Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

FRIÐARSÚLAN – LENNON TÓNLEIKAR, HEIMILDARMYNDIR OG FLEIRA. FÖSTUDAG 9. OKTÓBER KL. 19:30

DAGSKRÁ:
19:30 Bein útsending frá útvarpsviðtali Andreu Jónsdóttur við Yoko Ono. Undir viðtalinu verða sýndar svipmyndir af John Lennon og Yoko Ono.
20:00 Sýnt verður beint frá tendrun Friðarsúlunnar og dagskrá henni tengdri í Viðey.
20:30 Bed In, heimildarmynd Yoko Ono um friðarbaráttu hennar og John Lennon. Þau vöktu heimsathygli árið 1969 með því að eyða hveitibrauðsdögunum í rúminu og buðu fjölmiðlum að fylgjast með.
21:45 Imagine Peace Tower. Stiklur úr væntanlegri heimildamynd Ara Alexanders Ergis um tilurð Friðarsúlunnar. Rakin er 40 ára saga verksins frá hugmynd að veruleika.
22:00  Minningartónleikar  um John Lennon.
Dagskrá og söngvarar
Twist and Shout: Jón Ólafsson
Ticket to Ride: Eyþór Ingi
Help: Egill Ólafsson
In My Life: Björgin Halldórsson
Lucy in The Sky: Jóhann Helgason
Revolution: Krummi Björgvinsson
Happiness is a Warm Gun: Helgi Björnsson
Julia: KK
Come Together: Jón Ólafsson
Instant Karma: Páll Rósinkranz
Working Class Hero: Egill Ólafsson
Imagine: Magnús Kjartansson
Jealous Guy: Páll Rósinkranz
Mind Games: Haukur Heiðar Hauksson
Woman: Krummi Björgvinsson
(Just like) Starting Over: Eyþór Ingi
Beautiful Boy: Björgvin Halldórsson
Give Peace a Chance:  Allir
Hljómsveitina skipa: Ásgeir Óskarsson, Jonni Ólafsson, Jón Elvar Hafsteinsson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson.
Kynnir er Ólafur Páll Gunnarsson.
Skipuleggjandi og framkvæmd: Zonet og Óttar Felix Hauksson.
Yoko Ono hefur boðið  Rauða krossi Íslands að standa fyrir fjársöfnun samhliða viðburðum tengdum Friðarsúlunni og leggur sömuleiðis til söfnunarinnar með beinum hætti. Söfnunarfénu verður varið i þágu fjölskyldna sem hafa orðið fyrir áföllum vegna efnahagsþrenginga undanfarinna mánaða. Fjölskyldur og einstaklingar geta leitað stuðnings og ráðgjafar í Rauðakrosshúsinu, Borgartúni 25. Starf Rauða krossins er byggt á áralangri reynslu af viðbrögðum í neyð. Starfsemin er síbreytileg þar sem leitast er við að veita þá aðstoð sem brýnust er hverju sinni. Árlega veitir Rauði krossinn einnig aðstoð til fjölskyldna um allt land fyrir jólin.
Nánari upplýsingar um heildardagskránna, siglingar og fleira er að finna hér. Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00