
Sumarsýningar Listasafns Reykjavíkur hafa verið opnaðar. Í Hafnarhúsinu stendur yfir í allt sumar sýningin Tilraunamaraþon sem er umfangsmesti listviðburður sem Listasafn Reykjavíkur hefur staðið fyrir frá upphafi. Á Kjarvalsstöðum standa nú yfir fjórar ólíkar sýningar DRAUMAR UM ÆGIFEGURÐ Í ÍSLENSKRI SAMTÍMALIST þar sem sýnd eru mörg ný verk eftir framsæknustu listamenn landsins, I HATE NATURE / 'ALUMINATI' sem er risainnsetning í garði Kjarvalsstaða unnin af hinum heimskunna landslagsarkitetkt Martha Scwhartz, HVAR ER ÉG? þar sem börn og fullorðnir geta velt fyrir sé hnettinum, landinu og kennileitum í umhverfinu og að lokum LYKILVERK - JÓHANNES S. KJARVAL þar sem getur að líta magnað yfirlit af verkum þessa ástsæla íslenska listamálara. Í Ásmundarsafni stendur nú yfir sýningin ÁSMUNDUR SVEINSSON - LÖGUN LÍNUNNAR þar sem lögð er áhersla á abstrakt verk Ásmundar.
Minnum á að aðgangur er ókeypis og opið er alla daga!
> Sjá nánar
HAFNARHÚSIÐ LOKAÐ VEGNA SÝNINGASKIPTA!FRÁ 28. APRÍL - 15. MAÍ
T I L R A U N A M A R A Þ O N - OPNAÐ 15. MAÍ!
Tilraunamaraþon er umfangsmesti listviðburður sem Listasafn Reykjavíkur hefur staðið fyrir frá upphafi en að honum koma rúmlega fjörutíu virtir lista- og vísindamenn úr alþjóðasamfélaginu. Tilraunamaraþonið er tvíþætt og skiptist annars vegar í lifandi tilraunastofu, sem verður starfrækt fyrir opnum tjöldum fyrstu daga sýningarinnar og hins vegar innsetningar unnar í ólíka miðla sem standa út sumarið.
> Sjá nánar
SÝNINGALOK Í HAFNARHÚSINU SUNNUDAGINN 27. APRÍL
Sunnudaginn 27. apríl lýkur öllum sýningum Hafnarhússins en þá verður hafist handa við undirbúning Tilraunamaraþons, sem er viðamesta sýning sem Listasafn Reykjavíkur hefur staðið fyrir frá upphafi.
> Sjá nánar
Ferðalangur á Sumardaginn fyrsta - Rafsprengi: Remixað á Rás 1
Fimmtudaginn 24. apríl næstkomandi – á sumardaginn fyrsta, stendur Rás eitt fyrir tónleikum í Hafnarhúsinu þar sem frumflutt verða fimm rafverk. Verkin eru öll byggð á tónsmíðum eldri tónskálda sem eiga stórafmæli á árinu. Tónleikarnir verða sendir út beint á Rás 1.
> Sjá nánar
ÁSMUNDARSAFN - LEIRLISTSMIÐJA OG LEIÐSÖGN ÁSDÍSAR ÁSMUNDSDÓTTUR SUNNUDAGINN 27. APRÍL, KL. 13 - 16
Ásmundur Sveinsson hafði mikið yndi af börnum og tók þeim opnum örmum þegar þau vildu fá að skoða eða leika sér í stóru höggmyndunum hans. Enn þann dag í dag sækjast börn eftir því að heimsækja Ásmundarsafn og ævintýragarðinn í kringum safnið og setja sig inn í hugarheim Ásmundar og takast á við verkin með hug og hönd.
> Sjá nánar
NÁTTÚRA OG LÝÐRÆÐI - HAFNARHÚS fimmtudagur 24. apríl kl. 20
Kviksaga og rannsóknarverkefnið Ísland og ímyndir Norðursins eru í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur um sýningar á kvikmyndum sem helgaðar eru Íslandi og Íslendingum út frá ótal sjónarhornum.
> Sjá nánar
LÖNG OG LITRÍK HELGI Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR
ÚTSKRIFTASÝNING LISTAHÁSKÓLANS, HEIMILDAMYNDIR, LISTAMANNSSPJALL OG LEIÐSÖGN ERU MEÐAL VIÐBURÐA Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR UM HELGINA
> Sjá nánar
JOHN APPEL HEIMILDAMYNDIR - FYRIRLESTUR - HANDRITASMIÐJA Fimmtudaginn 17. apríl Opið til kl. 22:00!
Tvær heimildamyndir hollenska kvikmyndaleikstjórans John Appel verða sýndar í Hafnarhúsinu fimmtudaginn 17. apríl kl. 18:30 og 20:00 að viðstöddum leikstjóranum. Myndirnar eru The Promised Land (2001, 50 mín.) og The Last Victory (2004, 88 mín.). Að sýningum loknum situr leikstjórinn fyrir svörum og býður upp á umræður og fyrirspurnir úr sal.
> Sjá nánar
Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands, Opnun laugardaginn 19. apríl kl. 14.00.
Verk nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild
Í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum.
Tískusýning útskriftarnemenda í fatahönnun - föstudaginn 18. apríl kl. 20.00
í Gömlu kexverksmiðjunni Frón, Skúlagötu 28
> Sjá nánar
SÁPUKÚLULISTSMIÐJA HAFNARHÚSI SUNNUDAGINN 13. APRÍL KL. 14:00
Sápukúlur eru eitt þeirra undra sem fær börn og fullorðna til að gleyma stund og stað. Næstkomandi sunnudag mun AlmaDís Kristinsdóttir, fræðslufulltrúi Listasafns Reykjavíkur vera með listsmiðju í Hafnarhúsinu sem snýst um að fanga hið hverfula augnablik sápukúlunnar þegar hún svífur um í lausu lofti.
> Sjá nánar
TÍMABUNDIN SÝNINGARLOKUN Á KJARVALSSTÖÐUM - KAFFITERÍAN OPIN 10 - 17
Vegna sýningaskipta eru engar sýningar uppi á Kjarvalsstöðum til 19. apríl en þá opnar útskriftarsýning myndlistar og hönnunardeildar Listaháskóla Íslands. Kaffitería safnsins er opin daglega frá kl. 10 - 17.
> Sjá nánar
LISTSMIÐJA FYRIR FJÖLSKYLDUNA SÝNINGALOK Á KJARVALSSTÖÐUM
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá verður í Listasafni Reykjavíkur um helgina. Á laugardaginn verður sýning hins virta málara Mikines á Kjarvalsstöðum kvödd með pompi og prakt en daginn eftir er síðasti sýningardagur allra sýninganna á Kjarvalsstöðum. Á sunnudaginn heldur Listasafn Reykjavíkur áfram með hinar vinsælu listsmiðjur í tengslum við sýningar sínar og er nú röðin komin að sýningunni Þögn í Hafnarhúsinu.
