Fréttir / tilkynningar
Manga manga: myndir og sögur
Þar má skoða hina fjölbreyttu flóru japanskra myndasagna, manga, auk bóka um japanska myndlist, teikni- og tungumálakennslu og annað sem tengist japanskri menningu í myndum og sögum.
Manga er eitt alvinsælasta lesefnið á bókasöfnum um þessar mundir, en japanska myndasagan á sér sérstaka hefð innan Japan og er notuð á margvíslegan hátt, ekki bara sem afþreyingar- og skemmtiefni, heldur einnig sem leiðbeiningar og fræðsluefni. Segja má að manga sé rökrétt afkvæmi japanskrar myndlistahefðar, sem frá upphafi hefur verið auðug af myndrænum frásögnum af ýmsu tagi.
Prenta Til baka