Fréttir / tilkynningar
BLIK - SÝNINGARSTJÓRASPJALL. SUNNUDAG 13. SEPTEMBER KL. 15
Op-listin er tengd sjónhverfingum og upplifun áhorfandans en á sýningunni eru sýnd verk eftir átta íslenska listamenn á ýmsum aldri, sem á einn eða annan máta beita op-listinni í verkum sínum.
Bliksmiðjan, sem er fjölskylduvæn og fræðandi listsmiðja er einnig opin alla daga, en þar er hægt að spreyta sig á skemmtilegum verkefnum, sem tengjast blik-list, sjónblekkingum og vísindum.
Aðgangur er ókeypis. Opið daglega 10-17.
Prenta Til baka