> Sjá nánar
FÆREYSK MENNINGARVEISLA, KJARVALSSTAÐIR, LAUGARDAGINN 5. ARPÍL KL. 14 - 18
Fjöldi færeyskra listamanna kemur fram í Færeyskri menningarveislu sem haldin verður á vegum Listasafns Reykjavíkur og samstarfsaðila á Kjarvalsstöðum næstkomandi laugardag frá kl. 14 – 18. Fram koma færeyskir tónlistarmenn og dansarar, boðið verður upp á leiðsögn og leiki fyrir alla aldurshópa um sýningu Mikinesar og Leikbrúðuland sýnir brúðuleikhús. Fróðleikur um Færeyjar í máli og myndum verður í boði allan daginn en hátíðinni lýkur með einstakri matarkynningu á færeyskum þjóðarréttum, sem eiga engan sinn líkan.
> Sjá nánar
OPIN LISTSMIÐJA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA OG LISTAMANNSSPJALL UM HELGINA
Ásmundarsafn 30. mars kl. 13 - 16
LÁTTU LJÓS ÞITT SKÍNA OG SPREYTTU ÞIG Í LEIRLIST
Opin leirlistsmiðja fyrir alla fjölskylduna.
Hafnarhús 30. mars kl. 15
HARALDUR JÓNSSON TEKUR ÞÁTT Í LEIÐSÖGN UM ÞÖGN.
> Sjá nánar
LANGUR FIMMTUDAGUR SÓFASPJALL UM RITSTÖRF SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR Í HAFNARHÚSI 27. MARS KL. 20.
Að þessu sinni verður sjónum beint að ritstörfum Sigurðar Guðmundssonar myndlistarmanns en hann er þekktur fyrir framlag sitt á þeim vettvangi. Þátttakendur í sófaspjallinu eru Pétur Blöndal, sem gaf út bókina Sköpunarsögur fyrir síðustu jól og Páll Valsson bókmenntafræðingur sem komið hefur að útgáfu bóka Sigurðar. Hafþór Yngvason safnstjóri leiðir umræðuna en hann er jafnframt höfundur greinar sem birtist í sýningarskrá sýningarinnar Mállausir kjarnar.
> Sjá nánar
OPIÐ ALLA PÁSKANA Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR - HAFNARHÚS OPIÐ TIL KL. 22 Á SKÍRDAG
Öll hús Listasafns Reykjavíkur eru opin yfir páskana og er aðgangur ókeypis. Ásmundarsafn er opið daglega frá kl. 13 - 16. Fastur opnunartími Kjarvalsstaða og Hafnarhúss er frá kl. 10 - 17 en í því síðarnefnda er opið til kl. 22:00 á skírdag en þá verða sýndar þar tvær heimildarmyndir á vegum Kviksögu, sem bera yfirskriftina Horft úr vestri.
> Sjá nánar
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, D-8 GUNNHILDUR HAUKSDÓTTIR, Opnun fimmtudaginn 13. mars kl. 17:00 Opið til kl. 22:00!
„Ég verð alltaf fyrir vonbrigðum þegar ég skil listaverk. Best finnst mér þegar reynslan sem listaverkið gefur er gjörsamlega ótúlkanleg. Það er betra að borða kökuna en lesa uppskriftina af henni.“ –
Sigurður Guðmundsson
Á fimmtudaginn opnar einnig áttunda innsetningin í D-salnum Þar er sjónum beint að yngri kynslóðum listamanna en innsetning Gunnhildar Hauksdóttur er síðust í sýningaröðinni að þessu sinni.
> Sjá nánar
KLASSÍK Á KJARVALSSTÖÐUM MIÐVIKUDAGINN 12. MARS KL. 20:00
Ný kammertónleikaröð hefur göngu sína á Kjarvalsstöðum miðvikudaginn 12. mars. Á fyrstu tónleikunum verða eingöngu flutt verk eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson (1847-1927) sem talinn er fyrsta íslenska tónskáldið og tók þátt í fyrstu kammertónleikunum á Íslandi árið 1922.
Tónleikaröðin Klassík á Kjarvalsstöðum er nýtt samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og Félags íslenskra tónlistarmanna. Á árinu 2008 verða haldnir fernir tónleikar á miðvikudagskvöldum undir þessari yfirskrift.
> Sjá nánar
HELGIN Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Kvöldopnanir í Hafnarhúsinu á fimmtudögum hafa gefið mjög góða raun og góður rómur verið gerður af þeim fjölbreyttu dagskrárliðum sem þar er boðið upp á. Í kvöld fær safnið góða gesti en þá verður opinn fundur á vegum Samtaka hönnuða. Á sunnudaginn er listamannsspjall í Hafnarhúsinu í tengslum við sýninguna Þögn og einnig er leiðsögn á Kjarvalsstöðum.
> Sjá nánar
LANGUR FIMMTUDAGUR
OPINN FUNDUR HÖNNUNARMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Í HAFNARHÚSINU FIMMTUDAGINN 6. MARS KL. 20:00
Nýlega var Hönnunarmiðstöð Íslands stofnuð af sömu fagfélögum hönnuða sem mynda í dag Samtök Hönnuða - Form Ísland. Vegna þess hefur verið lagt til að heildarsamtök hönnuða verði lögð niður í núverandi mynd. Þetta gerir að verkum að skuldbindingar félagsins, svo sem aðild að Sjónlistamiðstöð og Sjónlistaverðlaunum, verða innlimaðar af HMÍ.
Til að ræða þessa tillögu fyrir aðalfund Samtaka Hönnuða - Form Ísland er boðað til opins félagsfundar fimmtudaginn 6. mars nk. klukkan 20-21.30 í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi og er öllum heimil þáttaka.
Í tilkynningu frá Samtökum hönnuða - Form Ísland segir:
> Sjá nánar
DAGSKRÁ FYRIR ALLA
Af ýmsu er að taka um helgina hjá Listasafni Reykjavíkur en sérstök athygli er vakin á síðasta sýningardegi hinnar rómuðu Feneyjatvíæringssýningu Steingríms Eyfjörð, Lóan er komin. Sama dag lýkur einnig sýningu Ingarafns Steinarssonar í D-salnum.
> Sjá nánar
HVAÐ Á AÐ GERA UM HELGINA?
FYRIRLESTUR UM BORGARSKIPULAG, KRÝNING MEISTARAKOKKS FOOD & FUN, LISTSMIÐJA, LEIÐSAGNIR OG TÓNLIST Í TILEFNI AF FÆÐINGARDEGI MIKINESAR ERU MEÐAL ÞESS SEM LISTASAFN REYKJAVÍKUR BÝÐUR UPP Á ÞESSA LITRÍKU HELGI.
Lokadagur hinnar vinsælu Vatnsmýrarsýningu er í dag, fimmtudaginn 21. febrúar. Glæsileg dagskrá hefur fylgt sýningunni úr hlaði en lokastefið í þeirri röð verður í dag þegar fluttur er fyrirlestur um fagurfræði í skipulagi borga. Að lokinni sýningu um samkeppni um Vatnsmýrarsvæðið tekur við í portinu samkeppni af allt öðrum toga og snýst um hylli bragðlaukanna. Keppnin er hluti af hinni vinsælu sælkerahátíð Food & Fun sem nú fer fram um alla borg.
