Fréttir / tilkynningar
OP-LIST - MÁLÞING. SUNNUDAG 4. OKTÓBER KL. 15
Málþingið tengist sýningunni Blik þar sem verk op-listamannsins Eyborgar Guðmundsdóttur (1924 -1977) skipa veigamikinn sess.
Aðrir listamenn, sem eiga verk á sýningunni, eru Arnar Herbertsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hreinn Friðfinnsson, Hörður Ágústsson, JBK Ransu, Jón Gunnar Árnason og Ólafur Elíasson. Sýningarstjóri er Helgi Már Kristinsson.
FRAMSÖGUR
Þóra Þórisdóttir fjallar um myndlistarkonuna Eyborgu Guðmundsdóttur, verk hennar og feril í samhengi við strauma og stefnur í listheiminum.
Árni Kristjánsson dósent við sálfræðideild Háskóla Íslands ræðir um skynjun, skynvillur og myndlist. Árni hefur stundað rannsóknir á virkni sjónkerfisins, m.a. því hvernig við beinum athygli okkar að ólíkum hlutum innan sjónsviðsins og hvað stjórnar því hverju við veitum athygli.
JBK Ransu, myndlistamaður hefur um árabil beint sjónum sínum markvisst að 20. aldar listastefnum á borð við Op-listina og poplistina, eins og málverkasería hans Popop er gott dæmi um. Hann leitar í smiðju listasögunar en vinnur verk sín í nýju samhengi. Ransu flytur erindi undir yfirskriftinni „Op í endurgerð“ þar sem hann nálgast Op ekki sem vísindi heldur sem tælandi útlit og aðgengilegt myndmál.
Aðgangur er ókeypis.
OP-LIST
Op-listin á rætur að rekja til miðrar síðustu aldar, en orðið op er dregið úr optical sem þýðir blik. Í op-listinni er áhersla lögð á samband áhorfandans og listaverksins og gerð er tilraun til að breyta skynjun áhorfandans með framsetningu lita, forma og ljóss. Verkið myndar þannig hreyfingu út frá ólíku sjónarhorni áhorfandans.
Prenta Til baka