Fréttir / tilkynningar
HUGMYNDAHÚS HÁSKÓLANNA. FIMMTUDAG 10. SEPTEMBER KL. 20
An upcoming exhibitionHÖNNUNARMIÐSTÖÐ ÍSLANDS hefur í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur gengist fyrir mánaðarlegri dagskrá í Hafnarhúsinu á fimmtudagskvöldum. Næstkomandi fimmtudagskvöld verður starfsemi og hugmyndafræði Hugmyndahúss Háskólanna í brennidepli. Frummælendur eru verkefnastjórarnir Daníel Björnsson myndlistarmaður og kennari við LHÍ og Gunnar Karl Níelsson MBA og kennari við HR, en hann er einnig með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. 500 NÝ STÖRF Á NÆSTU TVEIMUR ÁRUM Markmiðið með Hugmyndahúsi Háskólanna er að koma á laggirnar a.m.k. fimmtíu fyrirtækjum sem veita a.m.k. 500 manns atvinnu á tveimur árum. Þegar hafa tæplega eitt hundrað manns atvinnu af þeim þrjátíu fyrirtækjum sem nú þegar hafa verið stofnuð. Þá hafa erlendir og innlendir fjárfestar heimsótt Hugmyndahúsið til að leita að spennandi fjárfestingatækifærum. Hugmyndahús Háskólanna er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands þar sem hönnun, listir, viðskipti og tækni mætast. Með verkefninu vilja skólarnir bregðast við ástandinu sem skapast hefur í þjóðfélaginu, grípa þau tækifæri sem felast í efnahagsástandinu og leggja sitt af mörkum til þess að gefa fólki tækifæri til að skapa í víðasta skilningi þess orðs.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 09.46.2012
|