Fréttir / tilkynningar
TRÍÓ REYKJAVÍKUR - AFMÆLISTÓNLEIKAR. FIMMTUDAG 1. OKTÓBER KL. 12:15
Öld er síðan austurríska tónskáldið Haydn lést en á sama ári kom í heiminn þýska tónskáldið, píanistinn og stjórnandinn Mendelssohn. Tríó Reykjavíkur mun leika valda þætti úr tríóum tónskáldanna, en Haydn er talinn öðrum fremur hafa haft mikil áhrif á þróun píanótríósins. Að auki mun Tríóið flytja píanókvartett eftir Wolfgang Amadeus Mozart (1756 – 1791) ásamt kanadíska víóluleikaranum David Visentin sem á að baki tuttugu og fimm ára feril sem leiðandi víóluleikari við margar af stærstu sinfóníuhljómsveitir Kanada auk þess að hafa komið fram víða um heim, verið kennari og listrænn stjórnandi.
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS.
Prenta Til baka