Fréttir / tilkynningar
BLIKSMIÐJA – FJÖLSKYLDULEIÐSÖGN OG SMIÐJA. LAUGARDAG 19. SEPTEMBER KL. 14
Bliksmiðjan er unnin útfrá sýningunni Blik, sem er í vestursal Kjarvalsstaða, en þar er sjónum beint að listaverkum nokkurra, íslenskra listamanna sem fela í sér sjónblekkingu og leik að upplifun augans.
Farið verður um sýninguna Blik en á eftir bíður gesta skemmtileg glíma í Bliksmiðjunni þar sem hægt er að spreyta sig á ýmsum verkefnum sem tengjast sjónblekkingum og vísindum.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá kl. 10-17.
Prenta Til baka