Fréttir / tilkynningar
ELEKTRA ENSEMBLE – SUÐURAMERÍSKUR SEIÐUR. LAUGARDAG 26. SEPTEMBER KL. 20
An upcoming exhibitionTónleikaröðin er þematengd þar sem haldið er á vit framandi slóða um víða veröld. Á tónleikunum á laugardaginn verður haldið til Suðurameríku þar sem verk Villa - Lobos og Piazzolla eru í hávegum höfð. ELEKTRA ENSEMBLE er glæsilegur tónlistarhópur skipaður fimm ungum, framúrskarandi tónlistarkonum. Hópurinn var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2009 og í kjölfarið gekk hópurinn til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð á Kjarvalsstöðum. Meðlimir hópsins eru Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Helga Björg Arnardóttir klarínettuleikari, Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari og Margrét Árnadóttir sellóleikari. EFNISSKRÁ H. VILLA-LOBOS: Svíta No. 1 (Fjölskylda barnsins) fyrir píanó Chôros No. 2 fyrir flautu og klarinett Assobio a Játo fyrir flautu og selló A. PIAZZOLLA: Árstíðirnar í útsetningu Hrafnkells Orra Egilssonar fyrir flautu, klarinett, selló og píanó Miðaverð á tónleikana er kr. 1.500 og kr. 1.000 fyrir, börn, nemendur, eldri borgara og öryrkja. ELEKTRA ENSEMBLE Hljóðfæraleikarar Elektra Ensemble hafa allir leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og komið víða fram á tónleikum hérlendis og erlendis. Þeir hafa lokið námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands og í kjölfarið stundað framhaldsnám í virtum tónlistarháskólum í Bandaríkjunum, Englandi, Hollandi, Frakklandi og Þýskalandi. Helstu verkefni Elektra Ensemble á síðasta ári voru tónlistarflutningur í BOZAR tónleikahöllinni í Brussel auk tónleika í Stykkishólmskirkju og Iðnó. Fjórðu tónleikar Elektre Ensemble á Kjarvalsstöðum verða 30. desember.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.16.2012
|