> Sjá nánar
REYKJAVÍK DOCUMENTARY WORKSHOP kynnir, Fimmtudagur 21 . febrúar kl. 20.00
Heimildamyndin Ég er ekki eitt prósent (2006) eftir ítalska leikstjórann Antonio Morabito verður sýnd í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Leikstjórinn verður sjálfur viðstaddur sýninguna og svarar spurningum að henni lokinni. Laugardaginn 23. febrúar kl. 14-16 býður félagið upp á leikstjóraspjall með Morabito í Reykjavíkurakademíuni Hringbraut 121 þar sem hann ræðir verk sín og nálgun í heimildamyndagerð. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
> Sjá nánar
VATNSMÝRI - 102 REYKJAVÍK, LENGDUR OPNUNARTÍMI. GUJA DÖGG HAUKSDÓTTIR ARKITEKT MEÐ LEIÐSÖGN KL. 20.00 Í KVÖLD 20. FEB.
Gríðarlegur áhugi hefur verið á sýningunni Vatnsmýri, 102 Reykjavík sem opnuð var í Hafnarhúsinu síðastliðinn fimmtudag í kjölfar verðlaunaafhendingar úr samkeppni um svæðið. Síðasti sýningardagur er fimmtudagur 21. febrúar en á morgun, miðvikudaginn 20. febrúar verður opnunartíminn lengdur til kl. 22:00, Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt verður með leiðsögn kl. 20.00 . Hafnarhúsið er opið öll fimmtudagskvöld til kl. 22:00, en kl. 17:00 þennan síðasta sýningardag mun Massimo Santanicchia arkitekt halda fyrirlestur um fagurfræði og tíðaranda í skipulagi borga í fjölnotasal Hafnarhússins. Eftir að sýningunni lýkur munu vinningstillögurnar verða til sýnis í skála hjá Skipulags- og byggingarsviði í Borgartúni.
> Sjá nánar
Erró - Ofurhetjur - 7. febrúar – 27. apríl 2008
Á sýningunni eru verk sem endurspegla notkun Errós (f. 1932 )á hetjum úr heimi myndasögunnar. Hann byggir verk sín á tilvísunum í myndir annarra sem hann klippir saman og flytur yfir á léreft.
> Sjá nánar
VATNSMÝRARVIÐBURÐIR OG FLEIRA FRÓÐLEGT
Spennandi dagskrá er framundan um helgina í Listasafni Reykjavíkur. Mikil áhersla verður á sýninguna um skipulag Vatnsmýrarinnar sem verður opnuð í Hafnarhúsinu í dag, fimmtudag, en í tengslum við hana verður fjölbreytt dagskrá frá fimmtudegi til sunnudags. Á Kjarvalsstöðum verður skipulögð listsmiðja fyrir börn og fjölskyldufólk og einnig verða þar tónleikar á vegum kammerhópsins Nordic Affect. VIÐBURÐIR OG FLEIRA FRÓÐLEGT
> Sjá nánar
VATNSMÝRI / 102 REYKJAVÍK - NIÐURSTÖÐUR ÚR HUGMYNDASAMKEPPNI- SÝNING - UPPBOÐ OG VIÐBURÐIR
Fimmtudaginn 14. febrúar kl. 17:00 verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi sýning á 136 tillögum sem bárust í hugmyndasamkeppni um skipulag Vatnsmýrarinnar. Fyrr um daginn verða kynntar á sama stað niðurstöður úr hugmyndasamkeppninni og verðlaun afhent þeim sjö tillögum sem þóttu skara fram úr. Um kvöldið, kl. 20:00, munu uppboðshaldarar taka Hafnarhúsið yfir og efna til uppboðs á lóðum í Vatnsmýrinni þar sem fóllki gefst færi á að festa sér afmarkaða lóð samkvæmt skipulagi vinningstillögunnar. Engar kvaðir fylgja þátttöku í uppboðinu, heldur er um að ræða hressandi leik þar sem búast má við mikilli samkeppni um bestu bitana.
> Sjá nánar
VIÐBURÐARÍK HELGI 7 - 9 febrúar
Opnun tveggja sýninga, Vetrarhátíð, Safnanótt og sýningarstjóraspjall er meðal þess sem Listasafn Reykjavíkur býður upp á frá fimmtudegi til sunnudags.
> Sjá nánar
ÞÖGN, ERRÓ - OFURHETJUR, FIMMTUDAG 7. FEBRÚAR KL. 17:00
ÞÖGN
„Kvikmyndin Raging Bull er ein sú magnaðasta sem ég hef augum litið. Hún er ruddaleg og ofbeldisfull og er sjálfhverf söguhetjan, boxarinn Jake LaMotta, sem Robert de Niro túlkar af einstakri snilld, einhver leiðinlegasti karakter sem fyrirfinnst í kvikmyndasögunni. Box atriði myndarinnar eru stórbrotin, sérstaklega hatröm átök LaMotta og Sugar Ray Robinson." Með þessum orðum hefst grein sem JBK Ransu, sýningarstjóri Þagnar ritar í tilefni af sýningunni sem verður opnuð í Hafnarhúsinu
> Sjá nánar
HULDUFÓLK Í LISTSMIÐJU OG LEIÐSÖGN UM SÝNINGU STEINGRÍMS EYFJÖRÐ, SUNNUDAGINN 3. FEBRÚAR KL. 14 OG 15
Listsmiðjur Listasafns Reykjavíkur njóta mikilla vinsælda en síðastliðinn sunnudag komu um eitt hundrað hressir og hugmyndarík gestir á öllum aldri í Ásmundarsafn og mótuðu verk í anda Ásmundar Sveinssonar.
LISTSMIÐJA KL. 14:00
Næstkomandi sunnudag, 3. febrúar kl. 14:00 verður listsmiðja Listsafnsins í Hafnarhúsi helguð huldufólki en á sýningunni Lóan er komin leynast víða tilvísanir í álfa og huldufólk. Áður en listsmiðjan hefst er farið í stutta yfirferð um sýninguna og spáð í verk listamannsins Steingríms Eyfjörð. Á eftir fara allir í listsmiðju og vinna undir leiðsögn myndlistarmanns verk sem tengjast hugmyndum listamannsins um álfa og huldufólk.
> Sjá nánar
LANGUR FIMMTUDAGUR Í LISTASAFNINU - OPIÐ TIL TÍU
Íslandsfrumsýning og Feneyjatvíæringurinn
Þrátt fyrir ólíka viðburði næsta fimmtudagskvöld í Listasafni Reykjavíkur eiga viðburðirnir það tveir sameiginlegt að þar kemur Huldufólk mikið við sögu!
Fullt var út úr dyrum í Hafnarhúsinu síðastliðið fimmtudagskvöld þegar formleg dagskrá á Löngum fimmtudögum Listasafnsins hóf göngu sína. Þar var kynnt til sögunnar nýtt samstarf Listasafnsins við Reykjavík Documentary Workshop. Listasafn Reykjavíkur hefur gengið til samstarfs við fleiri aðila, en næstkomandi fimmtudagskvöld, 31. janúar, verður fyrsta sýningin í röð kvikmynda á vegum Kviksögu.
> Sjá nánar
LEIKUR, LEIR OG LISTSMIÐJA,ÁSMUNDARSAFNI,SUNNUDAGINN 27. JANÚAR, KL. 13 - 16
Ásmundur Sveinsson hafði mikið yndi af börnum og tók þeim opnum örmum þegar þau vildu fá að skoða eða leika sér í stóru höggmyndunum hans. Enn þann dag í dag sækjast börn eftir því að heimsækja Ásmundarsafn og ævintýragraðinn í kringum safnið og setja sig inn í hugarheim Ásmundar og takast á við verkin með hug og hönd. Í sínum kunnustu verkum leitaði Ásmundur fanga í þjóðsögum og daglegu lífi alþýðufólks og náði þannig að brúa bilið milli listarinnar og hins viðtekna í lífi þjóðarinnar.
