Fréttir / tilkynningar
KONAN VAR SÓLIN - NÚ ER HÚN TUNGLIÐ. SUNNUDAG 27. SEPTEMBER KL. 15
An upcoming exhibitionNokkrar af þekktustu kvenréttindakonum Japans og ýmsir menntamenn, sem þeim tengdust, prýða nú veggi Hafnarhússins á sýningu Errós, Japönsk ástarbréf. Næstkomandi sunnudag kl. 15 mun Kristín Ingvarsdóttir fylgja safngestum í gegnum sýninguna og segja frá nokkrum af þeim áhugaverðu persónum sem sjá má í myndaröð Errós, en dagskráin er hluti af sameiginlegu verkefni stofnanna borgarinnar er nefnist Húmor - Amor. Kristín mun jafnframt fjalla um þá umrótstíma í Japan sem þessar persónur lifðu og tóku þátt í að móta. Kristín flutti til Íslands sumarið 2006 eftir átta ára dvöl í Japan, en hún lauk bæði meistara- og doktorsprófi frá Hitotsubashiháskólanum í Tókýó. Sérsvið hennar er japönsk samtímasaga og samfélag. Kristín hefur á margvíslegan hátt unnið að menningarsamskiptum Íslands og Japans, nú síðast með því að sjá um mánaðarlanga dagskrá um japanska menningu í Norræna Hússinu sumarið 2009. Áður en Kristín byrjar sína yfirferð mun Sirra Sigurðardóttir, verkefnastjóri viðburða hjá Listasafni Reykjavíkur fjalla um sérkenni myndaseríunnar í höfundarverki Errós. KONAN VAR SÓLIN – NÚ ER HÚN TUNGLIÐ JAPANSMYNDIR ERRÓS Tilurð myndaraðarinnar Japönsk ástarbréf eftir Erró tengist dvöl listamannsins í Tókýó á árið 1972, en Erró heimsótti Japan á heimsreisu sinni á þessum tíma. Hjá fornsala komst hann yfir myndefni úr áhugaverðri gamalli bók sem síðar varð uppistaðan í myndaröðinni. Það var ekki fyrr en löngu síðar að Erró komst að því að persónurnar sem hann hafði hrifist af á myndum og málað gegndu lykilhlutverki í menningarsögu Japans á tuttugustu öld. Rauði þráðurinn í bókinni virðist hafa verið saga nokkurra af þekktustu kvenréttindakonum Japans og ýmsum menntamönnum sem þeim tengdust. Fyrir undarleg tilstilli örlaganna eru þessar áhrifaríku persónur nú komnar til Íslands sem aðalpersónurnar í myndaröð Errós. Meðal þeirra má t.d. nefna Raicho Hiratsuka, sem var aðgerðasinnaður femínisti og stofnandi tímaritsins „Seito“ (blásokkur). Fyrsta eintak blaðsins (sem einnig prýðir málverk Errós) hafði að geyma kraftmikinn texta, sem þekkt er sem „manifesto“ japönsku blásokkuhreyfingarinnar: „Í upphafi var konan sólin, raunveruleg manneskja. Í dag er hún tunglið, og lifir í gegnum aðra. Endurspeglar skin annarra....“ Önnur áhugaverð persóna er hinn þekkti japanski rithöfundur, Osamu Dazai, sem skrifaði stórkostleg bókmenntaverk þrátt fyrir stutta og erfiða ævi. Það er skemmtileg tilviljun að japanskar kvenréttindakonur hafa einmitt haft sérstakan augastað á Íslandi og hafa leitað fyrirmynda hér á landi á undanförnum árum. Sumar af þeim konum sem sótt hafa Ísland heim tengjast beint og óbeint forsprökkum japönsku kvenréttindahreyfingarinnar, sem nú prýða veggi Hafnarhússins.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 09.24.2012
|