Fréttir / tilkynningar
LISTAMANNASPJALL FRIÐRIKS ÞÓRS OG ARA ALEXANDERS. FÖSTUDAG 25. SEPTEMBER KL. 12:30
Á sýningunni Endurkynni rammanna í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi hefur Friðrik Þór Friðriksson valið myndir eða ramma úr kvikmyndum sínum og Lars von Triers sem síðan hafa verið málaðir upp með olíulitum á gríðarstóra strigafleti. Sýningunni er þannig ætlað að raska vana okkar og fá okkur til að hugsa öðruvísi um þær myndir sem birtast okkur í kvikmyndunum, að staldra við og skoða efnið í öðru samhengi og með öðrum augum. Hvað er kvikmynd? Hvað er málverk? Hvað er veruleiki? Listformin kallast á og eru að ýmsu leyti sama eðlis. Í báðum stýrist merking og áhrifamáttur myndarinnar af byggingu, litum og formum, og af innri spennu og lífi myndflatarins.
Aðgangur ókeypis og öllum opinn.
Sjá hér nánar dagskrá Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Hafnarhúsinu.
Prenta Til baka