> Sjá nánar
AFMÆLISTÓNLEIKAR MOZARTS, Kjarvalsstöðum, sunnudaginn 27. janúar kl. 20:00
Sunnudaginn 27. janúar kl. 20:00 verða haldnir á Kjarvalsstöðum á vegum Reykjavíkurborgar hinir árlegu Mozart-tónleikar í tilefni af fæðingardegi tónskáldsins.
Fluttar verða tvær sónötur fyrir píanó og fiðlu kv.376 og kv.481 ásamt píanósónötu kv.576 og Kegelstatt tríóinu kv.498 fyrir klarinett víólu og píanó.
> Sjá nánar
Sámal Mikines, Nína Sæmundsson, Laugardaginn 26. janúar kl. 16:00
Listamennirnir Sámal Mikines (1906 - 1979) og Nína Sæmundsson (1892 - 1965) eru samtímamenn í myndlist og eiga það m.a. sameiginlegt að hafa sótt menntun sína í Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn á fyrri hluta síðustu aldar. Þau hlutu bæði viðurkenningu fyrir myndlist sína innan og utan síns heimalands.
> Sjá nánar
LANGUR FIMMTUDAGUR Í LISTASAFNINU. BORGARMÚRAR: MÍN EIGIN TEHERAN kl. 20:00.
REYKJAVÍK DOCUMENTARY WORKSHOP
Í Hafnarhúsinu verður boðið upp á dagskrá af ýmsu tagi á fimmtudagskvöldum sem verður hér eftir opið til kl. 22:00. Listasafn Reykjavíkur hefur af þessu tilefni gengið til samstarfs við ýmsa aðila sem munu koma að dagskránni með einu eða öðru móti. Meðal samstarfsaðila er félag um heimildamyndagerð sem kallast Reykjavík Documentary Workshop en fyrsta mynd þeirra í Hafnarhúsinu
> Sjá nánar
ERRÓ AFHENDIR GUÐMUNDU VERÐLAUNINN Í HAFNARHÚSINU LAUGARDAGINN 19. JANÚAR
LISTASJÓÐUR GUÐMUNDU
Í tilefni af komu Errós hingað til lands fer fram afhending úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur en sjóðinn stofnaði Erró til minningar um Guðmundu móðursystur sína frá Miðengi. Stofnfé sjóðsins er andvirði íbúðar að Freyjugötu 34 sem Guðmunda arfleiddi Erró að. Sjóðnum er ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna sem þykja skara fram úr og hvetja þær til frekari dáða. Árleg úthlutun fer fram úr sjóðnum og er þessi sú níunda í röðinni. Þær konur sem áður hafa hlotið viðurkenningu úr sjóðnum eru Ólöf Nordal, Finna Birna Steinsson, Katrín Sigurðardóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sara Björnsdóttir, Þóra Þórsdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir og Hekla Dögg Jónsdóttir.
> Sjá nánar
ERRÓ ÁRITAR, GEFUR NÚMERUÐ GRAFÍKVERK, LAUGARDAGINN 19. JANÚAR, kl. 14.00
ÁRITUN OG GRAFÍKVERK
Erró er væntanlegur til landsins og mun árita bókina ERRÓ Í TÍMARÖÐ – líf hans og list laugardaginn 19. janúar kl. 14:00 í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Með hverri seldri bók fylgir áritað og númerað grafíkverk sem hægt er að fella inn í bókina. Um tvenns konar grafíkverk er að ræða en einungis 100 eintök eru gerð af hvoru verki fyrir sig. Í för með Erró er höfundur bókarinnar Danielle Kvaran listfræðingur, sem búsett er í Noregi og mun hún einnig árita bókina.
> Sjá nánar
HREINN FRIÐFINNSSON, SUNNUDAG 20. JANÚAR, LISTSMIÐJA OG LEIÐSÖGN LISTAMANNA
LISTSMIÐJA KL. 14:00
Tilraunir, textasmíði, leikur og leiðsögn eru verkefni sem yngri og eldri gestir fá að glíma við í listsmiðju fyrir fjölskylduna sem haldin verður í Hafnarhúsinu sunnudaginn 20. janúar kl. 14:00. Í listsmiðjunni eru hugmyndir og viðfangsefni sótt í sýningu Hreins Friðfinnssonar sem nú stendur yfir í tveimur sölum Hafnarhússins. Hreinn Friðfinnsson er einn fremsti myndlistarmaður þjóðarinnar. Verk hans einkennast af léttleika, hárfínni kímni, draumum, sjónblekkingum og hinu yfirnáttúrulega en allt þetta er notað sem uppspretta listsmiðjunnar.
> Sjá nánar
LJÓSHÆRÐ UNGFRÚ HEIMUR 1951 - SUNNUDAGINN 13. JANÚAR, SÝNINGARLOK - LEIÐSÖGN KL. 15:00
Sýning Birgis Snæbjörns Birgissonar á Kjarvalsstöðum á fegurstu fljóðum heims hefur vakið verðskuldaða athygli. Morgunblaðið tilnefndi hana sem eina af tíu bestum sýningum ársins 2007 og breska listatímaritið Art World nefndi verk Birgis meðal þeirra áhugaverðari á nýliðnum kaupstefnum í London.
> Sjá nánar
LÓAN ER KOMIN og D-7 INGIRAFN STEINARSSON. Opnun fimmtudaginn 10. janúar kl. 17:00. Opið til kl. 22:00!
Sýning Steingríms Eyfjörð, Lóan er komin, var framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins í fyrra. Lóan er boðberi fleiri góðra tíðinda en vorkomunnar en hún boðar einnig nýja tíma í Hafnarhúsinu sem verður hér eftir opið til kl. 22:00 öll fimmtudagskvöld.
> Sjá nánar
Samtal um Hrein - Huginn Arason og Unnar Örn J. Auðarson
Sunnudaginn 6. janúar kl. 15 annast myndlistarmennirnir Huginn Arason og Unnar Örn J. Auðarson leiðsögn um sýningu á verkum Hreins Friðfinnssonar í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
Hreinn Friðfinnsson (f. 1943) skipaði sér í framvarðasveit íslenskra listamanna þegar hann tók þátt í stofnun SÚM árið 1965. Íslensk menning og náttúra eru í veigamiklu hlutverki í verkum hans, sem einkennast af hárfínni kímni og endurtekningum þar sem draumar, þjóðsögur, sjónblekkingar og hið yfirnáttúrulega leika lykilhlutverk
> Sjá nánar
ÓKEYPIS AÐGANGUR AÐ LISTASAFNI REYKJAVÍKUR
Frá og með 1. janúar 2008 er ókeypis aðgangur að Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni.
Þannig vill Listasafn Reykjavíkur undirstrika að safnið er hluti af sameiginlegum lífsgæðum borgarbúa sem allir eigi að hafa aðgang að.
> Sjá nánar
FALINN FJÁRSJÓÐUR - SÍÐASTA SÝNINGARHELGI!
Hvítasunnudagur og fleiri verk. Leiðsögn í fylgd Aðalsteins Ingólfssonar, sunnudaginn 30. desember kl. 15:00.
