Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

FJÖLSKYLDUFYLGD Í TALI OG TÓNUM. SUNNUDAG 11. OKTÓBER KL. 14

Guðrún og Kristín bjóða fjölskyldufólki að slást í för með sér og skoða sýninguna Rím í Ásmundarsafni í tali og tónum. Þær stöllur staldra við ákveðin verk á sýningunni, segja af þeim sögur og taka lagið.

Verkin á sýningunni eru eftir myndhöggvarann Ásmund Sveinsson og ellefu samtímalistamenn, en lögð er áhersla á að sýna skyldleika í verkum samtímalistamanna við verk Ásmundar.

Ásmundur hélt alla tíð tryggð við þá hugmynd að listin ætti erindi til fólksins og ætti heima á meðal þess. Hann var kallaður alþýðuskáldið í myndlist og án efa á sú hugsjón rætur að rekja til lífsafstöðu hans, ekki síður en höggmyndahefðarinnar

Aðrir listamenn eru Birgir Snæbjörn Birgisson, Davíð Örn Halldórsson, Eirún Sigurðardóttir, Finnur Arnar Arnarson, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Ólöf Nordal, Pétur Örn Friðriksson, Sara Riel og Steingrímur Eyfjörð.

Sýningarstjórar eru Ólöf K. Sigurðardóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir.

Allir eru velkomnir að hlýða á Guðrúnu og Kristínu en áður en þær hefja upp raustir sínar mun AlmaDís Kristinsdóttir verkefnastjóri fræðslu kynna sýninguna Rím í stuttu máli.

Aðgangur er ókeypis.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00