Fréttir / tilkynningar
ELEKTRA ENSEMBLE – SUÐURAMERÍSKUR SEIÐUR. LAUGARDAG 26. SEPTEMBER KL. 20
Tónleikaröðin er þematengd þar sem haldið er á vit framandi slóða um víða veröld. Á tónleikunum á laugardaginn verður haldið til Suðurameríku þar sem verk Villa - Lobos og Piazzolla eru í hávegum höfð.
ELEKTRA ENSEMBLE er glæsilegur tónlistarhópur skipaður fimm ungum, framúrskarandi tónlistarkonum. Hópurinn var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2009 og í kjölfarið gekk hópurinn til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð á Kjarvalsstöðum.
Meðlimir hópsins eru Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Helga Björg Arnardóttir klarínettuleikari, Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari og Margrét Árnadóttir sellóleikari.
EFNISSKRÁ
H. VILLA-LOBOS:
Svíta No. 1 (Fjölskylda barnsins) fyrir píanó
Chôros No. 2 fyrir flautu og klarinett
Assobio a Játo fyrir flautu og selló
A. PIAZZOLLA:
Árstíðirnar í útsetningu Hrafnkells Orra Egilssonar fyrir flautu, klarinett, selló og píanó
Miðaverð á tónleikana er kr. 1.500 og kr. 1.000 fyrir, börn, nemendur, eldri borgara og öryrkja.
ELEKTRA ENSEMBLE
Hljóðfæraleikarar Elektra Ensemble hafa allir leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og komið víða fram á tónleikum hérlendis og erlendis. Þeir hafa lokið námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands og í kjölfarið stundað framhaldsnám í virtum tónlistarháskólum í Bandaríkjunum, Englandi, Hollandi, Frakklandi og Þýskalandi. Helstu verkefni Elektra Ensemble á síðasta ári voru tónlistarflutningur í BOZAR tónleikahöllinni í Brussel auk tónleika í Stykkishólmskirkju og Iðnó.
Fjórðu tónleikar Elektre Ensemble á Kjarvalsstöðum verða 30. desember.
Prenta Til baka