Hið umtalaða verk Kjarvals, Hvítasunnudagur hefur laðað að sér fjölmarga gesti frá því sýningin Falinn fjársjóður var opnuð í byrjun desember. Hvítasunnudagur er eitt merkasta verk Kjarvals í kúbískum stíl en það kom í leitirnar í Kaupmannahöfn fyrr á þessu ári eftir langa leit. Kjarval málaði Hvítasunnudag þegar hann hafði nýlokið námi við Konunglegu dönsku listaakademíuna árið 1917 og færði það vinafólki sínu að gjöf.
> Sjá nánar
OPNUNARTÍMAR LISTASAFNS REYKJAVÍKUR YFIR JÓL OG ÁRAMÓT
Ásmundarsafn: Lokað 24., 25., 26. og 31. des. og 1. jan.
Almennur opnunartími er 13 - 16 alla daga.
Hafnarhús: Lokað 24. og 25. des. og 1. jan.
Opið 26. des.: 12 - 17
Opið 31. des.: 10 - 14
Almennur opnunartími er 10 - 17 alla daga.
Kjarvalsstaðir. Lokað 24. 25. og 31. og 1. jan.
Opið 26. des.: 12 - 17
Almennur opnunartími er 10 - 17 alla daga.
> Sjá nánar
HÁTÍÐARSTEMNING Á KJARVALSSTÖÐUM - Mánudaginn 17. desember kl. 12:15
Hátíðarstemning mun ríkja á Kjarvalsstöðum þegar Tríó Reykjavíkur heldur sína þriðju tónleika í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur. Tónleikarnir eru tilvalin hvíld frá jólaamstrinu en að þeim loknum er hægt að tilla sér niður í kaffiteríu Kjarvalsstaða og njóta góðra veitinga á hagstæðu verði. Tónleikarnir hefjast kl. 12:15.og standa yfir í um hálftíma. Þeir fara fram í austursal Kjarvalsstaða þar sem nú eru til sýnis verk úr safneign Landsbankans, m.a. Hvítasunnudagur sem vakið hefur mikla athygli.
Aðgöngumiðinn er kr. 500 og gildir einnig á sýningar á Kjarvalsstöðum, Hafnarhúsi og í Ásmundarsafni í þrjá daga.
> Sjá nánar
FALINN FJÁRSJÓÐUR Leiðsögn Þorbjargar Br. Gunnarsdóttur, sunnudaginn 16. desember kl. 15:00
Á sýningunni Falinn fjársjóður getur að líta einstæð verk sem Landsbankinn keypti á 120. afmælisári sínu í fyrra. Margt er þar fágætra verka, en að öðrum ólöstuðum ber þar hæst Hvítasunnudag Kjarvals sem notið hefur mikillar athygli m.a. vegna sérstæðrar sögu sem verkið geymir. Sunnudaginn 16. desember kl. 15:00 mun Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir fara um sýninguna og segja sögu verkanna og spjalla við gesti um sýninguna.
> Sjá nánar
LISTAMANNSSPJALL MARGRÉTAR H. BLÖNDAL, Sunnudaginn 2. desember kl. 15:00
Sunnudaginn 2. desember kl. 15:00 verður Margrét H. Blöndal með listamannsspjall í sýningarsölum sínum í Hafnarhúsinu. Á sýningu Margrétar eru teikningar og þrívíð verk sem sköpuð eru inn í rýmið.
> Sjá nánar
HVÍTASUNNUDAGUR KOMINN HEIM!- 2. - 30. desember 2007
Hvítasunnudagur, eitt merkasta verk Kjarvals í kúbískum stíl, er komið til landsins og verður nú sýnt í fyrsta skipti á sýningu í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum. Sýningin ber yfirskriftina Falinn fjársjóður en þar er að finna auk Hvítasunnudags úrval verka sem Landsbankinn keypti á 120. afmælisári sínu í fyrra.
Sýningin verður opnuð 2. desember kl. 14:00 en sama dag kl. 16:00 verður sýningarstjórinn Aðalsteinn Ingólfsson með leiðsögn um sýninguna. Sýningin stendur aðeins yfir í einn mánuð eða til 30. desember.
> Sjá nánar
EINSTAKAR JÓLAGJAFIR Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR
Afsteypur af kunnustur höggmyndum Ásmundar Sveinssonar þ.á.m.ný afsteypa NÓTT Í PARÍS
einnig listaverkabækur um mætustu listamenn þjóðarinnar eru tilvaldar gjafir fyrir vandláta
> Sjá nánar
LJÚFIR HÁDEGISTÓNAR Á KJARVALSSTÖÐUM, Mánudaginn 19. nóvember kl. 12:15
Hugljúf og kunn tónverk hljóma á öðrum hádegistónleikunum sem Listasafn Reykjavíkur heldur í samstarfi við Tríó Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum mánudaginn 19. nóvember kl. 12:15.
> Sjá nánar
LISTSMIÐJA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA, Hafnarhúsi, sunnudaginn 18. nóvember kl. 14:00
Tilraunir, textasmíði, leikur og leiðsögn eru verkefni sem yngri og eldri gestir fá að glíma við í listsmiðju fyrir fjölskylduna sem haldin verður í Hafnarhúsinu sunnudaginn 18. nóvember kl. 14:00. Í listsmiðjunni eru hugmyndir og viðfangsefni sótt í sýningu Hreins Friðfinnssonar sem nú stendur yfir í tveimur sölum Hafnarhússins.
> Sjá nánar
LJÓSHÆRÐ UNGFRÚ HEIMUR 1951 - Birgir Snæbjörn Birgisson Laugardaginn 17. nóvember kl. 16:00
Keppnin um fegursta fljóð veraldar hóf göngu sína árið 1951. Birgir Snæbjörn Birgisson hefur málað andlitsmyndir af öllum sigurvegurum keppninnar frá upphafi en serían er sýnd í fyrsta skipti á Kjarvalsstöðum frá og með næsta laugardegi. Hluti málverkanna var fyrst sýndur í Gautaborg fyrr á þessu ári en sýningin í Listasafni Reykjavíkur fer síðan til Lundúna
> Sjá nánar
Listamannsspjall Sunnudag 11. nóvember kl. 15:00 HAFNARHÚS / D6 Karlotta Blöndal
Hreinskrift er yfirskrift innsetningar Karlottu Blöndal, sem er sjötti listamaðurinn til að sýna verk sín í D-sal Hafnarhússins. Næstkomandi sunnudag kl. 15:00 mun sýningarstjórinn, Ólöf K. Sigurðardóttir, ræða við Karlottu um sýninguna.
> Sjá nánar
Málþing um Íslensku byggingarlistarverðlaunin á Kjarvalsstöðum, laugardaginn 3. nóvember kl. 14:00
Listasafn Reykjavíkur mun standa fyrir málþingi með þátttöku finnska arkitektsins Esa Laaksonen í fyrirlestrasal Kjarvalsstaða. Málþingið er haldið í tengslum við Íslensku byggingarlistarverðlaunin 2007, en nú stendur yfir sýning á Kjarvalsstöðum á verkum þeirra tíu verkefna sem til álita komu.
