Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

INNPÖKKUÐ HERBERGI - YOSHITOMO NARA + YNG. FIMMTUDAG 17. SEPTEMBER KL. 17

An upcoming exhibition

Fígúrur og málverk hins heimskunna, japanska popplistamanns, Yoshitomo Nara (1959) hafa farið sigurför um heiminn undanfarna tvo áratugi. Nara er nú kominn til Íslands og opnar nýja sýningu í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, næstkomandi fimmtudag. Málverk Nara tengjast mjög japanskri teiknimyndahefð og popplist en umgjörð verkanna er breytileg eftir sýningarstað. Í Hafnarhúsinu eru verkin sýnd í sérsmíðuðum flutningagámum sem hægt er að skoða inn um opnar hliðar, glugga eða gægjugöt. Inn í gámunum eru lítil og stór málverk af grallaralegum smástelpum eða furðuverum ásamt þrívíðum verkum, sem minna helst á leikföng. Nara vinnur verk sín í samvinnu við hóp þekktra listamanna og hönnuða sem kalla sig Graf, en á þessari sýningu er í för með honum einn af forkólfum hópsins og aðalsamstarfsmaður Nara, Hideki Toyoshima.

Vegleg sýningarskrá er væntanleg um sýningu Nara í Hafnarhúsinu þar sem Guðmundur Oddur, Jón Proppé, Markús Andrésson og Úlfhildur Dagsdóttir skoða listamanninn í ólíku samhengi.
Sýningar Nara höfða til breiðs hóps fólks en líklega er henni best lýst með yfirskrift greinar Úlfhildar: „Lager af ævintýrum”. Sýningin er styrkt af The Japan Foundation. Hún stendur til ársloka.

Á sýningartímabilinu verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn og listsmiðju, námskeið fyrir framhaldsskólanema og málþing í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur.

Úr texta eftir Jón Proppé:
Myndlist Nara sameinar marga strauma og menningarheima eins og ferill hans gefur líka vísbendingu um. Hann hefur líka verið þátttakandi í ólíkum listheimum í Japan og í Evrópu. Verk hans fjalla jöfnum höndum um klassíska list, poppmenningu og fjöldaframleidda menningu; áhrifin og viðfangsefnin spanna vítt svið og hafa ótrúlega breiða skírskotun sem útskýrir kannski að nokkru vinsældir hans. En þótt sumar myndir Nara hafi náð næstum ótrúlegri útbreiðslu á síðustu árum – einkum hinar léttu en ögrandi barnamyndir hans – er líka í verki hans dökkur þráður sem kannski mætti helst kenna við evrópskt þunglyndi eða efahyggju. Myndlist hans er þannig langt frá þeirri glöðu popplist sem margar myndirnar vísa kaldhæðnislega í og það er einmitt þetta sem tengir hann órjúfanlega við avant-garde og framúrstefnu: Hin stöðuga endurskoðun og gagnrýni á bæði birtingarmyndir menningarinnar og eigin verk. Með þeirri framsetningu verkanna sem Nara hefur þróað undanfarin ár gerir hann okkur áhorfendur að þátttakendum í þessu ferli.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.12.2012