Fréttir / tilkynningar
Manga manga: myndir og sögur
An upcoming exhibitionÞar má skoða hina fjölbreyttu flóru japanskra myndasagna, manga, auk bóka um japanska myndlist, teikni- og tungumálakennslu og annað sem tengist japanskri menningu í myndum og sögum. Manga er eitt alvinsælasta lesefnið á bókasöfnum um þessar mundir, en japanska myndasagan á sér sérstaka hefð innan Japan og er notuð á margvíslegan hátt, ekki bara sem afþreyingar- og skemmtiefni, heldur einnig sem leiðbeiningar og fræðsluefni. Segja má að manga sé rökrétt afkvæmi japanskrar myndlistahefðar, sem frá upphafi hefur verið auðug af myndrænum frásögnum af ýmsu tagi.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.17.2012
|