> Sjá nánar
EGGERT PÉTURSSON - SÍÐASTA SÝNINGARHELGI
Sunnudaginn 4. nóvember lýkur sýningu Eggerts Péturssonar á Kjarvalsstöðum sem notið hefur gríðarlegrar athygli og aðsóknar. Á sýningunni gefst einstakt tækifæri til að skoða feril, efnistök og verk þessa einstaka listamanns allt frá fyrstu sýningu hans árið 1980 til dagsins í dag.
> Sjá nánar
D - 6 Karlotta Blöndal, Föstudaginn 2. nóvember kl. 20:00
Sjötti listamaðurinn til að sýna verk sín í D-salnum er Karlotta Blöndal. Karlotta Blöndal (f. 1973) notar heimildir um miðilsfundi í Reykjavík við upphaf 20. aldar til að velta upp spurningum um túlkun og táknmyndir.
> Sjá nánar
HREINN FRIÐFINNSSON, Föstudaginn 2. nóvember kl. 20:00
Hreinn Friðfinnsson er einn fremsti myndlistarmaður þjóðarinnar. Verk hans einkennast af næmi og léttleika og ljóðrænum tóni sem hefur þau yfir oft hversdagsleg viðfangsefni og efnivið. Hreinn notar ljósmyndun og teikningu auk skúlptúrs og innsetninga.
> Sjá nánar
Íslensku Byggingarlistarverðlaunin - Sýningin framlengd til 24. nóv
Tíu verkefni komu til greina þegar Íslensku byggingarlistarverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn.
Verkefnin eru til sýnis á Kjarvalsstöðum.
sjá fréttatilkynningu
> Sjá nánar
Eggert Pétursson, Leikur og leiðsögn með listamanninum, KJARVALSSTAÐIR, Sunnudaginn 28. október frá kl. 14:00
Sýning Eggerts Péturssonar verður í forgrunni í Listasafni Reykjavíkur næstkomandi sunnudag.
Klukkan 14:00 hefst dagskrá sem ætluð er börnum og fjölskyldufólki þar sem lagt verður út af verkum Eggerts. Verkin verða skoðuð og rædd og léttar spurningar verða lagðar fyrir yngri gestina. Farið verður i ratleik og plöntuleiðangur sem allir ættu að hafa gagn og gaman af.
Klukkan 15:00 verður leiðsögn um sýninguna sem listamaðurinn sjálfur mun taka þátt í. Eggert segir frá verkum sínum, uppruna þeirra og ferli sínum og svarar fyrirspurnum frá gestum.
> Sjá nánar
Fyrirlestur Pihla Meskanen, þriðjudaginn 30. október kl. 17:00 á Kjarvalsstöðum
Pihla Meskanen arkitekt og skólastjóri Arkki-skólans í byggingarlist fyrir börn og unglinga í Helsinki heldur fyrirlestur sem hún nefnir: Nám og leikur: Umhverfi og byggingarlist. Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við sýninguna Byggingarlist í augnhæð sem nú stendur yfir í norðursal Kjarvalsstaða og fer fram þriðjudaginn 30. október kl. 17:00.
> Sjá nánar
Hafnarhúsið er lokað vegna sýningarskipta til 2. nóvember.
> Sjá nánar
Gjörningaklúbburinn kveður
Yfirlitssýningu Gjörningaklúbbsins lýkur sunnudaginn 21. október. Gjörningaklúbburinn hefur sett sterkan svip á Hafnarhúsið undanfarnar vikur með stórskemmtilegri, líflegri og óvæntri sýningu sinni. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda og verið afar vel sótt, sérstaklega meðal nemenda af öllum skólastigum.Vakin er athygli á að sýningin verður opin fyrir tónleikagesti Iceland Airwaves öll tónleikakvöldin í Hafnarhúsinu.
Hafnarhúsið lokað til 2. nóvember
> Sjá nánar
Hugleiðing um húsgagn, Kjarvalsstaðir, Laugardaginn 20. október kl. 16:00
Hugleiðing um húsgagn nefnir Óli Jóhann Ásmundsson arkitekt og hönnuður viðfangsefni sitt sem hann sýnir í fyrsta skipti á Kjarvalsstöðum. Sýningin er í vesturforsal Kjarvalsstaða, sem helgaður er þrívíðum verkum ólíkra listamanna.
> Sjá nánar
HUGSA SÉR FRIÐ - IMAGINE PEACE
> Sjá nánar
PLÖNTULEIÐANGUR OG RATLEIKUR Á SÝNINGU EGGERTS PÉTURSSONAR,KJARVALSSTÖÐUM, SUNNUDAGINN 7. OKTÓBER KL. 14:00
Það er breiður aldurshópur sem hefur lagt leið sína á málverkasýningu Eggerts Péturssonar, sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Aðsókn hefur verið góð og verkin rómuð af gestum.
Næstkomandi sunnudag hyggst Listasafn Reykjavíkur tileinka börnum og fjölskyldufólki. Klukkan tvö hefst dagskrá sem er ætlað að virkja yngri gesti til umræðu og spurninga í gegnum létta leiki. Farið verður í plöntuleiðangur og ratleik um verk Eggerts og skissubækur hans bornar saman við endanlega útkomu verkanna.
Klukkan þrjú hefst svo leiðsögn um sýninguna sem er öllum opin.
Á sýningunni eru til sýnis rúmlega fimmtíu verk sem Eggert hefur málað frá því 1980 og til dagsins í dag
> Sjá nánar
Gjörningaklúbburinn Sunnudagur 7. október kl. 15.00
Af óviðráðanlegum örsökum fellur áður auglýst listamannsspjall Sigrúnar Hrólfsdóttur niður 7.okt
Venjubundin leiðsögn verður um sýningarnar.
> Sjá nánar
Málþing um Eggert Pétursson, Fundarsalur Kjarvalsstaða,Laugardaginn 29. september kl. 13:00
Laugardaginn 29. september kl. 13:00 gengst Listasafn Reykjavíkur fyrir málþingi og listamannsspjalli um málarann Eggert Pétursson. Þátttakendur eru auk listamannsins, Ólöf K. Sigurðardóttir sýningarstjóri og deildarstjóri fræðsludeildar safnsins og myndlistarmaðurinn Ingólfur Arnarson, en bæði rita í hina veglegu bók um listamanninn sem kom út í tilefni af sýningunni.
> Sjá nánar
Hafnarhús Sunnudag 30. september kl. 15:00
Sýningarstjóraspjall Yean Fee Quay annast leiðsögn um sýningu Gjörningaklúbbsins (á ensku).
> Sjá nánar
SKEMMTILEGUR SUNNUDAGUR MEÐ GJÖRNINGAKLÚBBNUM, Hafnarhús Sunnudag 30. september kl. 14:00
- Fjölskyldustund kl. 14:00
- Leiðsögn á ensku kl. 15:00
Næstkomandi sunnudag blæs Listasafn Reykjavíkur til fjölskyldustundar í tengslum við litríka og fjörlega sýningu Gjörningaklúbbsins. Fjölskyldustundin hefst klukkan 14:00 og er ætluð ungum sýningargestum í fylgd fullorðinna. Þar verður þrætt um völundarhús Gjörningaklúbbsins, sem hlykkjast sem ævintýraheimur um einn sýningarsalinn og staldrað við forvitnileg verk og sýningargripi, m.a. peningavélina! Í för um sýninguna er markmiðið að börnin fái sín notið og að spurningar þeirra verði kveikjan að umræðu um sýninguna.
