Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

RAFSKINNA – LIFANDI LISTATÍMARIT. SUNNUDAG 27. SEPT. 14-16 OG ÞRIÐJUDAG 29. SEPT. 15-17

An upcoming exhibition

Sem hluta af Nordisk Panorama dagskránni munu Friðrik Þór Friðriksson og Ari Alexander Ergis Magnússon bjóða til listamannaspjalls um sýninguna Endurkynni rammanna mánudaginn 28. september kl. 15.

RAFSKINNA
Rafskinna er DVD- sjónrit á íslensku og ensku sem inniheldur stuttmyndir, heimildamyndir, lifandi tónlistarflutning, myndlist, tónlistarmyndbönd og fleira, bæði eftir íslenska og erlenda listamenn. Meðal listamanna sem Rafskinna hefur unnið með eða birt efni eftir eru Björk, Múm, Marie Losier, Grizzly Bear, Jimi Tenor, Ragnar Kjartansson, Jukka Käarkkainen, Hugleikur Dagsson, Arcade Fire, Hreinn Friðfinnsson, Psychic TV, Emiliana Torrini og margir fleiri.

Sjá nánar um heildardagskrá hátíðarinnar á nordiskpanorama.com.

DAGSKRÁ
Börnin okkar / Our Children (08:08)
- Endurskoðuð útgáfa Kristjáns Loðmfjörð á einum helsta gullmola íslenskrar kvikmyndasögu Börnum náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson.

Tony Conrad: DreaMinimalist (25:00)                    
- Portrett af leikstjóranum framúrstefnulega Tony Conrad. Leikstjóri Marie Losier.
                             
Nico Muhly, Tómleikar / Empty Space (3:54)        
- Fyrstu tónleikarnir sem haldnir voru í hálfbyggðu tónlistarhúsinu í Reykjavík. Framleitt af Rafskinnu.

Did You See my Fathers Grave? (03:37)                            
- Portrett af Helsinki. Leikstjóri Jukka Kärkkäinen.

Statistics of Copenhagen (01:46)
- Portrett af Kaupmannahöfn. Leikstjóri Michael Madsen.

Mansöngur (00:43)
- Videoverk eftir Ingibjörgu Birgisdóttur myndlistarmann úr fyrsta tölublaði Rafskinnu.

Leyndarmál Hreins Friðfinnssonar / The Secrets of Hreinn Friðfinnsson,  (09:28)
- Heimildarmynd um leyndarmálasöfnun Hreins Friðfinnssonar en Hreinn er myndlistarmaður annars tölublaðs Rafskinnu. Framleitt af Rafskinnu.

Aimex-vous avec ferveur (02:08)
- Upptaka af innsetningu Hrafnhildar Arnardóttur aka Shoplifter og avaf í stórum glugga MOMA (Museum of Modern Art) listasafnsins í New York. Framleitt af Rafskinnu.

Hvalalíf  (08:00)
- Endurskoðuð útgáfa af hinni íslensku klassík, Nýtt Líf eftir Þráinn Bertelsson. Leikstjóri: Kristján Loðmfjörð.                                           

Throwing Paint Tins off the Roof (20:36)
- Ljóðræn heimildarmynd um samfélag, byggingarlist og félagslegar breytingar. Leikstjóri Vibeke Bryld.
 
Emilíana Torrini, 200 Kóp (05:00)
- Emiliana gefur áhorfendum Rafskinnu innsýn inn í æskuárin í Kópavogi. Framleitt af Rafskinnu.

Up and About Again (09:49)
- Tilraunakvikmynd um glímuna við lífsins grýttu braut. Leikstjóri Suomi-Väänänen.

Ólafur Björn Ólafsson, Trommusóló / Drumsolo (03:03)
-  Óli Björn er einn færasti trommari landsins. Hann hefur trommað með ýmsum hljómsveitum, meðal annarra Múm, Emiliönu Torrini, Kanada, Unun and Yukatan.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.18.2012