Fréttir / tilkynningar
FRÉTTABRÉF LISTASAFNS REYKJAVÍKUR
FRÉTTABRÉF LISTASAFNS REYKAJVÍKUR
Haustið er innan seilingar og framundan hjá Listasafni Reykjavíkur er líflegt sýningaár með fjölbreyttum listsýningum og ótal viðburðum. Næstkomandi fimmtudag verða opnaðar þrjár sýningar í Hafnarhúsinu sem marka upphaf sýningatímabils vetrarins. Næstkomandi sunnudag verður listamannaspjall í Hafnarhúsinu auk þess sem Listasafnið tekur þátt í Hverfahátíð Miðborgar og Hlíða á Kjarvalsstöðum en hún fer fram næsta laugardag.
Sýningardagskráin fyrir síðustu fjóra mánuði ársins er væntanleg úr prentun innan skamms og verður hún send út í rafrænu formi en einnig verður unnt að nálgast hana á heimasíðu safnsins. Dagsrkáin liggur einnig frammi í afgreiðslu húsanna.
ENDURKYNNI RAMMANNA – FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON OG LARS VON TRIER
OPNUN FIMMTUDAG 3. SEPTEMBER KL. 17
Á sýningunni Endurkynni rammanna í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi hefur Friðrik Þór Friðriksson valið ramma úr kvikmyndum sínum og Lars von Triers og látið mála þær upp með olíulitum á gríðarstóra strigafleti. Sýningarstjóri er Ari Alexander Ergis Magnússon, sem einnig á verk á sýningunni. Sjá meira.
D13 INGIBJÖRG BIRGISDÓTTIR
OPNUN FIMMTUDAG 3. SEPTEMBER KL. 17
Þrettándi listamaðurinn í D-salar sýningaröðinni er Ingibjörg Birgisdóttir (1981). Ingibjörg útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og hefur haldið sýningar á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hún hefur leikstýrt fjölmörgum teiknimyndum fyrir innlenda tónlistarhópa sem sýndar hafa verið á Youtube við miklar vinsældir. Sýningarstjóri er Yean Fee Quay. Sjá meira.
ERRÓ - JAPÖNSK ÁSTARBRÉF (1979-1980)
OPNUN FIMMTUDAG 3. SEPTEMBER KL. 17
Myndasyrpan Japönsk ástarbréf er að mörgu leyti ekki einkennandi fyrir hinn litaglaða málara Erró. Uppruna verkanna má rekja til heimsreisu Errós í upphafi áttunda áratugarins en í Japan heillaðist hann af ljósmyndum og bréfum og heimildum sem þeim tengdust án þess að þekkja til fólksins á myndunum. Síðar kom í ljós hverjar persónurnar voru. Sýningarstjóri er Danielle Kvaran. Sjá nánar.
LISTAMANNASPJALL – ENDURKYNNI RAMMANNA
SUNNUDAG 6. SEPTEMBER KL. 15
Friðrik Þór Friðriksson og Ari Alexander Ergis Magnússon ræða um sýninguna Endurkynni rammanna þar sem sýndir eru málaðir rammar sem voru valdir úr bíómyndum Friðriks og Lars von Triers. Aðgangur ókeypis og öllum opinn.
Prenta Til baka