> Sjá nánar
Af hverju býr fólk í húsum? Kjarvalsstaðir, Sunnudag 23. september kl. 14:00
Af hverju býr fólk í húsum? Af hverju byggja dýrin sér öðru vísi bústaði en mannfólkið? Af hverju búa ekki öll dýr í húsum? Hvað er bygging og hvað er byggingarlist?
Þessar vangaveltur og fleiri eru uppistaðan í óformlegu spjalli sem efnt er til á fjölskyldustund Kjarvalsstaða næstkomandi sunnudag kl. 14:00 í umsjón Guju Daggar Hauksdóttur, deildarstjóra byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur. Fjölskyldustundin er aðgengileg öllum aldurshópum en tilgangurinn er að bjóða upp á fjörlegar umræður og óheft hugarflug um hugtakið byggingarlist.
> Sjá nánar
Gjörningaklúbburinn, Litið yfir farinn veg, Sunnudag 23. september kl. 15
Gjörningaklúbburinn, sem skipaður er þeim Eirúnu Sigurðardóttur, Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur hefur starfað saman í rúman áratug. Vegna þeirra tímamóta og í tilefni af umfangsmikilli yfirlitssýningu þeirra í Hafnarhúsinu boða þær til listamannsspjalls í fjölnotasal Hafnarhússins næstkomandi sunnudag klukkan 15:00. Þar verður litið yfir farinn veg og litrík fortíð gerð upp. Þremenningarnir skoða sögu sína í máli og myndum en listamaðurinn Hekla Dögg Jónsdóttir og Ólöf K. Sigurðardóttir deildarstjóri fræðsludeildar safnsins munu taka þátt í spjallinu ásamt fleirum.
> Sjá nánar
Helgi Gíslason Listamannsspjall Sunnudaginn 16. september kl. 15:00
Myndhöggvarinn Helgi Gíslason er fyrstur til að sýna verk sín í nýrri sýningaröð í vesturforsal Kjarvalsstaða þar sem áherslan er lögð á þrívið verk, sem þykja henta rýminu afar vel.
> Sjá nánar
Jóní Jónsdóttir Listamannsspjall í Hafnarhúsinu Sunnudag 9. september kl. 15:00
> Sjá nánar
Byggingarlist í augnhæð og Lágmyndir Helga Gíslasonar Kjarvalsstaðir 8. september kl. 16
Eins og kynnt hefur verið verður yfirlitssýning á verkum Eggerts Péturssonar opnuð á Kjarvalsstöðum laugardaginn 8. september kl. 16:00. Á sama tíma verða opnaðar tvær minni sýningar, Byggingarlist í augnhæð og Lágmyndir Helga Gíslasonar.
> Sjá nánar
EGGERT PÉTURSSON Kjarvalsstaðir Laugardaginn 8. september kl. 16:00
Á sýningu Eggerts Péturssonar á Kjarvalsstöðum gefst í fyrsta sinn tækifæri til að líta verk þessa dáða listamanns frá upphafi ferils hans til dagsins í dag. Á sýningunni eru rúmlega fimmtíu verk þar af nokkur sem aldrei hafa verið sýnd áður. Verkin eru í eigu Listasafns Reykjavíkur og fengin að láni hjá einkaaðilum, fyrirtækjum og opinberum söfnum. Sýningarstjóri er Ólöf K. Sigurðardóttir.
> Sjá nánar
MÁLÞING OG UMRÆÐUR THG ARKITEKTA OG GJÖRNINGAKLÚBBSINS Í HAFNARHÚSINU FIMMTUDAGINN 6. SEPTEMBER KL. 17:00
Á sýningu Gjörningaklúbbsins, sem opnuð var um helgina, getur að líta ævintýralega innsetningu, eða þrívítt völundarhús, sem hverfist um verk Gjörningaklúbbsins. Völundarhúsið er samstarfsverkefni Gjörningaklúbbsins og
THG arkítekta.
Umsjón með hönnun þess hafði arkitektinn Arnaldur Geir Schram.
> Sjá nánar
Myndir frá undirritun samnings við Landsbankann 28. ágúst.
Þann 28. ágúst var undirritaður samningur Listasafns Reykjavíkur við Landsbankann vegna sýningar Eggerts Péturssonar sem opnar formlega 8. sept.
> Sjá nánar
Myndir frá undirritun samnings við Glitni 30. ágúst.
Í gær var undirritaður samningur Listasafns Reykjavíkur við Glitni vegna sýningar Gjörningaklúbbsins sem opnar formlega 31. ágúst.
> Sjá nánar
Jóhannes Atli Hinriksson Fimmti listamaður D-salarins Föstudagur 31. ágúst kl. 20:00
Fimmti listamaðurinn til að sýna í sýningaröð D-salarins er Jóhannes Atli Hinriksson (f. 1975).
> Sjá nánar
Gjörningaklúbburinn í meira en tíu ár Hafnarhús 31. ágúst kl. 20:00
Sýning Gjörningaklúbbsins í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi er fyrsta yfirlitssýning hópsins, sem á ellefu árum hefur haldið yfir 200 sýningar bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Sýningar Gjörningaklúbbsins hafa jafnan vakið athygli meðal almennings og verk hans notið mikilla vinsælda. Gjörningum þeirra fylgja ákveðnir töfrar, þeir eru ögrandi og skemmtilegir, og eins og segir í inngangi sýningarskrárinnar eru þeir„ umluktir silki, kossum, fegurð og ást”.
> Sjá nánar
Yfir 20.000 gestir hafa séð hönnunarsýninguna Magma / Kvika á Kjarvalsstöðum í sumar! Sýningunni lýkur senn.
Einni af eftirtektarverðustu sýningum ársins, Magma / Kvika lýkur sunnudaginn 26. ágúst. Ríflega tuttugu þúsund gestir hafa komið á Kjarvalsstaði frá því að sýningin var opnuð um miðjan maí og upplifað íslenska hönnun í fremstu röð eftir rúmlega áttatíu hönnuði.
> Sjá nánar
STEFNUMÓT VIÐ ÖSSUR FIMMTUDAG 23. ÁGÚST KL. 12.00
Fjórtánda og síðasta stefnumótið sem efnt er til í tilefni af sýningunni Magma/Kvika á Kjarvalsstöðum verður fimmtudaginn 23. ágúst og hefst kl. 12.00 en sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag.
> Sjá nánar
HAFNARHÚSIÐ ER LOKAÐ VEGNA SÝNINGARSKIPTA TIL 1. SEPT
> Sjá nánar
RONI HORN KVEÐUR - GJÖRNINGAKLÚBBURINN Í STARTHOLUNUM
Sunnudaginn 19. ágúst er lokadagur sýninga Roni Horn og Daníels Björnssonar í Hafnarhúsinu. Undirbúningur fyrir stórsýningu Gjörningaklúbbsins er þegar hafinn en Hafnarhúsið verður lokað fram að opnun sýningarinnar sem er laugardagur 1. september.
> Sjá nánar
STEFNUMÓT VIÐ ODDGEIR OG GUÐRÚNU
STEFNUMÓT VIÐ GUÐRÚNU MARGRÉTI OG ODDGEIR HJÁ GO FORM
FIMMTUDAGINN 16. ÁGÚST KL. 12.00
> Sjá nánar
ÓVÆNTAR DYR!
SÍÐASTA KVÖLDGANGA SUMARSINS.
