Fréttir / tilkynningar
HAUSTDAGSKRÁ HAFNARHÚSSINS Þrjár nýjar sýningar verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi fimmtudaginn 18. september kl. 17:00.
ALLIR GERA ÞAÐ SEM ÞEIR GETA - LIBIA CASTRO & ÓLAFUR ÓLAFSSON
Ný sýningaröð í A-sal sem ætlað er að kynna myndlist, sem er á einn eða annan hátt, unnin í tengslum við samfélagið og íbúa þess. Verkefninu er ætlað að leita uppi samband og samræður út fyrir veggi safnsins; út í almenningsrými borgarinnar, fjölmiðla og landið allt. Fyrstu listamennirnir til að sýna í sýningaröðinni eru Libia Castro & Ólafur Ólafsson. Viðfangsefni þeirra er að rannsaka eðli og efni auglýsinga, auk þess að taka og sýna sjónvarpsviðtöl við ólíka fulltrúa íslensks samfélags, allt frá stöðumælavörðum til ráðherra. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.
Sýningin stendur til 2. nóvember.
SAMSÍÐA HEIMAR - INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Tíminn er viðfangsefni allra tíma, samofinn spurningu okkar um tilurð alheimsins. Uppspretta og þrætuepli heimspekinga og vísindamanna og hverju mannsbarni undrunarefni. Tuttugasta öldin með öllum sínum framförum hefur fremur aukið á skilningsleysi okkar og vakið upp flóknari spurningar. Þessar vangaveltur eru kveikjan að innsetningu Ingibjargar Jónsdóttur.
Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.
Sýningin stendur til 11. janúar 2009.
BENTU Í AUSTUR, BENTU Í VESTUR - ERRÓ
Sýning úr Erró safneign Listasafns Reykjavíkur þar sem áherslan er lögð á málverk, prentverk og klippimyndir með vísun til þátta úr austrænni og vestrænni menningu. Erró er meistari myndflatarins, og beitir hér í verkum sínum á sannfærandi hátt fjölmenningarlegum skírskotunum og raðar þeim saman á óvæntan hátt í því skyni að ögra, gleðja, stríða og skerpa skilningarvitin. Sýningin stendur til 11. janúar 2009.
VIÐBURÐIR TENGDIR HAUSTSÝNINGUM HAFNARHÚSSINS
Alla daga frá 18. september – 2. október
Libia Castro & Ólafur Ólafsson vinna að verki sínu í A-sal.
Sunnudag – 21. september – kl. 15
Listamannaspjall: Libia Castro & Ólafur Ólafsson.
Fimmtudag – 2. október – kl. 20
Listamannaspjall: Libia Castro & Ólafur Ólafsson.
Sunnudag – 5. október – kl. 15
Listamannsspjall: Ingibjörg Jónsdóttir.
Sunnudag – 19. október – kl. 14
Leiðangur fyrir börn og fullorðna.
Sunnudag – 16. nóvember – kl. 14
Leiðangur fyrir börn og fullorðna.
Prenta Til baka