FIMMTUDAGINN 16. ágúst kl. 20
> Sjá nánar
Menningarnótt í Listasafni Reykjavíkur
- Málþing um hönnun
- Franskt dansiball
- Englakór
- Leiðsagnir á táknmáli og tælensku
- Listasmiðja
- Blikandi stjörnur - Kór fatlaðra barna
- Nýútskrifaðir sólósöngvarar
> Sjá nánar
Hádegisstefnumót við Spaksmannsspjarir. Fimmtudag 26. júlí kl. 12.00
Lykillinn að gjöfulu samstarfi Völu Tofadóttur og Bjargar Ingadóttur í áravís er ekki síst fólginn í því að framleiðslan er fyrir konur einmitt eins og þær sjálfar.
> Sjá nánar
KVÖLDGÖNGUR ÚR KVOSINNI
Ilmur Stefánsdóttir myndlistarmaður varpar nýju ljósi á miðbæ Reykjavíkur í göngu sinni næstkomandi fimmtudagskvöld, 26. júlí.
> Sjá nánar
STEFNUMÓT HÖNNUÐA - SKINN OG BEIN
Hádegisstefnumót við Egil Kalevi Karlsson vöruhönnuð á Kjarvalsstöðum fimmtudaginn 19. júlí kl. 12.00
> Sjá nánar
STEFNUMÓT ÚTI OG INNI
Snæbjörn Stefánsson vöruhönnuður á hádegisstefnumóti á Kjarvalsstöðum, fimmtudaginn 12. júlí kl. 12.00
> Sjá nánar
Íslenski safnadagurinn 8. júlí!
Listasafn Reykjavíkur býður gestum og gangandi ókeypis aðgang að fjölbreyttum og áhugaverðum sýningum í tilefni af Íslenska safnadeginum 8. júlí. Ljúffengar veitingar í kaffiteríum Kjarvalsstaða og Hafnarhúss.
> Sjá nánar
MAGMA / KVIKA, SÚKKULAÐISTEFNUMÓT VIÐ BRYNHILDI
Hvernig á að baka virkt eldfjall og hvernig bragðast súkkulaðifjöll eru spurningar sem Brynhildur Pálsdóttir vöruhönnuður mun svara á hádegisstefnumóti á Kjarvalsstöðum fimmtudaginn 5. júlí kl. 12.00
> Sjá nánar
Alla föstudaga á Kjarvalsstöðum kl. 15.00
Leiðsögn á ensku um Kjarvalssýninguna
> Sjá nánar
MAGMA / KVIKA. STEFNUMÓT VIÐ GRAFÍSKAN HÖNNUÐ
Stefnumót við Ámunda Sigurðsson á Kjarvalsstöðum fimmtudaginn 28. júní kl. 12
> Sjá nánar
Laus störf hjá Listasafni Reykjavíkur
Gæslufulltrúi - Umsjónarmaður kaffiteríu - Helgarstarfsfólk
> Sjá nánar
MAGMA / KVIKA
GUÐRÚN LILJA GUNNLAUGSDÓTTIR MEÐ SÝNINGARSTJÓRASPJALL SUNNUDAGINN 24. JÚNÍ KL. 15.00
> Sjá nánar
Kvöldgöngur úr Kvosinni
Öll fimmtudagskvöld í sumar
> Sjá nánar
Daníel Karl Björnsson opnar í D4 fimmtudaginn 21. júní kl. 17.00
Sýningaröð D-salarins í Hafnarhúsinu, sem helguð er ungum listamönnum, hefur farið vel af stað. Næstur til að sýna í salnum er Daníel Karl Björnsson (f. 1974).
> Sjá nánar
Sýningu Sigurðar Guðjónssonar í D-sal lýkur sunnudaginn 17. júní!
> Sjá nánar
Fjölskyldufjör í Ásmundarsafni sunnudaginn 10. júní
Næstkomandi sunnudag býður Listasafn Reykjavíkur fjölskyldufólki að eiga skemmtilega og fræðandi stund í Ásmundarsafni frá kl. 13 - 16. Aðgangur er ókeypis.
> Sjá nánar
Tónlistarhátíðin Frum á Kjarvalsstöðum í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur
Tónlistarhátíðin Frum - 2007 verður haldin á Kjarvalsstöðum dagana 8. - 10. júní í sýningarsölum safnsins.
Meðal verka á efnisskrá tónlistarhátíðarinnar er verk Mortons Feldmans, sem tekur fimm klukkustundir í flutningi.
> Sjá nánar
MANNGERÐAR LAUGAR - ÍSLENSKIR STAÐIR
Guja Dögg Hauksdóttir flytur fyrirlestur um laugar í íslensku landslagi og tengsl þeirra við verk Roni Horn. Sunnudaginn 3. júní kl. 15:00 í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
> Sjá nánar
Hádegisleiðsögn kl. 12.00 um sýninguna Magma/Kvika alla fimmtudaga í sumar!
Alla fimmtudaga í sumar munu hönnuðir og arkitektar, sem eiga verk á sýningunni, taka þátt í 20 mínútna hádegisleiðsögn þar sem fjallað er um verk þeirra og feril.
> Sjá nánar
Tímabundið hlé frá goðsögninni Kjarval
Sunnudaginn 27. maí kl. 15 verður sýningarstjórinn Einar Garibaldi Eiríksson með sýningarstjóraspjall um sýninguna K-þáttinn á Kjarvalsstöðum.
Á sýningunni leitast sýningarstjórinn við að svipta hulunni af goðsögninni Kjarval.
> Sjá nánar
MAGMA/KVIKA – Íslensk samtímahönnun
Sýningin Magma/Kvika opnar í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum á Listahátíð í Reykjavík laugardaginn 19. maí og stendur til 26. ágúst. Sýningin er ein sú viðamesta sem sett hefur verið upp á íslenskri samtímahönnun.
> Sjá nánar
Sunnudagur 20. maí opinn dagur í Ásmundarsafni
Íbúar í Laugardal og aðrir Reykvíkingar gera sér glaðan dag í Ásmundarsafni.
Allan daginn verður hægt að skoða safnið og taka þátt í teiknisamkeppni barna og nýta garðinn til dæmis með því að taka með sér nesti, klifra og leika sér.
> Sjá nánar
Fyrirlestur um Roni Horn
Laugardaginn 12. maí kl. 14 mun listfræðingurinn Linda Norden fjalla um verk Roni Horn í fjölnotasal Hafnarhússins. (Á ensku) Allir velkomnir.
> Sjá nánar
Roni Horn í Listasafni Reykjavíkur
Sýning á verkum Roni Horn verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi föstudaginn 11. maí. Roni Horn er einn af virtari listamönnum samtímans.
> Sjá nánar
Sýningalok
Sunnudaginn 29. apríl lýkur sýningum Pierre Huyghe og Geirþrúðar Hjörvar í Hafnarhúsinu. Húsið verður lokað þar til nýjar sýningar opna aftur þann 10. maí.
> Sjá nánar
Námskeið um líf og list Kjarvals
Kristín Guðnadóttir, Eiríkur Þorláksson, Silja Aðalsteinsdóttir og Einar Garibaldi Eiríksson halda fyrirlestra á námskeiði um líf og list Kjarvals sem haldið verður annað hvert fimmtudagskvöld í fjögur skipti, frá 29. mars.
> Sjá nánar